Fréttir

true

Lokað um Kjalarnes, Bröttubrekku og Fróðárheiði

Lokað hefur verið fyrir umferð um Kjalarnes síðan árla morguns. Þá eru Brattabrekka og Fróðárheiði einnig lokaðar. Á vefsíðu Vegagerðarinnar segir enn fremur að miklar líkur séu á því að loka þurfi vegum á Snæfellsnesi, Vestfjörðum, Norðurlandi og um Mosfellsheiði í dag vegna óveðurs. Gul viðvörun hefur verið gefin út af Veðurstofu Íslands og nær…Lesa meira

true

Margar íbúðir í byggingu á Akranesi og frekari uppbygging framundan

Nýverið voru auglýstar til umsóknar tólf fjölbýlishúsalóðir og átta par- og raðhúsalóðir í Skógarhverfi 1 og 2 á Akranesi, til byggingar á samtals 178 íbúðum. Alls bárust 44 umsóknir sem náðu til sex rað- og parhúsalóða og átta fjölbýlishúsalóða. Þar að auki eru rúmlega 200 íbúðir í byggingu á Akranesi nú þegar og 130 íbúðir…Lesa meira

true

Starfsmannabúðir gætu risið tímabundið á Akranesi

Auglýst hefur verið breyting á deiliskipulagi Flóahverfis á Akranesi. Í breytingunni felst meðal annars að veitt verður tímabundin heimild til að reisa starfsmannabúðir á fimm lóðum. Er með henni komið til móts við óskir verktakafyrirtækis sem vill reisa þar slíkar búðir. Flóahverfi er skilgreint sem athafnasvæði og ekki heimild fyrir starfsmannabúðum þar í gildandi skipulagi.…Lesa meira

true

Valdís Þóra leikur meðal þeirra bestu

Valdís Þóra Jónsdóttir kylfingur frá Akranesi tryggði sér keppnisrétt í ISPS mótinu á LPGA mótaröðinni, sterkustu mótaröð í heimi, með frábærri spilamennsku á úrtökumóti í Ástralíu. Eitt hundrað kylfingar tóku þátt í mótinu og aðeins þrjú sæti voru í boði. Valdís Þóra lék á 69 höggum, þremur undir pari, rétt eins og þær Kiwi Liv…Lesa meira

true

Fyrirlestur um Pilt og stúlku í Safnahúsi fimmtudagskvöld

Már Jónsson mun fjalla um fyrstu útgáfu Pilts og stúlku eftir Jón Thoroddsen á fyrirlestri í Safnahúsi Borgarfjarðar fimmtudaginn 15. febrúar klukkan 20:00. „Í ár eru liðin 200 ár frá fæðingu rithöfundarins Jóns Thoroddsen sem var á sínum tíma sýslumaður Borgfirðinga og bjó á Leirá. Jón er kunnastur fyrir að hafa skrifað fyrstu íslensku skáldsöguna,…Lesa meira

true

Víða er þæfingsfærð á vegum

Snjóþekja eða þæfingsfærð er á vegum á Vesturlandi og víða éljagangur eða snjókoma. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að nú er ófært í nágrenni Arnarstapa á Snæfellsnesi en vegurinn verður hreinsaður um kl. 12.00. Athygli er vakin á því að spá fyrir daginn er slæm, víða snjókoma og hvassviðri.Lesa meira

true

Rangt eftir haft í frétt Fréttablaðsins

Í Fréttablaðinu og Vísi í dag er lítil frétt sem byggir á símtali frá í gær sem blaðamaður Fréttablaðsins átti við Magnús Magnússon ritstjóra Skessuhorns í tilefni 20 ára afmælis blaðsins. Þar var ranglega haft eftir ritstjóranum og þarfnast leiðréttingar. Í fréttinni segir; „Skessuhorn er eitt eftir þeirra blaða sem gefin hafa verið út á…Lesa meira

true

Rauði krossinn gefur skyndihjálparplaköt

Í tilefni af 112 deginum, sem alla jafnan er haldinn 11. febrúar ár hvert, ætlar Rauði Krossinn á Akranesi að gefa skyndihjálparplaköt á alla opinbera staði á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit. Þær Alda Vilhjálmsdóttir, formaður Akranesdeildar Rauða krossins, og Sigrún Jóhannsdóttir, verkefnastjóri, ætla að fara á allar þessar stofnanir næstu daga og afhenda plakötin. Fyrsta…Lesa meira

true

Heimboð í gamla Heiðarskóla á sunnudag

The Ducklings Movement, eða Andarungahreyfingin, er alþjóðlegur félagsskapur tölvuleikjaspilara sem spila fjölspilunarleiki á netinu. Sagt var frá hreyfingunni í Skessuhorni í þarsíðustu viku. Andarungarnir keyptu gamla Heiðarskóla Hvalfjarðarsveit fyrir nokkrum árum síðan og komu á fót starfsemi sem nefnist Forest School, eða Skógaskólinn. Þangað geta félagar í hreyfingunni komið í heimsókn og hitt aðra spilara,…Lesa meira

true

Bökuðu yfir tvö þúsund sólarpönnukökur

Konur í Kvenfélagi Ólafsvíkur tóku daginn snemma síðasta fimmtudag. Þann dag var komið að árlegum bakstri á sólarpönnukökum. Bakað var í félagsheimilinu Klifi og handagangur í öskjunni þegar mest var að gera. Þarna voru vanar konur á ferð og sumar bökuðu pönnukökur á tveimur pönnum á meðan aðrar settu sultu og rjóma eða sykur á…Lesa meira