Fréttir

true

Hundrað bóka áskorun í Grunnskóla Borgarfjarðar

Nemendur á miðstigi í Grunnskóla Borgarfjarðar tóku þátt í lestaráskoruninni 100 bækur fyrir síðustu jól. Áskorunin er lestaráskorun þar sem nemendur eiga að lesa 100 bækur innan ákveðins tíma. Þrír nemendur af miðstigi Grunnskóla Borgarjarðar náðu markmiðinu og voru tveir nemendur dregnir út með bestan árangur á landsvísu og fékk þriðji nemandinn viðurkenningarskjal. Ernir Ívarsson…Lesa meira

true

Fullt í hvalaskoðunarferðir sem hægt hefur verið að fara

Hvalaskoðunarbáturinn Íris frá Láki Tours í Grundarfirði var á leið til hafnar í Ólafsvíkurhöfn úr skoðunarferð á fimmtudaginn þegar ljósmyndari smellti af þessari mynd. Láki Tours gerir alla jafnan ekki út frá Ólafsvík á þessum tíma árs, en fer nú frá Ólafsvík þar sem hvalurinn hefur fært sig um set. Í byrjun apríl mun svo…Lesa meira

true

Rafmagnstruflanir í nótt

Borgfirðingar búsettir í Reykholtsdal, Hvítársíðu og Þverárhlíð mega búast við rafmagnstruflunum í nótt, aðfaranótt föstudagsins 16. mars vegna vinnu við dreifikerfið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá RARIK. Gert er ráð fyrir því að truflanirnar standi yfir frá kl. 00:30 til 06:00. Á þessu tímabili er mögulegt að rafmagn komi á í stuttan tíma í…Lesa meira

true

Með allt á hreinu er vel heppnuð og skemmtileg sýning

Söngleikurinn Með allt á hreinu var frumsýndur fyrir troðfullu húsi í Bíóhöllinni á Akranesi á laugardagskvöld. Það er leiklistarklúbbur Nemendafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands sem færir söngleikinn á fjalirnar í samstarfi við Tónlistarskólann á Akranesi. Leikstjóri sýningarinnar er Gunnar Björn Guðmundsson en önnur verk eru öll í höndum nemenda. Uppsetningin er einstaklega metnaðarfull og er fagmannlega að…Lesa meira

true

Fyrsti grjótbrjótur sinnar tegundar

TS Vélaleiga í Ólafsvík festi á dögunum kaup á nýjum Xcentric grjótbrjóti. Það er Vélafl í Hafnarfirði sem flytur þessi tæki inn og er þessi brjótur sá fyrsti sinnar tegundar hér á landi. Brjóturinn mylur niður efni, stórt sem smátt, í sex stærðarflokka allt frá 20 millimetrum og upp í 150 millimetra. Hann er fjögur…Lesa meira

true

Þrettán tonn af ryki á tveimur nóttum

Í frétt frá Speli, sem á og rekur Hvalfjarðargöngin, kemur fram að tveir vélsópar sem verið hafa að störfum undanfarnar tvær vikur í göngunum hafa tekið 18 tonn af fíngerðu ryki af gólfi ganganna. Þetta er að hluta til ryk sem safnast hefur fyrir á aðeins einni viku. Ryk þetta berst í göngin af vegum…Lesa meira

true

Skallagrímur lyfti sér upp í fjórða sæti

Skallagrímur lyfti sér upp í fjórða sæti Domino‘s deildar kvenna með sannfærandi sigri á Breiðabliki í gærkvöldi. Skallagrímsliðið hafði yfirhöndina allan leikinn og vann að lokum stórt, 65-85. Skallagrímskonur byrjuðu betur og tóku síðan öll völd á vellinum um miðjan upphafsfjórðunginn. Breiðablik átti erfitt uppdráttar og Skallagrímur leiddi örugglega eftir fyrsta leikhluta, 25-10. Heimaliðið náði…Lesa meira

true

„Eftirspurnin eftir poddunum þreföld á við aðra gistingu“

Fyrir þremur árum var gerð breyting á rekstri ferðaþjónustunnar í Fossatúni í Borgarfirði. Horfið var frá hefðbundnum rekstri tjaldsvæðis og þess í stað sett upp svokölluð timburtjöld, eða poddar, upphituð smáhýsi með nettengingu, rafmagni og öllu tilheyrandi. Síðan þá hefur poddunum fjölgað jafnt og þétt og nýverið var níu slíkum til viðbótar bætt við. Eru…Lesa meira

true

Snæfell sigraði botnliðið

Snæfell sigraði botnlið Njarðvíkur, 81-74, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í Stykkishólmi í gærkvöldi. Snæfellskonur náðu undirtökunum snemma leiks, leiddu 15-5 um miðjan upphafsfjórðunginn og 29-20 að honum loknum. Þær voru áfram sterkari framan af öðrum leikhluta og náðu 13 stiga forskoti áður en hann var hálfnaður, 38-25. Þá tóku Njarðvíkurkonur á sig…Lesa meira

true

Segja frá göngu sinni um Jakobsveginn

Þær Jónína Hólmfríður Pálsdóttir og Guðlín Erla Kristjánsdóttir fóru saman í ferð um Jakobsveginn síðastliðið haust. Jakobsvegur eða Vegur heilags Jakobs er ein þekktasta pílagrímaleið í Evrópu. Hann heitir á galisísku O camiño de Santiago, á spænsku El Camino de Santiago og frönsku Chemins de Saint-Jacques. Jakobsvegurinn endar í dómkirkjunni í Santiago de Compostela í…Lesa meira