Fréttir

true

Fékk 37 kílóa stórþorsk á handfærin

Guðmundur Elíasson sjómaður á Akranesi rær á Flugöldunni ST-54. Á mánudaginn var hann á handfæraveiðum norðan við Syðra-Hraunið á Faxaflóa og fékk þá 37 kílóa þorsk. „Þetta er stærsti fiskur sem ég hef veitt og var því í hálfgerðum vandræðum með að ná honum um borð. Þetta var hrygna og þar að auki full af…Lesa meira

true

Minnast Þorsteins frá Hamri

Sunnudaginn 18. mars klukkan 15-17 verður dagskrá í Iðnó í Reykjavík til minningar um öndvegisskáldið Þorstein frá Hamri, sem lést 28. janúar síðastliðinn. Þar munu Eiríkur Guðmundsson, Elísabet Þorgeirsdóttir, Guðrún Nordal, Lilja Sigurðardóttir, Njörður P. Njarðvík og Vésteinn Ólason fjalla um skáldið frá ýmsum sjónarhornum. Lesið verður úr ljóðum Þorsteins og ennfremur mun Kolbeinn sonur…Lesa meira

true

Byssusýning ársins á Stokkseyri

Árleg byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri verður haldin næstkomandi laugardag og sunnudag frá kl. 11–18 báða dagana í húsakynnum Veiðisafnsins, Eyrarbraut 49 á Stokkseyri. Gallery Byssur/ Byssusmiðju Agnars sýnir úrval skotvopna og búnað til skotveiða ásamt sjónaukum og aukabúnaði, til sýnis og sölu. Fjölbreytt úrval skotvopna verður til sýnis, svo sem haglabyssur, rifflar, skammbyssur, herrifflar ásamt…Lesa meira

true

Inga María komin í úrslit í alþjóðlegri lagahöfundakeppni

Tónlistarkonan Inga María Hjartardóttir frá Akranesi er komin í úrslit í alþjóðlegri lagahöfundakeppni, International Songwriting Competition. Árlega senda þúsundir lagahöfunda lög í keppnina í von um að verða valdir lagahöfundar ársins. Í þetta skiptið var slegið aðsóknarmet, þar sem 16 þúsund manns sendu lög í keppnina. Aðeins tvö prósent þeirra sem sendu lög í keppnina…Lesa meira

true

Rollukarlar Borgarfjarðarmeistarar

Aðalsveitakeppni Briddsfélags Borgarfjarðar lauk í gær með þátttöku sjö sveita. Keppnin var æsispennandi til síðasta spils, þegar sveit Guttanna tapaði óvænt og hleypti Rolluköllunum uppfyrir sig. Sveit Rollukallanna skipa þeir Jón bóndi, Gísli bóndi, Ólafur bóndi og Baldur bóndi. Hlutu þeir 151,4 stig. Í öðru sæti voru eins og áður segir Guttarnir, en sveitina skipuðu…Lesa meira

true

Einungis eftir að löggilda nýja hafnarvog

Í liðinni viku var lokið við endurgerð hafnarvogarinnar við Rifshöfn á Snæfellsnesi. Undirbúnings- og jarðvegsvinna fór fram á síðasta ári, eins og fram kom í frétt Skessuhorns. Nýja vigtin sem nú er komin á sinn stað er 21 meter á lengd og 3,35 metrar á breidd. Hún vigtar 100 tonn. Ekki er þó búið að…Lesa meira

true

Vinnsla á síðasta loðnufarminum stendur nú yfir

Búið er að landa síðasta loðnufarmi þessarar vertíðar á Akranesi. Uppsjávarveiðiskip HB Granda; Víkingur AK og Venus NS eru nú bæði haldin á kolmunnaveiðar vestur af Írlandi, Víkingur fór í gær og Venus í morgun. Þar hefur undanfarna daga verið góð kolmunnaveiði. Nú er verið að vinna úr tvö þúsund tonna loðnuafla Venusar á Akranesi…Lesa meira

true

Meistaranám í sjávarbyggðafræði hefur göngu sína í haust

Ný námsleið á meistarastigi, Sjávarbyggðafræði, hefur göngu sína við Háskólasetur Vestfjarða næsta haust og hefur fjármögnun þess verkefnis nú verið tryggð. Gert er ráð fyrir að um 20 nemendur innritist árlega. Sjávarbyggðafræði verður þverfræðilegt nám sem byggir á inntaki og aðferðum félagsfræði, hagfræði, landfræði og skipulagsfræði. Námið er fyrsta sérhæfða námsleiðin í byggðafræði sem boðið…Lesa meira

true

Nemendur Auðarskóla gerðu góða hluti í glímu um helgina

Grunnskólamót í glímu var haldið í Reykjanesbæ um liðna helgi. Á vefsíðu Glímusambands Íslands segir að mótið hafi gengið vel fyrir sig og fóru keppendur ánægðir heim. Svana Hrönn Jóhannsdóttir, nýkjörin formaður Glímusambands Íslands, var mótsstjóri. Nemendur úr Auðarskóla í Búðardal gerðu mjög góða hluti á mótinu og fóru heim með fimm verðlaun. Þar af…Lesa meira

true

Lögheimili eignamiðlun byrjar starfsemi á Akranesi

„Kæru Skagamenn! Ég, Heimir Bergmann, er löggiltur fasteigna- og skipasali og hef starfað við fasteignasölu á höfuðborgarsvæðinu fá árinu 2006 með farsælum árangri. Það er mér því mikill heiður að kynna til leiks nýja fasteignasölu á Akranesi, Lögheimili eignamiðlun að Skólabraut 26, sem opnuð verður á Akranesi um næstu helgi. Hjá Lögheimili starfa Heimir Bergmann…Lesa meira