Fréttir

true

Frestur til að skila framboðum rennur út eftir 25 tíma

Á hádegi á morgun, laugardaginn 5. maí, rennur út frestur til að skila framboðslistum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 26. maí næstkomandi. Hér á Vesturlandi er vitað að enn á eftir að tilkynna um framboðslista þrátt fyrir að frestur sé að renna út. Staða þeirra mála eftir sveitarfélögum er nokkurn veginn eftirfarandi (birt með fyrirvara). Á Akranesi hafa…Lesa meira

true

Breyting gerð á lista VG í Borgarbyggð

Á félagsfundi VG í Borgarbyggð í gær var samþykkt breyting á áður samþykktum framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Guðmundur Freyr Kristbergsson, ferðaþjónustubóndi á Háafelli í Hvítársíðu, tekur þriðja sæti á listanum. Kemur hann í stað Eiríks Þórs Theódórssonar sem óskað hafði eftir því að draga framboð sitt til baka af persónulegum ástæðum. Listinn er að öðru leyti…Lesa meira

true

Dregið í 16 liða úrslitum bikarsins

Dregið var í 16 liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu í gær. Vesturlandsliðin ÍA, Kári og Víkingur Ó voru öll í pottinum eftir sigra í fyrri umferð. Drátturinn fór á þá leið að Kári mætir Víkingi R. á Akranesi og er þetta í fyrsta sinn sem liðið er í 16 liða úrslitum bikarsins. Víkingur Ó.…Lesa meira

true

Slysavarnadeildin Sumargjöf sjötíu ára

Slysavarnadeildin Sumargjöf var stofnuð 22. apríl 1948 og hélt upp á 70 ára afmæli sitt á sumardaginn fyrsta. Haldið var upp á daginn með veislu í Mettubúð og komu um 90 manns og þáðu kaffiveitingar í tilefni dagsins. Afhjúpaður var minnisvarði um Mettu Kristjánsdóttur við Mettubúð sem var húsnæði slysavarnadeildarinnar og björgunarsveitarinnar Sæbjargar áður en…Lesa meira

true

Hálka og éljagangur

Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni er nú snjóþekja, hálka eða hálkublettir á flestum leiðum á Vesturlandi. Éljagangur er á Snæfellsnesi.Lesa meira

true

Þúsund fermetra þjónustuhús byggt við brúarsporðinn

Síðastliðinn föstudag var tekin fyrsta skóflustunga að þúsund fermetra þjónustumiðstöð í Borgarnesi þar sem fyrirhugað er að verði til húsa verslanir og veitingahús. Húsið verður reist á lóðinni Digranesgötu 4, á milli húsa Bónuss og Arionbanka næst þjóðveginum þegar ekið er inn í bæinn að sunnan. Það er Borgarland ehf. sem byggir með tilstyrk Kaupfélags…Lesa meira

true

Kammerkór Norðurlands syngur á Akranesi

Kammerkór Norðurlands heldur tónleika á Akranesi næstkomandi sunnudag, 6. maí. Tónleikarnir fara fram í safnaðarheimilinu Vinaminni. Stjórnandi kórsins er Guðmundur Óli Gunnarsson, skólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi. Hann segir Kammerkór Norðurlands um margt óvenjulegan kór. „Hann hefur verið starfandi síðan 1998 en ég hef verið stjórnandi síðan árið 2000. Upphaflega var honum ætlað að veita fólki…Lesa meira

true

Efnisgeymslan að hverfa

Íbúar á Akranesi urðu margir hverjir varir við nokkurn hávaða og drunur fyrr í dag. Bárust þær frá Sementsverksmiðjunni, þar sem starfsmenn fyrirtækisins Work North ehf. vinna að niðurrifi bygginga og búnaðar. Undanfarnar vikur hefur verið unnið að því að rífa efnisgeymslu verksmiðjunnar. Hefur Faxabraut verið lokuð frá 13. apríl vegna þessa. Ekki er annað…Lesa meira

true

Fjölmenni á fundi um tvær skipulagstillögur á Akranesi

Skipulags- og umhverfissvið Akraneskaupstaður boðaði í gær til almenns íbúafundar um skipulagsmál. Þar voru til kynningar tillögur um breytingu aðalskipulags og deiliskipulags vegna tveggja aðskildra framkvæmda í sjó fram. Annars vegar var kynnt fyrirhuguð lenging hafnargarðs og brimvarnargarðs í Akraneshöfn. Hins vegar var kynnt fyrirhuguð breyting á hafnarsvæðinu við Grenjar, en þar sækir Skaginn 3X…Lesa meira

true

Afar líflegt við Akraneshöfn þessa dagana

Mjög gott fiskerí hefur verið á miðunum við Akranes eftir að hrygningarstoppi lauk á Vestursvæði 21. apríl síðastliðinn. Aflabrögð undanfarna daga hafa verið með besta móti að sögn þeirra Alexanders Eiríkssonar og Bjarna Bragasonar sem annast löndun og sölu aflans fyrir Fiskmarkað Snæfellsbæjar. Línubáturinn Eskey kom t.d. inn til löndunar á mánudaginn með metafla í…Lesa meira