Fréttir

true

Skrifað undir viljayfirlýsingu um byggingu 33 íbúða á Akranesi

Fyrir réttri klukkustund var undirrituð viljayfirlýsing milli Bjargs fasteignafélags og Akraneskaupstaðar um byggingu 33 leiguíbúða á Akranesi. Íbúðirnar munu rísa á Asparskógum 12, 14 og 16 á Akranesi. Gert er ráð fyrir því að framkvæmdir geti hafist í sumar og að fyrstu íbúðirnar verði tilbúnar á næsta ári. Bjarg er húsnæðissjálfseignarstofnun sem stofnuð var að…Lesa meira

true

Skrifað undir viljayfirlýsingu um húsnæðisfélag

Síðdegis í dag mun Bjarg fasteignafélag undirrita viljayfirlýsingu við Akraneskaupstað um að reistar verði 33 íbúðir í Asparskógum 12, 14 og 16 á Akranesi.  Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist síðsumars og að íbúðirnar verði afhentar á fyrsta ársfjórðungi næsta árs. Bjarg fasteignafélag er húsnæðissjálfseignarstofnun sem stofnuð var af verkalýðshreyfingunni.  Félagið er rekið án…Lesa meira

true

Borgnesingar hófu bikar á loft

Liðsmenn Skallagríms hófu deildarmeistarabikar 1. deildar karla á loft að loknum leik liðsins gegn Vestra í Borgarnesi síðastliðinn föstudagskvöld. Deildarmeistaratitlinum fylgir farseðill í Domino‘s deildina, deild þeirra bestu. Þar munu Skallagrímsmenn leika að nýju næsta vetur. Eins og vænta mátti fjölmenntu Borgnesingar á völlinn á föstudag. Fullt var út úr dyrum og mikil stemning á…Lesa meira

true

Byrjað að reisa nýja frístundamiðstöð við Garðavöll

Skóflustunga að nýju frístundahúsi Golfklúbbsins Leynis og Akraneskaupstaðar var tekin í janúar og á fimmtudagsmorgun í liðinni viku voru fyrstu einingarnar hífðar á sinn stað. „Framkvæmdirnar ganga vel. Veðrið í febrúar tafði okkur aðeins en góður gangur hefur verið síðan hægt var að byrja aftur. Þrátt fyrir smávægilegar tafir er verkið á áætlun, bæði í…Lesa meira

true

Fyrsti húsgagnasmiðurinn í langan tíma til að útskrifast frá FVA

Katarína Stefánsdóttir er fyrsti nemandinn sem lærir húsgagnasmíði við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í fjölmörg ár, en hún mun útskrifast núna á vordögum. Katarína hefur búið á Akranesi undanfarin ellefu ár en rætur hennar liggja þar. Auk þess að vera í fullu námi við FVA starfar Katarína hjá ÞÞÞ á Akranesi og á Lesbókinni, lærir…Lesa meira

true

Niðurrif mannvirkja Sementsverksmiðjunnar á áætlun

Starfsmenn verktakafyrirtækisins Work North ehf. hófu sem kunnugt er niðurrif á byggingum og búnaði Sementsverksmiðjunnar á Akranesi á áramótum. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar, ásýnd svæðisins breyst töluvert og mun áfram taka breytingum næstu mánuði. Að sögn Alfreðs Alfreðssonar, rekstrarstjóra áhaldahúss Akraneskaupstaðar, gengur niðurrifið vel og verkið er allt saman á áætlun.…Lesa meira

true

Aukinn jöfnuður og vaxtalækkun verður sett á oddinn

„Það er að eiga sér stað lýðræðisbylting. Nú er grasrótin að rísa upp og ætlar að láta til sín taka. Nú munu verkin því verða látin tala. Enda urðu áhrifin á markaði afar eftirtektarverð þegar ljóst var að Sólveig Anna Jónsdóttir og félagar hennar höfðu unnið stórsigur í stjórnarkjöri í Eflingu. Hlutabréfavísitala í Kauphöllinni sýndi…Lesa meira

true

Samfylkingin á Akranesi kynnir framboðslista sinn

Framboðslisti Samfylkingarinnar fyrir kosningarnar til bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar í vor var samþykktur á félagsfundi í gærkveldi. Ingibjörg Valdimarsdóttir, sem verið hefur oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn síðastliðið kjörtímabil, stígur til hliðar og skipar nú heiðurssæti listans. Nýr oddviti listans er Valgarður Lyngdal Jónsson kennari og bæjarfulltrúi og nýir frambjóðendur skipa annað og þriðja sæti. Í öðru sæti…Lesa meira

true

Írskir vetrardagar hefjast á Akranesi í dag

Í dag hefjast Írskir vetrardagar í þriðja sinn á Akranesi og standa fram á sunnudag. Markmið hátíðarinnar er að halda í heiðri tengingu Akurnesinga við írska arfleifð. Hátíðin hefst á kvöldstund með Elly og Margréti Blöndal í Stúkuhúsinu klukkan 20 í kvöld. Margrét Blöndal skrifaði ævisögu Ellyar og ætlar hún að segja frá leit sinni…Lesa meira