Fréttir

true

„Bókasöfnin verða að þróast í takt við breytt samfélag“

Á Bókasafni Akraness var síðasta haust ákveðið að vekja meiri athygli á og efla starfsemi safnsins. Ákveðið var að hafa fjölskyldudag alla laugardaga þar sem boðið er upp á ýmsa skemmtilega afþreyingu fyrir allan aldur auk þess sem virkni á samfélagsmiðlum var aukin. „Það vildi til að síðasta haust varð töluverð breyting á starfsmannahópnum og…Lesa meira

true

Geysisbikar kvenna verður í Borgarnesi næsta árið hið minnsta, eftir magnaðan sigur Skallagrímskvenna á KR í bikarúrslitaleiknum á laugardag, 66-49. Skallagrímur er því bikarmeistari í körfuknattleik í fyrsta skipti og er þetta fyrsti stóri titill félagsins frá því Borgnesingar urðu Íslandsmeistarar kvenna árið 1964. Í Skessuhorni sem kom út í dag er umfjöllun um árangur…Lesa meira

true

Tímabundnar lokanir Vesturgötu

Vesturgata á Akranesi verður lokuð tímabundið fyrir umferð milli Krókatúns og Melteigs, vegna byggingaframkvæmda við Vesturgötu 49 og 51. Lokanir munu vara í einn til tvo daga í senn, eða á meðan verið er að tæma gáma, að því er fram kemur á vef Akraneskaupstaðar. Áætlað er að verkinu verði lokið á næstu sjö eða…Lesa meira

true

Kokkalandsliðið með tvenn gullverðlaun

Íslenska kokkalandsliðið vann til tveggja gullverðlauna á Ólympíuleikum matreiðslumeistara, sem haldnir voru í Stuttgart í Þýskalandi. Keppni lauk á mánudaginn og í gær var greint frá sigri íslenska liðsins í síðari keppnisgreininni. Liðið fór því heim með gullverðlaun í farteskinu í báðum keppnisgreinum sínum. Vestlendingar eiga að sjálfsögðu sína fulltrúa í liðinu; Ísak Darra Þorsteinsson…Lesa meira

true

Ársþing KSÍ haldið í Ólafsvík á laugardaginn

Næstkomandi laugardag verður 74. ársþing Knattspyrnusambands Íslands haldið í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík. Þingið var síðast haldið utan Reykjavíkur árið 2017, þegar það var haldið í Vestmannaeyjum. Þar áður var það á Akureyri 2014 og var það í fyrsta skipti í nærri áratug sem þingið var haldið utan höfuðborgarinnar. Akranes, Selfoss og Reykjanesbær eru einu…Lesa meira

true

Tveir prestar kjörnir við Garða- og Saurbæjarprestakall

Kjörnir hafa verið tveir prestar til þjónustu í Garða- og Saurbæjarprestakalli sem nær yfir Akranes og Hvalfjarðarsveit. Niðurstaða kjörnefndar var að velja séra Jónínu Ólafsdóttur og Þóru Björg Sigurðardóttur mag.theol, en sú síðarnefnda mun sérstaklega annast barna- og æskulýðsstarf í sókninni. Þær munu báðar hefja störf með vorinu. Þetta er í fyrsta skipti sem konur…Lesa meira

true

Ætlar sér að ganga keikur inn í sólarlagið

Hann var kjötiðnaðarmaður að ævistarfi en hefur unnið við fjölmargt á lífsins leið. Lauk þátttöku á vinnumarkaði í árslok 2018 og nýtti það sem kallað er snemmtækan lífeyri. Flutti við starfslok heim í litla gula húsið sitt á Akranesi, minnsta skráða íbúðarhúsið á Vesturlandi, einungis tæpir 25 fermetrar að grunnfleti. Sævar Þór Magnússon hefur búið…Lesa meira

true

Engin hlýindi eða rólegheit í kortunum

Kröpp og dýpkandi lægð nálgast nú landið sunnan úr hafi. Af hennar völdum mun hvessa talsvert úr austri og síðan norðaustri og fer að snjóa síðdegis, fyrst syðst á landinu. Í framhaldinu gerir hríðarveður á Suðurlandi og svo á Suðausturlandi og Austfjörðum. Seint í kvöld má einnig búast við hríð á Norðurlandi. Gular viðvaranir hafa…Lesa meira

true

Bæjarstjórn brátt í beinni

Frá því er greint á heimasíðu Stykkishólmsbæjar að til standi að hefja upptökur og beinar útsendingar frá fundum bæjarstjórnar á næstunni. Bæjarstjórn hefur samþykkt að upptökur og útsendingar funda hefjist að loknum breytingum á Ráðhúslofti en þar stendur til að færa fundaraðstöðu bæjarstjórnar og auka skrifstofurými. „Stefnt er að því að vinna við breytingarnar hefjist…Lesa meira

true

Vinkonur, mæður, systur & dætur

Á konudaginn, næstkomandi sunnudag, er konum fagnað um allt land að fornum sið. Hefð er fyrir því að færa eiginkonum blóm eða gera vel við þær með einhverjum hætti en vert er að minnast þess að dagurinn er ekki tileinkaður eiginkonum sérstaklega. Því er ekki úr vegi að konur lyfti sér upp eða geri eitthvað…Lesa meira