Fréttir

true

Akraneskaupstaður veitir styrki til menningar og íþrótta

Bæjarráð Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi sínum um miðjan febrúar stykrveitingar úr sjóði atvinnu-, íþrótta- og menningarmála. Alls voru 35 styrkir veittir að þessu sinni að heildarverðmæti 7,7 milljónir króna. Hæstu einstöku styrkirnir hljóða upp á 500 þúsund krónur. Veitast þeir Grundaskóla vegna söngleiks, leiklistarklúbbi NFFA, einnig vegna söngleiks og til Munins kvikmyndagerðar vegna örmynda úr…Lesa meira

true

Ráðherra ætlar að standa vörð um sjálfstæði lítilla háskóla

Bjarni Jónsson varaþingmaður VG í Norðvesturkjördæmi sendi nýverið mennta- og menningarmálaráðherra fyrirspurn um stöðu og sjálfstæði háskóla á landsbyggðinni. Spurði hann hvort ráðherra hygðist beita sér fyrir því að eyða óvissu sem ríkt hefur undanfarin ár um stöðu og sjálfstæði Háskólans á Hólum, Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri og Háskólans á Bifröst og styrkja og tryggja…Lesa meira

true

Styttist í vatnaveiðina

Silungsveiði í vötnum hefst formlega um næstu mánaðamót. Á páskadag, sunnudaginn 1. apríl, verður opnað formlega fyrir veiði í nokkrum vötnum sem seld eru í gegnum Veiðikortið. Í tilkynningu segir að veturinn hafi verið fremur kaldur en þó sé ís farinn að hopa á mörgum vötnum. „Það eru margir skemmtilegir kostir í boði fyrir þá…Lesa meira

true

Skrifað undir viljayfirlýsingu um byggingu 33 íbúða á Akranesi

Fyrir réttri klukkustund var undirrituð viljayfirlýsing milli Bjargs fasteignafélags og Akraneskaupstaðar um byggingu 33 leiguíbúða á Akranesi. Íbúðirnar munu rísa á Asparskógum 12, 14 og 16 á Akranesi. Gert er ráð fyrir því að framkvæmdir geti hafist í sumar og að fyrstu íbúðirnar verði tilbúnar á næsta ári. Bjarg er húsnæðissjálfseignarstofnun sem stofnuð var að…Lesa meira

true

Skrifað undir viljayfirlýsingu um húsnæðisfélag

Síðdegis í dag mun Bjarg fasteignafélag undirrita viljayfirlýsingu við Akraneskaupstað um að reistar verði 33 íbúðir í Asparskógum 12, 14 og 16 á Akranesi.  Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist síðsumars og að íbúðirnar verði afhentar á fyrsta ársfjórðungi næsta árs. Bjarg fasteignafélag er húsnæðissjálfseignarstofnun sem stofnuð var af verkalýðshreyfingunni.  Félagið er rekið án…Lesa meira

true

Borgnesingar hófu bikar á loft

Liðsmenn Skallagríms hófu deildarmeistarabikar 1. deildar karla á loft að loknum leik liðsins gegn Vestra í Borgarnesi síðastliðinn föstudagskvöld. Deildarmeistaratitlinum fylgir farseðill í Domino‘s deildina, deild þeirra bestu. Þar munu Skallagrímsmenn leika að nýju næsta vetur. Eins og vænta mátti fjölmenntu Borgnesingar á völlinn á föstudag. Fullt var út úr dyrum og mikil stemning á…Lesa meira

true

Byrjað að reisa nýja frístundamiðstöð við Garðavöll

Skóflustunga að nýju frístundahúsi Golfklúbbsins Leynis og Akraneskaupstaðar var tekin í janúar og á fimmtudagsmorgun í liðinni viku voru fyrstu einingarnar hífðar á sinn stað. „Framkvæmdirnar ganga vel. Veðrið í febrúar tafði okkur aðeins en góður gangur hefur verið síðan hægt var að byrja aftur. Þrátt fyrir smávægilegar tafir er verkið á áætlun, bæði í…Lesa meira

true

Fyrsti húsgagnasmiðurinn í langan tíma til að útskrifast frá FVA

Katarína Stefánsdóttir er fyrsti nemandinn sem lærir húsgagnasmíði við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í fjölmörg ár, en hún mun útskrifast núna á vordögum. Katarína hefur búið á Akranesi undanfarin ellefu ár en rætur hennar liggja þar. Auk þess að vera í fullu námi við FVA starfar Katarína hjá ÞÞÞ á Akranesi og á Lesbókinni, lærir…Lesa meira

true

Niðurrif mannvirkja Sementsverksmiðjunnar á áætlun

Starfsmenn verktakafyrirtækisins Work North ehf. hófu sem kunnugt er niðurrif á byggingum og búnaði Sementsverksmiðjunnar á Akranesi á áramótum. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar, ásýnd svæðisins breyst töluvert og mun áfram taka breytingum næstu mánuði. Að sögn Alfreðs Alfreðssonar, rekstrarstjóra áhaldahúss Akraneskaupstaðar, gengur niðurrifið vel og verkið er allt saman á áætlun.…Lesa meira

true

Aukinn jöfnuður og vaxtalækkun verður sett á oddinn

„Það er að eiga sér stað lýðræðisbylting. Nú er grasrótin að rísa upp og ætlar að láta til sín taka. Nú munu verkin því verða látin tala. Enda urðu áhrifin á markaði afar eftirtektarverð þegar ljóst var að Sólveig Anna Jónsdóttir og félagar hennar höfðu unnið stórsigur í stjórnarkjöri í Eflingu. Hlutabréfavísitala í Kauphöllinni sýndi…Lesa meira