Fréttir

true

Ný stofnun á að bæta gæði heilsugæslu um allt land

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti í síðustu viku ákvörðun sína um að auka til muna fjármuni til að efla og þróa heilsugæsluþjónustu á landinu: „Markmiðið er ekki síst að jafna aðgengi landsmanna að þessari mikilvægu grunnþjónustu hvar sem fólk býr, efla gæði þjónustunnar og stuðla að nýjungum,“ segir heilbrigðisráðherra. Þróunarmiðstöð sem sett verður á laggirnar mun…Lesa meira

true

Grátlegt tap Víkings Ó.

Liðsmenn Víkings Ó. máttu játa sig sigraða, 0-1, þegar þeir mættu Magna í 1. deild karla í knattspyrnu á laugardag. Leikurinn var jafn og fjörlegur og úrslitin réðust ekki fyrr en í uppbótartíma. Bæði lið mættu ákveðin til leiks og sköpuðu sér fullt af færum í fyrri hálfleik. Magnamenn skölluðu í þverslánna og yfir snemma…Lesa meira

true

Skagamenn höfðu mikla yfirburði

Skagamenn sigruðu Hauka örugglega, 3-1, þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu á föstudag. Leikið var á Akranesvelli. Skagamenn tróna á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir fyrstu þrjá leiki sumarsins. Ákefð og kraftur einkenndi leik Skagmanna á föstudaginn. Þeir voru mættu mun ákveðnari til leiks og fengu dauðafæri strax á 5.…Lesa meira

true

Eyjólfur og Bjarni áfram hjá Skallagrími

Eyjólfur Ásberg Halldórsson og Bjarni Guðmann Jónsson hafa endurnýjað samninga sína við körfuknattleiksdeild Skallagríms. Munu þeir leika með liði Borgnesinga í Domino‘s deild karla næsta vetur. Báðir voru þeir í lykilhlutverki hjá Skallagrími sem hampaði deildarmeistaratitli 1. deildar á liðnum vetri. „Er áframhaldandi vera þeirra í liðinu því mikið fagnaðarefni,“ segir á vef Skallagríms. Eyjólfur…Lesa meira

true

Söguboltinn rúllar af stað – samstarf knattspyrnu og bókmennta

Söguboltinn er samstarfsverkefni mennta- og menningarmálaráðuneytis, barnabókahöfunda og RÚV. Verkefnið er liður í kynningarátaki ríkisstjórnarinnar í aðdraganda heimsmeistaramótsins í fótbolta í Rússlandi í júní. Markmið verkefnisins er að tengja skemmtilega saman tvo hluti sem samofnir eru þjóðarsál okkar; fótbolta og bókmenntir. „Við erum stolt af okkar frábæra hæfileikafólki, bæði á fótbolta- og ritvellinum. Sögubolta-verkefnið er…Lesa meira

true

Klara Sveinbjörnsdóttir náði bestum árangri við útskrift Hólanema

Hin árlega reiðsýning nemenda við Háskólann á Hólum í Hjaltadal fór fram í gær. Þessi sýning hefur skapað sér sess sem hápunktur lokadagskrár hjá BS-nemum í reiðmennsku og reiðkennslu, sem nú hafa lokið öllum sínum prófum. Nemendur sýndu í verki margt af því sem þeir hafa lært í reiðmennsku í þriggja ára námi sínu við…Lesa meira

true

Snjókomu spáð á fjallvegum undir kvöld

Nú kólnar úr vestri og vind lægir, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.  „Staðbundin og hægfara úrkomusvæði kemur til með að valda talsverðri snjókomu eða krapa á fjallvegum undir kvöld og fram yfir miðnætti. Nær m.a. til Bröttubrekku, Holtavörðuheiðar, Vatnsskarðs og Öxnadalsheiðar.“Lesa meira

true

Vetrarfærð á fjallvegum og skert þjónustu á Hvítasunnudag

Hálkublettir eru nú á fjallvegum á Vestfjörðum og þá er t.d. krapi á Holtavörðuheiði og Nesjavallaleið. Þungfært er á Bröttubrekku en unnið að mokstri. Þar hefur þurft að koma ökumönnum til aðstoðar síðan í gær en þeir hafa fest bíla sína á heiðinni. Vegagerðin vekur athygli á því að allri venjubundinni vetrarþjónustu er lokið vegna…Lesa meira

true

Bræður í raðir Skallagríms

Körfuknattleiksdeil Skallagríms hefur samið við bræðurna Björgvin og Bergþór Ríkharðssyni. Munu þeir leika með liðinu í Domino’s deildinni í körfuknattleik næsta vetur. Björgvin er 24 ára gamall og leikur stöðu bakvarðar. Hann gengur í raðir Skallagríms frá Tindastóli, þar sem hann hefur leikið undanfarin tvö ár. Þar áður var hann á mála hjá ÍR. Á…Lesa meira

true

Viljayfirlýsing um veitingastað með nýrri nálgun

Á Sansa streetfood mun fólk með skerta starfsgetu fá tækifæri til atvinnu   Í dag var skrifað undir viljayfirlýsingu í bæjarþingsalnum á Akranesi um að hefja með formlegum hætti undirbúning að þróunarverkefni sem miði að stofnun nýs veitingastaðar á Akranesi. Sérstaða þessa veitingastaðar verður sú að þar verður boðið upp á fjölbreyttan og spennandi mat…Lesa meira