
Söngkeppni framhaldsskólanna verður haldin næstkomandi laugardag, 28. apríl, í Íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Alls munu 24 framhaldsskólar senda atriði til keppni, þar af þrír framhaldsskólar af Vesturlandi; Menntaskóli Borgarfjarðar, Fjölbrautaskóli Snæfellinga og Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi. Hljómsveitin Pési og breiðnefirnir er fulltrúi Menntaskóla Borgarfjarðar. Sveitina skipa Þórður Brynjarsson, Snæþór Bjarki Jónsson, Pétur Snær Ómarsson…Lesa meira








