Fréttir

true

Vesturlandsmót í boccia verður spilað í Grundarfirði

Vesturlandsmót í boccía fer fram laugardaginn 12. maí næstkomandi í Grundarfirði. Mótið hefst klukkan 12 og fer fram í íþróttahúsi staðarins. Keppt verður í fjórum, fjögurra liða riðlum, alls sextán lið. Þátttökutilkynningar berist á netfangið flemmingj@simnet fyrir 4. maí næstkomandi. -fréttatilkynningLesa meira

true

Fjórir milljarðar í viðbótarframlög til brýnna vegaframkvæmda

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum á föstudaginn tillögu Sigurðar Inga Jóhannssonar samgönguráðherra og Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um að veita fjögurra milljarða króna framlagi til brýnna vegaframkvæmda árið 2018 úr almennum varasjóði sem fjármála- og efnahagsráðherra fer með. Ekki er enn ákveðið hvaða verkefni verður ráðist í. „Afar brýnt er að verja þau verðmæti sem liggja…Lesa meira

true

Skóflustunga tekin að nýrri þjónustumiðstöð í Borgarnesi

Síðastliðinn föstudag var tekin fyrsta skóflustunga að þúsund fermetra þjónustumiðstöð í Borgarnesi þar sem fyrirhugað er að verði til húsa verslanir og veitingahús. Húsið verður reist á lóðinni Digranesgötu 4, á milli húsa Bónuss og Arionbanka næst þjóðveginum þegar ekið er inn í bæinn að sunnan. Það er Borgarland ehf. sem byggir með tilstyrk Kaupfélags…Lesa meira

true

Kalla eftir dæmum um stórhækkun húsaleigu

VR hefur auglýst eftir dæmum og gögnum frá fólki sem hefur orðið fyrir óeðlilegri hækkun húsaleigu. Fullum trúnaði er heitið. „Á undanförnum misserum hefur heyrst af ótrúlegum dæmum um svívirðilega hækkun á húsaleigu fólks sem getur ekki hönd fyrir höfuð borið á vægðarlausum leigumarkaði,“ segir í tilkynningu. „Við hjá VR viljum berjast af alefli gegn…Lesa meira

true

Norðurlandamót stúlkna í skák

Norðurlandamót stúlkna í skólaskák fer nú fram á Hótel Borgarnesi. Það hófst á föstudaginn en lýkur í kvöld með verðlaunaafhendingu. Alls taka 33 stúlkur þátt, á aldrinum 8-10 ára, og þar af eru níu íslenskar. Gunnlaugur Júlíusson, sveitarstjóri Borgarbyggðar, setti mótið og lék fyrsta leikinn fyrir Batel Goitom Haile, sem tefldi fyrstu skák við Guðrúnu…Lesa meira

true

Kerfisgalli kom upp þegar bæjarfélagið opnaði bókhald sitt

Akraneskaupstaður er í hópi sveitarfélaga sem stíga nær framtíðinni og opna bókhald fyrir almenningi. „Með opnu bókhaldi er hægt að skoða og sækja fjárhagslegar upplýsingar um Akraneskaupstað beint úr bókhaldskerfi bæjarins. Verkefnið sem hér um ræðir er unnið í samvinnu við ráðgjafasvið KPMG á Íslandi og er því skipt upp í tvo þætti, þ.e. tekjur…Lesa meira

true

Birkir Blær sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna

Framlag Menntaskólans á Akureyri, þar sem Birkir Blær Óðinsson söng lagið I put a spell on you, eftir Screamin’ Jay Hawkins, bar sigur úr býtum í Söngkeppni framhaldsskólanna í gærkvöldi. Keppnin fór fram í Íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi og var engu til sparað til að gera keppnina eins glæsilega og raun bar vitni. Um…Lesa meira

true

Skólp í sjóinn við Bjarnarbraut

Síðastliðinn föstudag kom upp bilun þegar unnið var við tengingu og gangsetningu á fráveitudælustöð (brunni) við Bjarnarbraut í Borgarnesi. Vegna þessa þurfti um helgina að setja fráveituna á yfirfall við Bjarnarbraut; „sem er bagalegt þar sem útrásarrörið er við göngubrú og útsýnispall við útrásina,“ segir í tilkynningu á vef Borgarbyggðar. „Á mánudagsmorgun verður varahlutnum komið…Lesa meira

true

Frábær atriði á Söngkeppni framhaldsskólanna í kvöld

Söngkeppni framhaldsskólanna fer fram í Íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi í kvöld. Sýnt verður beint frá keppninni á RUV. Ísólfur Haraldsson og hans fólk hjá Vinum hallarinnar sjá um undirbúning og skipulagningu. “Það stefnir í frábæra skemmtun í kvöld. Unga fólkið sem þarna kemur fram er með alveg frábær atriði og þetta verður hin besta…Lesa meira

true

Betra að sama höndin eigi og reki skólann

Samkomulag hefur náðst um kaup Eyja- og Miklaholtshrepps á hlutum Borgarbyggðar, Dalabyggðar og Snæfellsbæjar í húseignum Laugargerðisskóla. Skólinn var á sínum tíma rekinn af sveitarfélögunum fjórum en undanfarin ár hefur reksturinn verið í höndum Eyja- og Miklaholtshrepps. Nemendur skólans koma úr Eyja- og Miklaholtshreppi og gamla Kolbeinsstaðahreppi, sem nú tilheyrir Borgarbyggð. Um skólagöngu þeirra í…Lesa meira