Fréttir

true

Brautskráning frá Landbúnaðarháskóla Íslands

Nú hafa nemendur verið brautskráðir frá öllum deildum Landbúnaðarháskóla Íslands, en starfsemin fer eins og kunnugt er fram á nokkrum stöðum. Fyrsta brautskráning fór fram 1. maí sl. þegar 24 nemendur útskrifuðust af námskeiðaröðinni Reiðmaðurinn í endurmenntunardeild LbhÍ. Þá fór brautskráning nemenda af garðyrkjubrautum við LbhÍ fram í Hveragerðiskirkju 26. maí sl. Brautskráning nemenda á…Lesa meira

true

Skrifað undir meirihlutasamstarf á Akranesi

Í kvöld var skrifað undir meirihlutasamstarf Samfylkingar og Framsóknar með frjálsum í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar. Flokkarnir hafa fimm menn í meirihluta en Sjálfstæðisflokkur fjóra í minnihluta. Í upphafi sáttmála flokkanna segir m.a: „Lögð verður áhersla á gott samstarf allra flokka í bæjarstjórn, vandaða og faglega stjórnsýslu og þróun á virku íbúalýðræði. Áfram verður unnið að því…Lesa meira

true

Var gabbaður eins og venjan er á fyrstu vertíð

Í tilefni sjómannadagsins birtum við hér bráðskemmtilegt viðtal við ungan sjómann sem er að ljúka sinni fyrstu vertíð. Alexander Rodriguez er 22 ára piltur í Ólafsvík. Hann er á sinni fyrstu vertíð á sjó og réði sig á línubátinn Tryggva Eðvarðs SH. Aðspurður um hvers vegna ungur piltur hafi ráðið sig á sjó, svarar Alexander…Lesa meira

true

Væntanlegt meirihlutasamstarf borið undir flokksfélögin í kvöld

Samfylkingin og Framsóknarflokkur og frjálsir á Akranesi hafa náð samkomulagi um myndun meirihluta í bæjarstjórn á Akranesi. Flokkarnir fengur samtals fimm menn í bæjarstjórn við kosningarnar 26. maí; Samfylking þrjá bæjarfulltrúa og Framsókn tvo. Boðað hefur verið félagsfunda í báðum flokksfélögunum klukkan 20 í kvöld þar sem meirihlutasamkomulagið verður kynnt, svo sem áherslur, verkaskipting og…Lesa meira

true

Ærslabelgur fylltur lofti eftir helgi í Grundarfirði

Nú geta hoppuþyrstir Grundfirðingar heldur betur glaðst yfir nýjustu framkvæmdum bæjarins. Verið er að setja upp svokallaðan ærslabelg á túninu við íþróttahús bæjarins. Gleðibumban á vafalaust eftir að veita mikla ánægju meðal yngri kynslóðarinnar þó svo að einn og einn Grundfirðingur á besta aldri eigi eftir að laumast upp á belginn. Lofti verður hleypt í…Lesa meira

true

Ganga til meirihlutasamstarfs í Borgarbyggð og semja við Gunnlaug

„Meirihlutaviðræður fulltrúa Sjálfstæðisflokks, VG og Samfylkingar og óháðra í Borgarbyggð ganga vel og hafa fulltrúar flokkanna ákveðið að ganga til samstarfs,“ segir í tilkynningu frá flokkunum. „Verið er að fínpússa málefnasamning á milli flokkanna. Ekki bar mikið á milli stefnumála framboðanna, vel hefur gengið að stilla saman strengi og eru fulltrúar bjartsýnir um samstarfið. Ákveðið…Lesa meira

true

Komu saman á sextíu ára fermingarafmæli sínu

Hinn samheldni þjóðhátíðarárgangur ´44 á Akranesi hélt upp á 60 ára fermingarafmæli sitt í Akranesskirkju á hvítasunnudag 20. maí síðastliðinn. Hópurinn mætti í hátíðarmessu kl. 11.00 og tók þátt í guðsþjónustunni. Þráinn Þorvaldsson flutti ávarp fyrir hönd þeirra og rifjaði upp æskuár sín á Skaganum. Árgangurinn naut síðan dagsins saman á Akranesi og í nágrenni.…Lesa meira

true

Sindri og Þórunn hefja laxveiðisumarið í Norðurá

Næstkomandi mánudagsmorgun hefst laxveiðisumarið hér á landi þegar byrjað verður að veiða í Norðurá í Borgarfirði. Að þessu sinni hefur verið boðið að hefja veiðarnar þeim Sindra Sigurgeirssyni formanni Bændasamtaka Íslands og Þórunni Sveinbjörnsdóttur formanni Landssambands eldri borgara. Að sögn Einars Sigfússonar umsjónarmanns í Norðurá voru þau tvö valin vegna þess hversu vel þau hafa…Lesa meira

true

Kvennahlaupið er heilbrigð skemmtun fyrir alla

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram í tuttugasta og níunda sinn á morgun, laugardaginn 2. júní. Markmið Kvennahlaupsins hefur frá upphafi verið að vekja áhuga kvenna á reglulegri hreyfingu. Er þetta einn stærsti almenningsíþróttaviðburðurinn á Íslandi á hverju ári. Fólk á öllum aldri kemur sama á hlaupadegi og á saman skemmtilega stund þar sem sumir hlaupa…Lesa meira

true

Listamiðstöðin í Munaðarnesi opnuð á morgun

Á morgun verður listamiðstöðin í Munaðarnesi í Borgarfirði opnuð á nýjan leik þegar sýning Kristínar Hálfdánardóttur myndlistarkonu verður opnuð. „Til margra ára var Munaðarnes mekka myndlistar og viljum við endurreisa þá ímynd með opnun sýningar Kristínar,“ segir í tilkynningu listamiðstöðvarinnar. Opnun sýningarinnar og listamiðstöðvarinanr verður kl. 16:00 á morgun, laugardaginn 2. júní.Lesa meira