Fréttir

true

Erum hugsanlega að missa verðmætustu kúnnana

Gísli Ólafsson sem rekur hvalaskoðunarfyrirtækið Láka Tours á Snæfellsnesi og Ströndum, telur litla ástæðu til að ætla að ferðamenn hætti að sækja Ísland heim, jafnvel þótt margir telji sig nú sjá blikur á lofti. „Ferðamannastraumurinn má samt standa í stað í nokkur ár,“ segir Gísli og vísar til að aukingin undanfarin ár hefur verið gríðarmikil.…Lesa meira

true

“Munum veita nýjum meirihluta gott aðhald”

Eins og greint var frá í frétt hér á vefnum í gærkvöldi er búið að skrifa undir meirihlutasamstarf Samfylkingar og Framsóknarflokks með frjálsum á Akranesi. Þar með situr Sjálfstæðisflokkurinn með fjóra bæjarfulltrúa í minnihluta. Rakel Óskarsdóttir er oddviti Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn. Hún kveðst í samtali við Skessuhorn undrast þann hátt sem Samfylking og Framsókn hafi…Lesa meira

true

Kári vann stórsigur á Tindastóli

Káramenn unnu stórsigur á Tindastóli, 5-2, þegar liðin mættust í 2. deild karla í knattspyrnu á Akranesi í gær. Heimamenn komust yfir á lokamínútu fyrri hálfleiks og leiddu í hléinu með einu marki gegn engu. En mörkunum átti heldur betur eftir að fjölga í þeim síðari. Andri Júlíusson jafnaði metin á 56. mínútu og kom…Lesa meira

true

Erfið byrjun reyndist Skagakonum dýrkeypt

Skagakonur þurftu að játa sig sigraðar gegn Þrótti R. þegar liðin mættust í 1. deild kvenna í knattspyrnu á föstudagskvöld. Leikurinn fór fram á Akranesi þar sem gestirnir skoruðu tvö mörk gegn engu. Þróttarar byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust yfir strax á 3. mínútu þegar Andrea Rut Bjarnadóttir skoraði með föstu skoti. Aðeins…Lesa meira

true

Þórunn formaður LEB veiddi fyrsta fisk sumarsins

Það ríkti ró og friður, bæði í veðri og meðal fólks, þegar rennt var fyrir fyrstu laxa sumarsins í Norðurá í Borgarfirði í morgun. Stjórn veiðifélagsins bauð til morgunverðar í veiðihúsinu við Rjúpnahæð klukkan sjö en eftir það tóku veiðimenn að ferðbúast að ánni. Hefð er fyrir því að bjóða fulltrúum ólíkra hópa að renna…Lesa meira

true

Skagamenn sóttu sigur gegn Fram

Skagamenn gerðu góða ferð til Reykjavíkur í gær og sigruðu Fram 0-1 í 1. deild karla í knattspyrnu í gær. Fyrri hálfleikur var fremur tíðindalítill. Eftir rúmlega korters leik meiddist Arnór Daði Aðalsteinsson, leikmaður Fram, og þurfti að bera hann af velli. Hann var síðan fluttur burt í sjúkrabíl og óvíst hve alvarleg þau meiðsli…Lesa meira

true

Vill styrkja sjálfsmynd ungra stúlkna

Rósa Björk Árnadóttir ætlar að halda sjálfstyrkingarnámskeið fyrir stelpur á aldrinum 10-12 ára á Akranesi helgina 9.-10. júní. Á námskeiðinu mun hún kenna stelpum öndunar-, jóga- og hugleiðsluæfingar sem geta hjálpað þeim með kvíða og streitu. Námskeiðið er ætlað til að fá stelpur til að skilja mikilvægi þess að elska sig og bera jafn mikla…Lesa meira

true

Ólafsvíkingar töpuðu á Selfossi

Víkingur Ó. varð að lúta í gras fyrir Selfossi, 2-1, þegar liðin mættust í fimmtu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu í gær. Leikið var á Selfossi. Ólafsvíkingar mættu mjög ákveðnir til leiks, pressuðu hátt og náðu nokkrum skotum að marki Selfyssinga strax á fyrstu mínútum leiksins. Á 6. mínútu leiksins komust heimamenn í fyrsta…Lesa meira

true

Háskólinn á Akureyri aldrei vinsælli

Í fyrra var metaðsókn í nám við Háskólann á Akureyri en nú er von á því að það met verði rækilega slegið. Allt stefnir í metaðsókn í nám við við skólann í haust en um 50% aukning er á heildarfjölda umsókna og nærri tvöföldun í umsóknum um kennaranám. „Á síðustu árum hefur aðsókn í Háskólann…Lesa meira

true

Listamiðstöðin í Munaðarnesi opin

Listamiðstöðin í Munaðarnesi í Borgafirði var opnuð á nýjan leik síðastiðinn laugardag. Markaðist sá viðburður af opnun sýningar Kristínar Hálfdánardóttur myndlistarkonu. „Til margra ára var Munaðarnes mekka myndlistar og viljum við endurreisa þá ímynd með opnun sýningar Kristínar,“ segir í tilkynningu listamiðstöðvarinnar.Lesa meira