Fréttir

true

Annir hjá björgunarsveitum víða um land í gær

Björgunarsveitir víða um land þurftu eftir hádegi í gær að sinna nokkrum útköllum. Kallaðar voru út sveitir vegna tveggja vélarvana báta, annar var skammt frá Akranesi. Í báðum tilfellum tókst áhöfn bátanna að leysa málið á farsælan hátt áður en björgunarbátar komu á vettvang og var því aðstoð afþökkuð. Á fjórum stöðum á landinu voru…Lesa meira

true

Keppni í stærðfræði stendur nú yfir

Árleg stærðfræðikeppni fyrir grunnskóla á Vesturlandi hófst klukkan 14 í dag í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Keppendur eru 134 úr áttunda, níunda og tíunda bekk frá sex grunnskólum af Vesturlandi. Að þessu sinni taka þátt nemendur frá Grundaskóla og Brekkubæjarskóla á Akranesi, Grunnskólanum í Borgarnesi, Grunnskóla Borgarfjarðar, Grunnskóla Snæfellsbæjar og Auðarskóla í Búðardal. Þegar keppendur…Lesa meira

true

Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps flytur smellina hans Bó

Í kvöld, föstudaginn 16. mars klukkan 20:30, mun Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps troða upp með líflega tónleika í Tónbergi á Akranesi. Kórinn þekkja margir, ekki síst eftir þátttöku hans og sigur í keppninni Kórar Íslands sem fram fór á Stöð2 á síðasta ári. Tónleikarnir í Tónbergi nefnast „Bó og meira til“. Höskuldur Birkir Erlingsson formaður kórsins útskýrir…Lesa meira

true

Uppsláttur hafinn fyrir nýtt fiskvinnsluhús G.Run

Nýverið hófu starfsmenn Ístaks vinnu við uppslátt á nýrri fiskvinnslu Guðmundar Runólfssonar hf. í Grundarfirði. Fjöldi starfsmanna kemur að þessu stóra verkefni og verður væntanlega mikill hamagangur í öskjunni á næstu vikum og mánuðum. Eins og fram hefur komið er stefnt á að hefja vinnslu í húsinu í upphafi nýs árs.Lesa meira

true

VR leggur til að starfsmenn N1 fái sömu hækkun og forstjórinn

Stjórn VR hefur samþykkt að leggja fram tillögu á aðalfundi N1 um að öllum starfsmönnum N1 skuli tryggð sama kjarahækkun og forstjóri félagsins fékk, en laun hans voru 5,8 m.kr. á mánuði á síðasta ári og hækkuðu þau um 20,6% á milli ára eða um rúma milljón krónur á mánuði. „Sem hluthafi í N1 getur…Lesa meira

true

Stóri fundardagur SSV er framundan

Næstkomandi mánudag verður hinn svokallaði stóri fundardagur hjá sveitarstjórnarfólki á Vesturlandi. Þá verður aðalfundar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi haldinn á Hótel Hamri í Borgarnesi. Fyrr um daginn verða einnig aðalfundir Starfsendurhæfingar Vesturlands, Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands, Heilbrigðisnefndar Vesturlands og Sorpurðunar Vesturlands. Fundahöld hefjast klukkan 9:30, en aðalfundur SSV klukkan 15. Þessi samþjöppun funda er hugsuð í hagræðingarskini…Lesa meira

true

Nemendum níunda bekkjar ekki skylt að þreyta könnunarpróf

Nemendum í 9. bekk grunnskóla verður ekki gert skylt að taka að nýju samræmd próf í ensku og íslensku, en framkvæmd beggja þessara prófa mistóks eins og komið hefur fram í fréttum. Nemendum gefst hins vegar kostur á að þreyta að nýju sérstök könnunarpróf í þessum námsgreinum til að meta stöðu sína. Niðurstaðan verður þó…Lesa meira

true

Kynntu lista Framsóknar og frjálsra á Akranesi

Elsa Lára Arnardóttir fyrrverandi alþingismaður og núverandi skrifstofustjóri þingflokks Framsóknarflokksins leiðir lista Framsóknar og frjálsra í bæjarstjórnarkosningunum á Akranesi í vor. Listinn var samþykktur á fundi í gærkvöldi. Ragnar Baldvin Sæmundsson verslunarmaður skipar annað sæti listans og Liv Åse Skarstad húsmóðir þriðja sætið. Framboðið á nú einn bæjarfulltrúa, Ingibjörgu Pálmadóttur hjúkrunarfræðing og fv. ráðherra, sem…Lesa meira

true

Rósa Marinósdóttir sæmd gullmerki UMFÍ

Sambandsþing Ungmennasambands Borgarfjarðar var haldið á Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri síðastliðið miðvikudagskvöld. Í tilkynningu frá sambandinu kemur fram að þingið hafi verið gott og fundarmenn farið sáttir heim. Jóhann Steinar Ingimundarson úr stjórn UMFÍ og Auður Inga Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri UMFÍ mættu á þingið. Jóhann veitti Kristjáni Gíslasyni starfsmerki UMFÍ fyrir gott starf í þágu hreyfingarinnar…Lesa meira

true

Ný lögreglubifreið búin hraðamyndavél

Lögreglan á Vesturlandi tók í liðinni viku í gagnið nýja ómerkta bifreið. Bifreiðin er búin hraðamyndavél og er þetta önnur slík á landinu með sambærilegum búnaði. Hin er á höfuðborgarsvæðinu. „Þetta er gríðarlega góð viðbót fyrir okkur en við erum eina embættið á landsbyggðinni með svona búnað,“ segir Ólafur Guðmundsson, lögregluþjónn í samtali við Skessuhorn.…Lesa meira