Fréttir

true

Ásbyrgi heimsótti Lavaland

Það var mikið fjör á vinnustofunni hans Togga í Lavaland í Grundarfirði þegar ljósmyndari Skessuhorns rak inn nefið síðasta laugardag. Þá voru góðir gestir frá Ásbyrgi í Stykkishólmi í heimsókn og var Toggi að sýna þeim hagnýt handtök í fínsmíði. Gríðarleg einbeiting var í loftinu og gleðin skein úr hverju andliti þarna inni. Í Ásbyrgi…Lesa meira

true

Almenn svartsýni um gengi íslenska atriðisins

Í síðustu viku var spurt hér á vef Skessuhorns hvort Ari Ólafsson kæmist með framlag Íslands upp úr undanúrslitum í Eurovisionkeppninni, en fyrri umferð hennar fer fram í kvöld í Lissabon í Portúgal. Svarendur voru harla svartsýnir á árangur. 51% sögðu Ara örugglega ekki komast áfram og 24% að hann kæmist sennilega ekki áfram, eða…Lesa meira

true

VR sendir forstjóra Hörpu skýr skilaboð

„Í ljósi yfirlýsingar forstjóra Hörpu í dag 8. maí, hefur VR ákveðið að hætta að nota Hörpu tónlistarhús undir viðburði félagsins. Sóma síns vegna getur VR ekki átt í viðskiptatengslum við fyrirtæki sem hagar sér með svo lítilmannlegum hætti gagnvart launafólki,“ segir í tilkynningu frá VR. „Lægst launuðu starfsmenn Hörpu tónlistarhúss, sem einum var gert…Lesa meira

true

Búið að reisa vallarhús við Ólafsvíkurvöll

Framkvæmdir við byggingu vallarhúss við Ólafsvíkurvöll eru í fullum gangi sem og við völlinn sjálfan og er allt kapp lagt á að hann og húsið verði tilbúið sem fyrst. Veðrið hefur þó aðeins verið að stríða þeim sem að verkinu koma. Búið er að reisa vallarhúsið og þegar þetta er skrifað er vonast til þess…Lesa meira

true

Ráðstefna á Bifröst um íslenska þjóðfélagið

Háskólinn á Bifröst verður aðsetur tólftu ráðstefnunnar um íslenska þjóðfélagið dagana 10. – 11. maí nk., en ráðstefnan er vettvangur fyrir fræðimenn í öllum greinum hug- og félagsvísinda til að koma á framfæri rannsóknaverkefnum sínum og bera saman bækur sínar við aðra fræðimenn. Framtíð háskólastarfs á landsbyggðinni er yfirskrift ráðstefnunnar og vísar hún til þess…Lesa meira

true

Líkamsræktin í Grundarfirði skiptir um eigendur

Fyrir rúmlega níu árum hóf Líkamsræktin starfsemi sína í Grundarfirði en samfélagið hafði þá kallað eftir slíkri þjónustu. Það voru hjónin Ásgeir Ragnarsson og Þórey Jónsdóttir sem keyrðu þetta verkefni í gang og viðtökurnar voru góðar. Nú hálfu tíunda ári síðar var kominn tími á breytingar. Líkamsræktin var auglýst til sölu og hefur ungt og…Lesa meira

true

Fjölmargir prufukeyrðu bíla á afmæli Bíláss

Bílasalan Bílás á Akranesi er 35 ára um þessar mundir. Af því tilefni var opið hús og bílasýning síðastliðinn laugardag. Þeir bræður Ólafur og Magnús Óskarssynir hafa rekið bílasöluna frá upphafi. Þeir voru hæstánægðir með viðtökur en um fimmtíu manns nýttu tækifærið og prufukeyrðu nýja bíla sem voru til sýnis og sölu. Þá voru margir…Lesa meira

true

Hjólar hringinn til að vekja athygli á álfasölu SÁÁ

Arnór Gauti Helgason, kokkur á Sjúkrahúsinu Vogi, er þessa dagana að hjóla hringinn um landið til að vekja athygli á álfasölu SÁÁ sem hefst 15. maí nk. Ferðalagið hófst í Tíðaskarði í Hvalfirði á laugardaginn. Planið er að hjóla hringinn á sjö dögum og taka myndir/selfie af álfinum á öllum helstu bæjarskiltum landsins. Þrátt fyrir…Lesa meira

true

Vorgleði haldin í Grundarfirði á föstudaginn

Fyrir nokkrum árum tíðkaðist það að halda svokallaða Vorgleði í Grundarfirði. Þá tóku sig saman grundfirskir tónlistarmenn og söngvarar og héldu skemmtun í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. Síðast var haldin vorgleði árið 2005 en þá gekk hún svo vel að hún fór í útrás og var flutt á Broadway í Reykjavík síðar sama ár, þar sem Grundfirðingar…Lesa meira

true

Framhaldsskólakennarar samþykktu

Félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning með yfirgnæfandi meirihluta. Niðurstaðan var kynnt í dag. Gildistími samningsins er út mars á næsta ári. Á kjörskrá voru tæplega 1500 kennarar og stjórnendur og voru 69% þeirra fylgjandi en 29% andvígir. Tæplega 2% skiluðu auðum seðlum eða gerðu ógilt.  Lesa meira