Fréttir

true

Vilja rekstraraðila að Tónbergi

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar síðastliðinn fimmtudag var tekin fyrir tillaga um að auglýsa eftir rekstraraðila til umsjónar á Tónbergi, sal í Tónlistarskóla Akraness. Bæjarráð samþykkti að auglýsa salinn til afnota fyrir áhugasama sem tækju að sér rekstur hans. Bæjarstjóra var falin úrvinnsla málsins.Lesa meira

true

Stefnir í enn einn stórviðburðinn í Brákarey

Hin árlega stórsýning Bifhjólafjelagsins Raftanna og Fornbílafjelags Borgarfjarðar verður í Brákarey í Borgarnesi laugardaginn 12. maí klukkan 13 – 17. Á þessu ári er minnst hundrað ára afmæli bílsins í Borgarnesi. Sá bíll var af Ford gerð og verða Ford bílar áberandi á sýningunni, að sögn Unnars Bjartmarssonar Rafts númer 22. „Nýjungar í ár eru…Lesa meira

true

Lions afhendir Björgunarsveitinni Klakki veglegan styrk

Lionsklúbbur Grundarfjarðar afhenti Björgunarsveitinni Klakki ágóðan af kútmagakvöldinu sem klúbburinn hélt í vetur. Upphaflega var ætlunin að sveitin fjárfesti í hjartastuðtæki sem hægt væri að nota í útköllum en ágóðinn af kútmagakvöldinu var vel rúmlega yfir því markmiði og mun nýtast til tækjakaupa. Alls var upphæðin 1.050.381 kr. og veitti Ketilbjörn Benediktsson, formaður Klakks, honum…Lesa meira

true

Karlakórinn Kári með tónleika

Það er nóg framundan hjá Karlakórnum Kára á þessu tíu ára afmælisári. Laugardaginn 5. maí verða vortónleikar í Grundarfjarðarkirkju en sérstakir gestir þar verður Grundartangakórinn undir stjórn Atla Guðlaugssonar. Kórarnir munu syngja saman og í sitthvoru lagi skemmtileg dægurlög og lofa góðri skemmtun. Svo mun kórinn halda veglega tónleika sunnudaginn 13. maí í Félagsheimilinu Klifi…Lesa meira

true

Hækur Sigríðar og myndir Áslaugar í Safnahúsi

Laugardaginn 5. maí næstkomandi verður opnuð ný sýning í Safnahúsinu í Borgarnesi. Um er að ræða sýningu á ljósmyndum Áslaugar Þorvaldsdóttur og hefur ljóðskreytan Sigríður Kristín Gísladóttir ort hækur með innblæstri frá þeim, sem verða einnig til sýnis.  Sýningin ber heitið „Spegill litrófsins“ og byggir á ljósmyndum úr lífi Áslaugar. Myndirnar eru teknar á nokkurra…Lesa meira

true

Töltgrúbban frumsýndu nýverið fyrsta atriði sitt

Hópur hestakvenna á Vesturlandi hefur nú tekið sig saman og stofnað töltgrúbbu þar sem konurnar æfa saman undir handleiðslu Ragnheiðar Samúelsdóttur reiðkennara. Aðal áherslan innan grúbbunnar er að hittast og hafa gaman saman og svo geta þær sem vilja tekið þátt í að sýna hóptölt á ýmsum viðburðum hestamanna á Vesturlandi. Þrátt fyrir að grúbban…Lesa meira

true

107% verðmunur á bílatryggingum

Mjög mikill verðmunur er á hæsta og lægsta verði fyrir bílatryggingar í nýjustu könnun Verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands sem kynnt var í dag. Í könnuninni kemur fram að 107% munur er á milli hæsta og lægsta tilboðsins í ábyrgðartryggingu og kaskótryggingu. Lægsta verðið var hjá VÍS, 129.559 kr. fyrir ábyrgðartryggingu og 43.631 kr. fyrir kaskótryggingu, samtals…Lesa meira

true

Opnuðu kosningaskrifstofu í Borgarbyggð

Sjálfstæðisflokkurinn í Borgarbyggð opnaði kosningaskrifstofu að Borgarbraut 61 í Borgarnesi síðastliðinn sunnudag. Að sögn Lilju Bjargar Ágústsdóttur oddvita framboðslistans var góð stemning, fín mæting og jákvæðni í loftinu. Á meðfylgjandi mynd eru þær Silja Eyrún Steingrímsdóttir sem skipar annað sætið, Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir ráðherra og Lilja Björg Ágústsdóttir oddviti.Lesa meira

true

Verkefnið Hjólað í vinnuna hafið

Hið árlega átak “Hjólað í vinnuna,” stendur yfir dagana 2. – 22. maí og var því formlega ýtt úr vör í morgun. Verkefnið höfðar til starfsmanna á vinnustöðum landsins og hefur þátttakan margfaldast á þeim 15 árum sem liðin eru frá því að verkefnið fór af stað. Það er Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands sem stendur…Lesa meira