Fréttir

true

Mjög djúp vestanlægð væntanleg á þriðjudagskvöldið

Á vefnum Blika.is bendir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur á óvenju djúpa lægð sem kemur upp að vesturströnd landsins næstkomandi þriðjudagskvöld. Henni fylgir vestan rok sem getur hæglega verið skeinuhætt víða um vestanvert landið, meðal annars á Akranesi, Mýrum og víðar þar sem vindur stendur beint af flóanum. „Við sjáum í hnattrænu líkönum reiknisetranna lægðarmiðju um 940…Lesa meira

true

Andlát – Magnús Óskarsson

Magnús Óskarsson fyrrverandi kennari og tilraunastjóri  á Hvanneyri er látinn. Hann lést 28. desember, á 93. aldursári. Hann var fæddur á Saurum í Hraunhreppi 9. júlí 1927, sonur hjónanna Óskars Eggertssonar og Guðrúnar Einarsdóttur, en ólst að mestu upp í Kópavogi þar sem faðir hans var bústjóri. Magnús lauk búfræðiprófi frá Bændaskólanum á Hvanneyri 1950…Lesa meira

true

Sveit Guðmundar er Vesturlandsmeistari í bridds

Sameiginlegt Vesturlands- og Vestfjarðamót í sveitakeppni í bridds var spilað á Akranesi síðastliðinn föstudag og í gær. Á þessu árlega tveggja daga móti er spilað um titilinn Vesturlandsmeistarar í sveitakeppni, en jafnframt er á mótinu spilað um keppnisrétt á Íslandsmeistaramóti. Þar eiga fimm sveitir af Vesturlandi keppnisrétt og tvær af Vestfjörðum. Úrslit á mótinu urðu…Lesa meira

true

Víðtæk leit í dag

Vel á annað hundrað björgunarsveitamanna er nú í Hnappadal á Snæfellsnesi við leit að Andris Kalvans, sem saknað hefur síðan í lok árs. Koma leitarhópar Landsbjargar af Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Húnavatnssýslu. Leitarsvæðið miðast við Heydal og nærliggjandi svæði. Atli Sveinn Svansson, formaður björgunarsveitarinnar Elliða, er nú staddur á toppi Hrútaborgar. Hann segir aðstæður til…Lesa meira

true

Spáð stórhríð á morgun laugardag

Veðurstofan varar við mjög slæmu veðri á morgun, laugardaginn 4. janúar, og hefur gefið út appelsínugula viðvörun fyrir allt vestanvert landið. Á Faxaflóasvæðinu og við Breiðafjörð er spáð suðaustan stormi eða roki 18-25 m/s með snjókomu, lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum frá morgni og framundir kvöld. Búast má við mjög hvössum og varhugaverðum vindhviðum við…Lesa meira

true

Ríflega hundrað hross drápust í fárviðrinu

Nú liggur fyrir að ríflega hundað hross fórust í hamfaraveðrinu sem gekk yfir Norðurland vestra dagana 10.-12. desember sl. Í samantekt Matvælastofnunar um áhrif veðursins kemur fram að þetta eru mestu afföll á hrossum í áratugi og svarar til um 0,5% þeirra 20.000 hrossa sem ætla má að hafi verið á útigangi á þessu landssvæði.…Lesa meira

true

Þriggja vetra í fyrsta sinn undir manna hendur

Við eftirgrennslan feðganna Kolbeins og Höskuldar bænda í Stóra-Ási fundu þeir í gær fé í landi Húsafells. Tuttugu kindur og eitt lamb úr Húnavatnssýslu. Oft hefur það reynst erfitt að hafa hendur í hári kinda sem sjá hag sínum best borgið með að forðast afskipti mannfólksins og halda því til í Húsafellsskógi og fjöllunum þar…Lesa meira

true

Kjör íþróttamanns og Þrettándagleði á sunnudaginn

Kjör á íþróttamanni Borgarfjarðar og Þrettándagleði Borgarbyggðar verður sunnudaginn 5. janúar. Dagskrá verður með þeim hætti klukkan 16:00 verður kjöri á íþróttamanni ársins 2019 lýst í Hjálmakletti. Klukkan 17:30 verður svo farin kyndilganga frá Hjálmakletti að Englendingavík þar sem flugeldasýning hefst klukkan 18. Sýningin er í boði Borgarbyggðar, Björgunarsveitarinnar Brákar og Björgunarsveitarinnar Heiðars. Vakin er…Lesa meira

true

Ýmis nýmæli í nýjum umferðarlögum

Ný umferðarlög tóku gildi nú um áramótin og þar er ýmis nýmæli að finna. Til að mynda skulu lögboðin ökuljós vera kveikt bæði að framan og aftan, óháð aðstæðum, en dagljósabúnaður fjölmargra bíla er þannig að ljós kvikna ekki að aftan ef ljósabúnaðurinn er stilltur á sjálfvirkni. Notkun snjalltækja er óheimilt undir stýri og gildir…Lesa meira

true

Kynning á skipulagsbreytingu vegna golfvallar

Næsta mánudag, 6. janúar milli 15 og 18, verður opið hús í Ráðhúsi Snæfellsbæjar. Þar verða kynnt drög að breytingum á aðalskipulagi bæjarfélagsins vegna fyrirhugaðs golfvallar sunnan Rifs. Breytingin felst í því að óbyggðu svæði sem fyrirhugað er að leggja undir golfvöllinn verður breytt í íþróttasvæði í skipulaginu. Breytingin verður því á þéttbýlisuppdrætti Hellissands og…Lesa meira