Fréttir

true

Bátur sökk í Grundarfjarðarhöfn

Lítill skemmtibátur sökk í Grundarfjarðarhöfn í óveðrinu sem gekk yfir Snæfellsnes í gær. Báturinn var bundinn við bryggju en sökum ágangs sjávar og mikillar úrkomu varð eitthvað undan að láta og sökk báturinn. Reynt verður að ná bátnum upp við fyrsta tækifæri. Á meðfylgjandi mynd má sjá lausa muni úr bátnum á floti við grjótvarnargarðinn.Lesa meira

true

Líf og fjör í bakaríum landsins

Engu er logið þegar sagt er að bolludagurinn sé mikil uppskeruhátíð í bakaríum. Á bolludag mokast bollurnar út af allskonar gerðum. Rjómabollur með ýmsum afbrigðum, gerbollur og svo eru rúnstykkin einnig vinsæl, enda ekki allir sem eru fyrir rjómann. Meðfylgjandi mynd var tekin í Brauða- og kökugerðinni á Akranesi í morgun en þar var biðröð…Lesa meira

true

Tveggja daga forritunarráðstefna framundan í Hörpu

Níu manna hópur ungra áhugasamra forritara hér á landi stendur fyrir tveggja daga forritunarráðstefnu í Hörpu dagana 1. – 2. mars næstkomandi og eiga von á tæplega 400 ráðstefnugestum. Einn úr undirbúningshópnum er Borgfirðingurinn Axel Máni Gíslason sem lauk stúdentsprófi frá MB og er núna er að ljúka masterstnámi í hugbúnaðarverkfræði frá SDU í Odense…Lesa meira

true

Gerðu út um leikinn í lokafjórðungnum

Skallagrímur sigraði Hamar, 100-111 þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudag. Leikið var í Hveragerði. Borgnesingar mættu mjög ákveðnir til leiks og leiddu 9-17 eftir miðjan fyrsta leikhluta. Hamarsmenn komu aðeins til baka undir lok leikhlutans en Skallagrímur hafði sex stiga forskot að honum loknum, 16-22. Heimamenn fundu taktinn í öðrum…Lesa meira

true

Fengu að leita skjóls í Grundaskóla

Grundaskóli á Akranesi var um hádegið í gær opnaður fyrir ferðalöngum sem urðu veðurtepptir á Akranesi og í nágrenni. Þar var á ferð hópur íþróttafólks, einn kór og nokkir ferðamenn að auki. Um 40 manns sátu veðrið af sér í skólanum við góðar aðstæður, að sögn Sigurðar Arnars Sigurðssonar skólastjóra.Lesa meira

true

Lentu í hrakningum í ófærð á Vatnaleið

Sjúkrabíll frá Grundarfirði lagði um nónbil í gær af stað áleiðis á Akranes með slasaðan sjúkling. Nýlega var búið að ryðja Vatnaleið þegar sjúkrabíllinn lagði á heiðina. Engu að síður var orðið ófært öllum bílum á móts við Straumfjarðarvirkjun og festu sjúkraflutningamenn bílinn. Björgunarsveitin Berserkir í Stykkishólmi kom til aðstoðar, dró bílinn upp og haldið…Lesa meira

true

Snæfell vann mikilvægan sigur á Fjölni

Snæfell vann góðan útisigur á Fjölni, 79-82, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudag. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en eftir því sem leið á upphafsfjórðunginn náðu heimamenn yfirhöndinni. Fjölnir náði mest ellefu stiga forskoti seint í fyrsta leikhluta. Þá tók Snæfell smá rispu og minnkaði muninn í sex…Lesa meira

true

Tuttugu ár frá því Skessuhorn kom fyrst út

Í þessari viku verður þess minnst að héraðsfréttablaðið Skessuhorn hefur komið út vikulega samfellt í tuttugu ár. Í upphafi var því spáð að útgáfan yrði ekki langlíf. Útgáfa blaða hafði fram að þeim tíma gengið brösuglega í landshlutanum. En blaðið er enn til, tuttugu árum síðar, og nýtur virðingar og í það er vitnað. Íbúar…Lesa meira

true

Sjálfstæðisfélögin halda fimm fundi á næstu dögum

Sjálfstæðisfélögin í Borgarbyggð boða til fimm opinna funda með íbúum á næstu dögum og verður fyrsti fundurinn í kvöld. “Tilgangur fundanna er að eiga samtal við íbúa um næsta kjörtímabil. Hvaða áherslur vilja íbúar að unnið verður með,” segir í fundarboði og auglýsingu. Fundirnir verða sem hér segir: Skemman á Hvanneyri, mánudaginn 12. febrúar klukkan…Lesa meira