Fréttir

true

Sjálfstæðisflokkurinn í Borgarbyggð kynnir stefnuskrá sína

„Stefnuskrá Sjálfstæðismanna í Borgarbyggð verður kynnt föstudaginn 11. maí klukkan 17:00 í Félagsbæ Borgarnesi. Í tilefni þess bjóða frambjóðendur alla velkomna í fjölskyldugrill og fjör. Aðstandendur listans hvetja sem flesta til að mæta, hlusta á það sem framboðið hefur fram færa og spyrja spurninga.“ -FréttatilkynningLesa meira

true

Go West hlýtur vottun Vakans

Go West / Út og vestur á Snæfellnesi hefur nú fengið vottun Vakans, sem er gæðavottunarkerfi í ferðaþjónustu sem snýr að öllum þáttum þjónustu við ferðamenn nema gistingu. Þau fyrirtæki sem taka þátt í Vakanum njóta liðsinnis starfsfólks Vakans við að taka út reksturinn á grundvelli ítarlegra gæðaviðmiða, fá staðfestingu á því sem vel er…Lesa meira

true

Líkir væntanlegum aðstöðumun hestafólks í Dreyra við byltingu

Þriðjudaginn 1. maí voru tímamót hjá Hestamannafélaginu Dreyra. Þá var skrifað undir samning um byggingu nýrrar reiðhallar á svæði félagsins á Æðarodda við Akranes. Félagið er nú eitt fjögurra hestamannafélaga í landinu sem enn er án reiðhallar eða annarrar aðstöðu til tamningar og þjálfunar. Hin þrjú félögin eru öll fámennir klúbbar í samanburði við Dreyra.…Lesa meira

true

Svipmyndir frá niðurrifi dagsins

Áfram heldur niðurrif efnisgeymslu Sementsverksmiðjunnar við Faxabraut á Akranesi. Í morgun var búið að taka efnið af Faxabrautinni sem notað hefur verið sem pallur fyrir stórvirkar vinnuvélar svo þær nái til lofts í byggingunni. Akfært er því orðið um götuna, en hún þó enn lokuð fyrir almennri umferð. Meðfylgjandi myndir tók Daníel B.J. Guðrúnarson á…Lesa meira

true

„Stærsta markmiðið að gera betur en í fyrra“

ÍA hafnaði í 5. sæti 1. deildar kvenna í knattspyrnu að loknu síðasta sumri eftir fall úr efstu deild árið áður. Helena Ólafsdóttir er nú að hefja sitt annað keppnistímabil sem þjálfari liðsins. Hún segir eftirvæntingu ríkja fyrir sumrinu. „Sumarið leggst vel í okkur þjálfarana. Tíminn sem búið er að bíða eftir í allan vetur…Lesa meira

true

Úrslit frá Vesturlandsmóti í skotfimi

Laugardaginn 28. apríl var haldið árlegt Vesturlandsmót í loftgreinum í inniaðstöðu Skotfélags Vesturlands í Brákarey í Borgarnesi. Keppt var í loftskammbyssu karla og kvenna, loftrifflum karla og kvenna og í skammbyssu og riffli í unglingaflokkum kvenna. „SkotVest þakkar mótanefnd og þátttakendum kærlega fyrir þáttökuna,“ segir í tilkynningu frá félaginu. Helstu úrslit Vesturlandsmótsins voru eftirfarandi:  …Lesa meira

true

Framkvæmdir fyrir fimm milljarða á teikniborðinu

Fyrirtækið Uppbygging ehf. hefur keypt um tveggja hektara land við Smiðjuvelli á Akranesi og áformar að byggja þar allt að 17 þúsund fermetra blandað verslunar- og þjónusturými. Tillögur hafa verið kynntar fyrir skipulagsyfirvöldum hjá Akraneskaupstað og hefst vinna við deiliskipulag í framhaldinu. Gert er ráð fyrir að byggingar á svæðinu verði 6-8 sem myndi umgjörð…Lesa meira

true

Í átthagafræði í GSNB fá nemendur að kynnast umhverfi sínu

Átthagafræði hefur verið fastur liður í skólastarfi Grunnskóla Snæfellsbæjar síðastliðin átta ár. Föstudaginn 20. apríl sl. var opnuð heimasíða fyrir átthagafræðina, www.atthagar.is, þar sem er að finna námskrá og allar helstu upplýsingar um átthagafræðikennslu í skólanum. „Við viljum að nemendur kynnist samfélaginu sem þeir búa í og því var tekin ákvörðun um að fara út…Lesa meira

true

Háskólalestin heldur vísindaveislu í Hjálmakletti

Háskólalest Háskóla Íslands er nú á ferð um landið og heimsækir fjögur sveitarfélög á landsbyggðinni. Föstudaginn og laugardaginn 11. og 12. maí verður lestin í Borgarnesi og verður nemendum í 8.-10. bekk boðið upp á fróðleg og skemmtileg námskeið. Á föstudeginum munu kennarar í Háskólalestinni taka að sér kennslu í efri bekkjum grunnskólans. Á laugardeginum…Lesa meira

true

Framsókn og frjálsir kynna stefnuskrá sína

„Stefnuskrá Framsóknar og frjálsra á Akranesi verður kynnt laugardaginn 12. maí í kosningamiðstöðinni að Kirkjubraut 54 – 56, frá klukkan 11 – 12:30,“ segir í tilkynningu. Aðstandendur listans hvetja bæjarbúa til að mæta, hlusta á það sem framboðið hefur fram að færa og spyrja spurninga. Á fundinum verður boðið upp á léttan hádegisverð og rjúkandi…Lesa meira