Fréttir

true

Borgnesingar sigruðu í Vesturlandsslagnum

Skallagrímur vann góðan sigur á Snæfelli, 74-71, þegar liðin mættust í spennandi Vesturlandsslag í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkveldi. Leikið var í Stykkishólmi. Hólmarar höfðu undirtökin í upphafi og skoruðu fyrstu sjö stig leiksins. Eftir það tóku Borgnesingar góða rispu og komust í 13-15 seint í fyrsta leikhluta. En Snæfell átti lokaorðið í…Lesa meira

true

Niðurstöður skimana birtar rafrænt á island.is

Frá og með deginum í dag mun Leitarstöð Krabbameinsfélagsins birta allar rannsóknarniðurstöður skimana í persónulegu pósthólfi kvenna á island.is. Þetta á jafnt við um niðurstöður úr brjóstamyndatökum Leitarstöðvarinnar og leghálsstrokum óháð því hvar þau eru tekin. “Hingað til hefur Leitarstöðin einungis sent konum bréf með niðurstöðum þegar eitthvað hefur fundist óeðlilegt við skimun fyrir leghálskrabbameini.…Lesa meira

true

Fyrirtækjaþing framundan í Borgarbyggð

Atvinnu-, markaðs- og menningarmálanefnd Borgarbyggðar boðar atvinnurekendur til fyrirtækjaþings í Hjálmakletti, þriðjudaginn 25. febrúar nk. kl. 08:30 – 11:00. „Yfirskrift þingsins er „Samtal við atvinnulífið“ og er markmið þess að standa að opinni umræðu um atvinnumál og atvinnuuppbyggingu í Borgarbyggð, bera kennsl á sóknarfæri og hvernig hægt sé að hámarka ávinning þeirra,“ segir í tilkynningu.…Lesa meira

true

Hvetja ráðherra og þingmenn til að fjölga á ný opinberum störfum

Á fundi bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar í síðustu viku var lögð fram til kynningar áætlun um eflingu starfsemi stofnana sem heyra undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til ársins 2025. Þær stofnanir eru Fiskistofa, Hafrannsóknastofnun og Matvælastofnun. Um er að ræða verkefni sem unnið hefur verið að frá því í haust að frumkvæði Kristjáns Þór Júlíussonar ráðherra. Áætlunin var…Lesa meira

true

Ný vefsíða Dalabyggðar opnuð

Nýr vefur Dalabyggðar var settur í loftið síðastliðinn fimmtudag, 13. febrúar, og var vefsíðan kynnt á fundi sveitarstjórnar sama dag. Kristján Sturluson sveitarstjóri og Jóhanna María Sigmundsdóttir verkefnastjóri kynntu nýju vefsíðuna fyrir sveitarstjórn. Þar kom fram að aðdragandi að gerð síðunnar hafi verið nokkuð langur en samið var við fyrirtækið Netvöktum um gerð hennar árið…Lesa meira

true

Fundur um kvótamál framundan í Ólafsvík

Laugardaginn 22. febrúar klukkan 14 til 16 verður fundur á veitingastaðnum Skerinu í Ólafsvík undir yfirskriftinni, Gerum Ísland heilt á ný – kvótann heim. Ögmundur Jónasson, fyrrum alþingismaður stýrir fundinum, en inngangserindi flytur Gunnar Smári Egilsson, blaðamaður. Þetta er fjórði fundurinn í fundaröð um þetta málefni og hafa fyrri fundir allir verið vel sóttir, í…Lesa meira

true

Stefna á kvikmyndagerð um kríuna í Rifi

Sjóminjasafnið á Hellissandi fékk tveimur styrkjum úthlutað frá Uppbyggingarsjóði Vesturlands á dögunum. Annar þeirra var rekstrarstyrkur upp á 1.200.000 krónur sem gerir safninu kleift að hafa starfsemi næsta sumar. Hinn styrkurinn ber nafnið Kría í Rifi, en það verkefni snýst um framleiðslu á vandaðri kvikmynd um kríuvarpið í Rifi. Sjóminjasafnið fékk Halldóru Unnarsdóttur til samvinnu…Lesa meira

true

Vísitasía biskups á Snæfellsnes

Agnes M. Sigurðardóttir biskup yfir Íslandi hélt vísitasíu sinni áfram um Vesturlandsprófastsdæmi í síðustu viku og í upphafi þessarar. Með í för var sem fyrr prófasturinn, sr. Þorbjörn Hlynur Árnason á Borg og sr. Þorvaldur Víðisson biskupsritari. Vísitasían hófst í Grundarfirði á fimmtudaginn. Séra Agnes heilsaði upp á börn og starfsfólk í Grunnskóla Grundarfjarðar. Að…Lesa meira

true

Bera saman frístundastyrki í stærstu sveitarfélögunum

Verðlagseftirlit Alþýðusambands Íslands hefur safnað upplýsingum til að bera saman frístundastyrki í sextán stærstu sveitarfélögum landsins. Þar kemur fram að Hafnarfjörður er með hæstu frístundastyrkina árið 2020 eða 54.000 kr. á ári með fyrsta barni, en Ísafjarðarbær og Fjarðarbyggð bjóða ekki upp á neina frístundastyrki. Af þeim sveitarfélögum sem bjóða upp á slíka styrki eru…Lesa meira

true

Bílaverkstæði Hjalta þjónustuaðili Hyundai á Akranesi

Hyundai hefur bæst í hóp þeirra fólks- og sendibifreiða frá BL sem Bílaverkstæði Hjalta við Ægisbraut á Akranesi þjónustar samkvæmt samningi við BL. „Um er að ræða allar ábyrðarskoðanir og ábyrgðarviðgerðir auk almennra verkefna sem eigendur Hyundai geta leitað eftir í stað þess að þurfa að gera sér sérstaka ferð til Hyundai á Íslandi í…Lesa meira