Fréttir

true

Mikil ánægja með leikskólana en óánægja með skipulagsmál

Leikskólar Borgarbyggðar koma vel út í þjónustukönnun Gallup um þjónustu sveitarfélaga fyrir árið 2019. Könnunin var gerð í lok síðasta árs og byrjun þessa. Niðurstöðurnar byggja á svörum 159 íbúa Borgarbyggðar sem lentu í tæplega ellefu þúsund manna tilviljunarúrtaki íbúa 20 stærstu sveitarfélaga landsins. Heilt yfir sögðust 77% svarenda vera ánægðir með Borgarbyggð sem stað…Lesa meira

true

G.Run í Grundarfirði hlaut forvarnaverðlaun VÍS

Forvarnaverðlaun tryggingafélagsins VÍS voru afhent í Reykjavík í gær. Verðlaunin hlýtur það fyrirtæki sem þykir skara fram úr í öryggismálum og er öðrum fyrirtækjum góð fyrirmynd. Að þessu sinni hlaut sjávarútvegsfyrirtækið Guðmundur Runólfsson hf. í Grundarfirði forvarnarverðlaunin. G.Run er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í veiðum og vinnslu á bolfiski. Í upphafi árs 2019 opnaði…Lesa meira

true

Ekið á mann á gangbraut

Ekið var á mann þar sem hann gekk yfir gangbraut við dvalarheimilið Höfða á Akranesi rétt upp úr hádegi á þriðjudag. Ökumaður stöðvaði för sína til að hleypa manninum yfir gangbrautina. Maðurinn gekk af stað þegar bifreið sem kom úr gagnstæðri átt var ekið á manninn á litlum hraða, að sögn lögreglu. Maðurinn kenndi sér…Lesa meira

true

Bakkað á mann í Stykkishólmi

Bakkað var á mann í Stykkishólmi á þriðjudagsmorgun í liðinni viku. Atvikið átti sér stað á bílastæðinu fyrir utan Bónus um tíuleytið. Maðurinn gekk aftur fyrir bíl sem verið var að bakka á bílastæðinu. Ökumaður bílsins sá manninn ekki og bakkaði yfir hægri fót hans. Maðurinn slapp með minniháttar meiðsli, en kenndi sér eymsla í…Lesa meira

true

Úthlutað úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands

Úthlutun á styrkjum úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands 2020 fór fram í Fannahlíð í Hvalfjarðarsveit síðstliðinn föstudag og var þétt setinn salurinn þennan dag. Páll S. Brynjarsson, framkvæmdastjóri SSV, setti athöfnina og áður en úthlutunin hófst stigu þau Guðbjörg, Aldís, Arna og Tómas á svið og fluttu tónlistaratriði fyrir gesti, en þau eru öll nemendur við Tónlistarskóla…Lesa meira

true

Lætur ekki deigan síga og er byrjuð í mastersnámi

Dúxaði í lögfræði við HR þrátt fyrir að hafa átt barn þegar námið var hálfnað Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir útskrifaðist með BA gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 1. febrúar og hlaut hún viðurkenningu fyrir hæstu lokaeinkunn. Sonja er búsett í Borgarnesi ásamt manninum sínum, Pavle Estrajher, og börnunum þeirra þremur, sem eru…Lesa meira

true

Ár hagræðingar hafið í íslenskum framleiðsluiðnaði

Árið 2020 verður ár hagræðinga þar sem framleiðslufyrirtæki bregðast við áskorunum og krefjandi starfsumhverfi. 88% svarenda í könnun sem Outcome framkvæmdi fyrir Samtök iðnaðarins meðal stjórnenda íslenskra framleiðslufyrirtækja segja mjög líklegt eða frekar líklegt að þeirra fyrirtæki grípi til hagræðingaraðgerða á þessu ári. Allir stjórnendur stórra og meðalstórra fyrirtækja í greininni segjast ætla að ráðast…Lesa meira

true

Ísfiskur náði ekki að fjármagna kaup á fiskvinnsluhúsi og fór í þrot

„Svekktur yfir afstöðu stjórnvalda og aðstæðum banka,“ segir framkvæmdastjórinn   Greint var frá því í síðustu viku að stjórn Ísfisks hf. hafði þá óskað eftir að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. „Ljóst er eftir 39 ára samfellda starfsemi Ísfisks hf. að komið er að leiðarlokum. Ísfiskur hefur verið framleiðslufyrirtæki á fiski allan þennan tíma án…Lesa meira

true

Telja nauðsynlegt að ríkið dreifi störfum sem víðast um landið

Á fundi í stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi síðastliðinn miðvikudag var rætt um opinber störf á Vesturlandi með hliðsjón af niðurstöðum úr hagvísi sem Vífils Karlsson hagfræðingur SSV tók saman. Jafnframt var rætt um tillögu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um fjölgun opinberra starfa á landsbyggðinni. Í tillögu ráðherra eru Vestfirðir, Norðurland og Austurland skilgreind sem landsbyggð…Lesa meira

true

Plægðu niður ný rör fyrir varmadæluna í Klifi

Sveitarfélagið Snæfellsbær hefur á liðnum árum beitt sér fyrir að varmadæluvæða húsnæði í eigu sveitarfélagsins, enda jarðhita ekki að finna á þessum slóðum. Eitt þessara húsa er félagsheimilið Klif í Ólafsvík en þar voru fyrir nokkrum árum plægð niður rör fyrir varmadælu í fjöruna austan við húsið. Ekki vildi betur til en svo í vestanátt…Lesa meira