
Útboð jarðvinnu við nýjan meðferðarkjarna nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík hefur verið auglýst og framkvæmdir munu hefjast í sumar. Meðferðarkjarninn er stærsta bygging framkvæmdarinnar og mun gjörbreyta allri aðstöðu fyrir sjúklinga, starfsfólk og aðra sem tengjast starfsemi sjúkrahússins. Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir útboðið risastóran og langþráðan áfanga í uppbyggingu Landspítalans við Hringbraut: „Nú styttist…Lesa meira








