Fréttir

true

Kaflaskiptur hringur hjá Valdísi

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, hóf leik á Evrópumótaröðinni í golfi í dag, en fyrsta mót ársins fer fram í Ástralíu um þessar mundir. Gengi Valdísar var upp og ofan á á fyrsta hringnum. Hún fékk skolla á fyrstu tveimur holunum en náði að rétta úr kútnum og var komin aftur á par…Lesa meira

true

Komnir á kolmunnamið við Írlandsstrendur

Venus NS og Víkingur AK komu í gærkvöldi á kolmunnamiðin vestur af syðsta odda Írlands en þangað er um 800 sjómílna sigling frá Reykjavík. Skipin létu úr höfn síðdegis á sunnudag. Að sögn Alberts Sveinssonar, skipstjóra á Víkingi, var leiðinlegt veður á leiðinni og útlit fyrir rysjótta tíð. „Ég er þokkalega bjartsýnn á að það…Lesa meira

true

Hverfandi líkur taldar á að loðnukvóti verði gefinn út

Loðnumælingar rannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar og fimm uppsjávarveiðiskipa; Heimaeyjar VE, Hákons EA, Aðalsteins Jónssonar SU, Barkar NK og Polar Amaroq, kláruðust nokkurn vegin í nótt. Einungis lítið svæði út af Húnaflóa er óyfirfarið og mun Árni Friðriksson klára það þegar veður leyfir að nýju. „Endanlegar niðurstöður þessara mælinga liggja því ekki fyrir en vegna þeirra hagsmuna…Lesa meira

true

Smáfuglarnir margir og þurfa sitt

Á þessum tíma árs eru margir sem hlúa að smáfuglunum og gefa þeim korn eða annan mat út í garða sína. Þeirra á meðal eru mæðgurnar Auður Pétursdóttir og Ragnhildur Helga Jónsdóttir í Ausu í Andakíl. Meðfylgjandi mynd er frá gjafastund við útihúsin í Ausu þar sem sjá má nokkur hundruð af þeim snjótittlingum sem…Lesa meira

true

Búið er að staðsetja rafmagnsbilun í Staðarsveit

Samkvæmt upplýsingum frá Rarik er nú bilun í Staðarsveitarlínu, sem liggur frá Vegamótum að Ólafsvík. Aðstæður í Staðarsveit eru slæmar og vont veður. Vinnuflokkar eru hins vegar á leiðinni á svæðið. Rafmagn er framleitt í Ólafsvík með varaaflstöð og eru íbúar beðnir að fara sparlega með rafmagn þar til viðgerð lýkur. Þetta kemur fram á…Lesa meira

true

„Fólk er farið að sjá þetta meira sem list“

Ólafía Kristjánsdóttir og Andri Már Margrétarson eiga og reka húðflúrstofuna Immortal. Stofuna opnuðu þau fyrir um þremur árum í Hafnarfirði en eru í dag búin að flyta stofuna á Akranes. Ólafía er fædd og uppalin á Ísafirði en Andri hefur alla tíð búið í Reykjavík, en á þó rætur að rekja út á land og…Lesa meira

true

Kap fékk í skrúfuna og dregið til hafnar

Nóta- og togveiðiskipið Kap VE-4 fékk net í skrúfuna þegar það var á veiðum á Breiðafirði í gær. Runólfur SH, skip Guðmundar Runólfssonar hf., tók skipið á hliðina og kom því þannig til hafnar í Grundarfirði. Í dag er skipið að ný komið til veiða á Breiðafirði.Lesa meira

true

Bikarmeistararnir fengu skell

Nýkrýndum bikarmeisturum Skallagríms var kippt rækilega niður á jörðina í gærkvöldi, þegar liðið steinlá gegn Val á útivelli, 107-41. Keira Robinson, Emilie Hesseldal og Maja Michalska léku ekki með Skallagrími í leiknum vegna veikinda, en þær hafa verið lykilmenn í liði Borgnesinga í vetur. Hafði það sitt að segja en tapið var engu að síður…Lesa meira

true

Brautskráning frá Háskólanum á Bifröst á laugardag

Laugardaginn 22. febrúar næstkomandi kl. 11.00 verður brautskráning frá Háskólanum á Bifröst. Alls munu 69 nemendur útskrifast úr grunn- og meistaranámi sem og Háskólagátt. Vilhjálmur Egilsson rektor mun útskrifa nemendur ásamt deildarforsetum. Tónlistaratriði í athöfninni verða í höndum Karlakórsins Söngbræðra ásamt undirleikurum. Boðið verður upp á móttöku að athöfn lokinni. Háskólinn á Bifröst vekur athygli…Lesa meira

true

Rafmagnstruflanir í Snæfellsbæ

Rafmagnstruflun er í gangi á 66kV línunni Vegamót-Ólafsvík og er verið að keyra upp varaaflsvélar í Ólafsvík. Af þeim sökum er rafmagnslaust í Ólafsvík, Hellissandi og Rifi. „Notendur eru beðnir um að fara sparlega með rafmagn svo ekki komi til skömmtunar. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt Rarik Vesturlandi í síma 528 9390,“ segir í tilkynningu frá…Lesa meira