Fréttir

true

Veita ekki meira fé til viðburðahalds

Menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar fjallaði um fyrirkomulag og skipulag við hátíðahöld og viðburði í bænum á síðasta fundi sínum. Niðurstaða umræðu nefndarinnar var sú að hún taldi ekki mögulegt að halda árlega fyrirhugaða viðburði og hátíðarhöld miðað við þá peninga sem til ráðstöfunar eru samkvæmt fjárhagsáætlun ársins 2020. Taldi nefndin því ekkert annað í stöðunni…Lesa meira

true

Íbúar reikna með fækkun sveitarfélaga á Vesturlandi

Í skýrslunni „Atvinnulíf á Vesturlandi árið 2040 – Sviðsmyndir um framtíð atvinnulífs á Vesturlandi til ársins 2040,“ sem KPMG vann fyrir Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, eru meðal annars birtar niðurstöður netkönnunar meðal íbúa í landshlutanum. Svarendur voru beðnir um að leggja mat á það hversu mörg sveitarfélög þeir telja að verði á Vesturlandi árið 2040.…Lesa meira

true

Kúabúið á Hraunhálsi er það afurðahæsta á Vesturlandi

Afurðahæsta kúabú Vesturlands er bú Jóhannes Eybergs Ragnarssonar og Guðlaugar Sigurðardóttur á Hraunhálsi í Helgafellssveit, þar sem meðalnyt árskúnna var 8.307 kíló mjólkur árið 2019. Hraunhálsbúið hefur reglulega verið meðal afurðahæstu kúabúa landsins undanfarinn áratug eða svo. Er þetta til að mynda annað árið í röð sem búið er það afurðahæsta á Vesturlandi og í…Lesa meira

true

Kvenfélagskonur safna á afmælisári fyrir búnaði sem gagnast um allt land

Á morgun, laugardaginn 1. febrúar, verða 90 ár liðin síðan Kvenfélagasamband Íslands var stofnað. Félagið er samstarfsvettvangur og málsvari kvenfélaganna í landinu og er fjölmennasta kvennahreyfingin á Íslandi sem starfar á landsvísu. Innan félagsins eru 17 héraðssambönd með 154 kvenfélög sem telja um 5000 félagskonur. Kvenfélögin hafa gegnt því hlutverki í gegnum árin að safna…Lesa meira

true

Borgarnes skutlan er ný sendibílaþjónusta í Borgarnesi

Borgarnes skutlan er nýtt þjónustufyrirtæki í Borgarnesi. Um er að ræða sendibílaþjónustu, en starfsemi hennar hófst í desember síðastliðinum. Það er Eggert Emil Ólafsson sem stendur að fyrirtækinu. „Ég var búinn að ganga með það lengi í maganum að fara út í þessa starfsemi. Í desember ákvað ég að láta vaða og fer núna daglegar…Lesa meira

true

Íslandspóstur boðar hækkun gjaldskrár og minni þjónustu

Íslandspóstur (ÍP) hefur boðað margvíslegar breytingar á þjónustu stofnunarinnar frá og með 1. maí næstkomandi. Meðal annars hefur útgefendum bæjar- og héraðsfréttablaða verið tilkynnt um að vöruflokkurinn „Blöð og tímarit“ verður lagður niður frá 1. maí og því munu skilmálar í þeim viðskiptum versna samhliða því að dregið er stórlega úr afsláttum vegna magnsendinga. Verð…Lesa meira

true

Gonzi snýr aftur til Ólafsvíkur

Spænski knattspyrnumaðurinn Gonzalo Zamorano samdi á dögunum við lið Víking Ólafsvíkur á nýjan leik. Hann samti við lið Ólafsvíkinga til tveggja ára, eftir að hafa leikið eitt keppnistímabil með liði ÍA í Pepsi Max deildinni síðasta sumar. „Gonzalo þarf ekki að kynna fyrir stuðningsmönnum félagsins en hann lék með liðinu árið 2018. Þá skoraði hann…Lesa meira

true

Halda fund um kvótamál á Gamla kaupfélaginu

Ögmundur Jónasson skrifar grein í síðasta Skessuhorn. Þar segir hann m.a.: „Hafin er fundaherferð um landið undir fyrirsögninni „Gerum Ísland heilt á ný – kvótann heim.“ Hugsunin þarna að baki er sú að kvótakerfið í þeirri mynd sem við þekkjum það hafi brotið samfélagið og sé verkefnið að gera það heilt á ný. Kvótann heim…Lesa meira

true

Samið um mánaðarlegar verðkannanir á landbúnaðarvörum

Alþýðusamband Íslands mun á næstunni gera verðkönnun á innlendum og innfluttum landbúnaðarvörum og skila niðurstöðum sínum til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Þjónustusamningur þessa efnis hefur verið undirritaður  milli ASÍ og ráðuneytisins. Verðkönnunin er gerð í tengslum við breytingar á lagaumhverfi um úthlutun tollkvóta fyrir landbúnaðarvörur sem gerðar voru í desember síðastliðnum. Samkvæmt þeim var ávinningur sem…Lesa meira

true

Að lágmarki tólf hugmyndir að Betri Snæfellsbæ framkvæmdar á árinu

Íbúalýðræðisvefurinn Betri Snæfellsbær var opnaður í september í fyrra og voru íbúar hvattir til að senda þar í gegn tillögur að framkvæmdum og viðhaldsverkefnum í sveitarfélaginu. Alls bárust 45 fjölbreyttar hugmyndir sem tæknideild sveitarfélagsins fór yfir og óskaði eftir að fá fjármuni til að framkvæma einhverjar hugmyndirnar. Á fundi bæjarstjórnar 5. desember var samþykkt að…Lesa meira