Fréttir

true

Rakel tekur við framkvæmdastjórn Leynis

Rakel Óskarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis á Akranesi. Hún tekur við starfinu af Guðmundi Sigvaldasyni, sem stýrt hefur klúbbnum frá árinu 2013. Rakel hefur störf föstudaginn 10. janúar næstkomandi og var að vonum ánægð með ráðninguna þegar Skessuhorn ræddi við hana í morgun. „Starfið leggst mjög vel í mig enda einstaklega spennandi umhverfi…Lesa meira

true

Nafn mannsins sem leitað er að

Leit að Andris Kalvans, 57 ára Letta sem týndur hefur verið frá því á mánudag í Hnappadal, er haldið áfram í dag og verður fram haldið á morgun ef hún hefur ekki þá borið árangur. Lögregla hefur nú birt nafn og mynd af manninum. Andris er vanur fjallgöngumaður en litlar vísbendingar eru um ferðir hans,…Lesa meira

true

Margrét Jónsdóttir Njarðvík ráðin rektor Háskólans á Bifröst

Margrét Jónsdóttir Njarðvík hefur verið ráðin rektor Háskólans á Bifröst frá og með 1. júní 2020, en hún var valin úr hópi sjö umsækjenda. Eins og fram hefur komið lætur Vilhjálmur Egilsson þá af starfi rektors. Margrét er með doktorspróf í spænsku máli og bókmenntum frá Princeton University og MBA frá Háskólanum í Reykjavík. Hún…Lesa meira

true

Átján sækja um stöðu sveitarstjóra Borgarbyggðar

Umsóknarfrestur um starf sveitarstjóra í Borgarbyggð rann út 28. desember. Að sögn Lilju Bjargar Ágústsdóttur, starfandi sveitarstjóra, bárust 18 umsóknir um starfið. Byggðarráð mun á fundi í fyrramálið ákveða næstu skref í ráðningarferlinu, en það er ráðningarstofan Intellecta sem hefur umsjón með því. „Það er einkar ánægjulegt að okkur hafa nú borist margar mjög flottar…Lesa meira

true

Leit haldið áfram í dag og á morgun ef þarf

Búið er að boða áframhaldandi leit á landi að manni sem talinn er týndur í fjalllendi í Hnappadal á Snæfellsnesi. Allar björgunarsveitir á svæði 4 og 5, þ.e.a.s af Vesturlandi öllu, hafa verið kallaðar út. Að sögn Einars Þórs Strand, formanns svæðisstjórnar björgunarsveitanna, verður áhersla lögð á að leita m.a. í gili og gönguleið að…Lesa meira

true

Guðni Th. gefur kost á sér áfram

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands tilkynnti það í ávarpi sínu á nýjársdag í Ríkissjónvarpinu að hann gæfi kost á sér til endurkjörs í embætti forseta Íslands. Núverandi kjörtímabili forseta lýkur í sumar. Ef fleiri bjóða sig fram til embættisins verður kosið 27. júní. Ef ekki, verður forsetinn sjálfkjörinn í embættið. Guðni Th Jóhannesson er sjötti…Lesa meira

true

Nýir Grundfirðingar boðnir velkomnir

Á Gamlársdag fögnuðum Grundfirðingar börnum ársins 2019. Allt frá árinu 2006 hafa nýfædd börn í Grundarfirði verið boðin velkomin í heiminn með gjöfum frá sveitungum sínum. Það er Grundarfjarðarbær í samstarfi við Leikskólann Sólvelli, Heilbrigðisstofnun Vesturlands í Grundarfirði og Slysavarnadeildina Snæbjörgu sem stendur að þessum viðburði. Hverju barni eru færð að gjöf hagnýtur fatnaður, tannbursti,…Lesa meira

true

Gleðilegt ár!

Starfsfólk Skessuhorns óskar lesendum sínum nær og fjær gleðilegs árs með kæru þakklæti fyrir árið sem er að líða. Megi árið 2020 verða ykkur öllum happadrjúgt og ánægjulegt.Lesa meira

true

Áfram leitað á Snæfellsnesi

Leit að manni sem saknað er í Hnappadal á Snæfellsnesi heldur áfram í dag, en leitinni var hætt á þriðja tímanum í nótt. Auk leitarfólks frá björgunarsveitum Landsbjargar tekur þyrla Landhelgisgæslunnar nú þátt í leitinni. Í dag verður m.a. leitað á landi og í hellum í Gullborgarhrauni. Ákvörðun um frekari leit, ef hún hefur þá…Lesa meira

true

Leit í Hnappadal var frestað í nótt vegna veðurs

Eftir að veður tók að versna í nótt var hlé gert á umfangsmikilli leit að manni sem saknað er í Hnappadal á Snæfellsnesi. Á þriðja hundrað björgunarsveitarmanna af öllu vestanverðu landinu tók þátt í leitinni í gærkvöldi og fram á nótt, en auk þess leitar- og sporhundar. Samkvæmt upplýsingum frá svæðisstjórn Landsbjargar var ákveðið á…Lesa meira