Fréttir

true

Ástin er rauði þráðurinn á hátíð sögu og bóka í Stykkishólmi

Júlíana, hátíð sögu og bóka, verður haldin í Stykkishólmi dagana 22. – 24. febrúar næstkomandi. Undirbúningsnefndin vinnur nú hörðum höndum að því að leggja lokahönd á dagskrána. Nefndina skipa Gréta Sigurðardóttir, forsprakki hátíðarinnar, Nanna Guðmundsdóttir, Þórhildur Einarsdóttir og Þórunn Sigþórsdóttir. Þær Sigríður Erla Guðmundsdóttir og Dagbjört Höskuldsdóttir tóku sér frí að þessu sinni, en þær…Lesa meira

true

Landsleikir framundan í körfunni

Kvennalandslið Íslands í körfuknattleik leikur tvo leiki í undankeppni Eurobasket 2019 á næstu dögum. Fyrst gegn Bosníu í Sarajevó á laugardaginn, 10. febrúar og síðan gegn Svartfjallalandi í Podgorica miðvikudaginn 14. febrúar. Ívar Ágústsson landsliðsþjálfari og aðstoðarþjálfari hans þurftu að gera eina breytingu á hópnum fyrir brottför. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, leikmaður Skallagríms, er ekki orðin…Lesa meira

true

Kannar hug ráðherra gagnvart litlu háskólunum

Bjarni Jónsson varaþingmaður VG spurði á þingi Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra út í stöðu og sjálfstæði háskóla á landsbyggðinni. „Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að eyða óvissu sem ríkt hefur undanfarin ár um stöðu og sjálfstæði Háskólans á Hólum, Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri og Háskólans á Bifröst og styrkja og tryggja starfsemi þeirra…Lesa meira

true

„Við verðum alltaf að hafa í huga að mannréttindi eru fyrir alla“

Maj-Britt Hjördís Briem stundar nú LLM nám í mannréttindalögfræði við Háskólann í Lundi í Svíþjóð og stefnir á að ljúka náminu næsta vor. „Okkur fannst við mjög huguð að leggja í þetta verkefni, að rífa stelpurnar upp og flytja hingað út svo ég gæti farið aftur í nám. En þar sem aðeins 50 af 800…Lesa meira

true

Draugr á Kalastöðum

Á Kalastöðum í Hvalfjarðarsveit hefur verið stofnað Draugr Brugghús. Að brugginu standa þrír félagar sem hófu bjórbruggun sem áhugamál og var markmiðið í fyrstu að hver lögun dygði þar til sú næsta yrði tilbúin. Enn er verkefnið fyrst og fremst til gamans gert og flokkað sem áhugamál þeirra, en viðtökurnar hafa engu að síður verið…Lesa meira

true

Margt um manninn í afmæli Höfða

Eins og greint var frá í síðasta tölublaði var haldið upp á fjörutíu ára afmæli Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimilis, föstudaginn 2. febrúar. Um miðjan daginn var gestum og gangandi boðið í heimsókn til skrafs og skemmtunar auk þess sem boðið var upp á hressingu. Síðar um kvöldið var síðan fjölmenn afmælisveisla fyrir íbúa og starfsfólk.…Lesa meira

true

Viskukýrin á Hvanneyri á fimmtudagskvöld

Hin árlega spurningakeppni Nemendafélags LbhÍ á Hvanneyri verður haldin í Ásgarði, matsal skólans, fimmtudagskvöldið 8. febrúar klukkan 20:00. Þar munu sem fyrr nemendur, starfsfólk og heimafólk etja kappi. Spyrill verður Logi Bergmann Eiðsson fréttamaður. Boðið verður upp á skemmtiatriði og sérstaklega bent á í kynningu að Viskukýrin er skemmtun án áfengis. Aðgöngumiðaverð er 800 krónur…Lesa meira

true

Varnarlínum vegna sauðfjársjúkdóma fækkað vegna fjárskorts

Sauðfjárveikivarnagirðing sem kallast Blöndulína hefur verið felld niður sem varnarlína vegna dýrasjúkdóma. Þetta er ákvörðun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. „Ljóst er að varnarlínan hefur ekki verið fjárheld frá því Blönduvirkjun var reist og ekki fæst fjármagn til að halda varnarlínunni fjárheldri. Með auglýsingu nr. 88/2018 um varnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma fellur varnarlínan niður frá 1. febrúar síðastliðnum,“…Lesa meira

true

Akurey AK fékk í skrúfuna og dregin til lands

Akurey AK -10 fékk í gærkvöldi í skrúfuna þar sem það var statt á veiðum suðvestan við landið. Ottó N. Þorláksson RE-203 kom skömmu síðar að skipinu og tók það í tog. Þá sigldi varðskipið Þór til móts við skipin klukkan 9 í morgun, en Otto og Akurey voru þá stödd um sjö sjómílur norðaustan…Lesa meira

true

Stofna Borgarljós um ljósleiðaravæðinguna

Byggðarráð Borgarbyggðar hefur samþykkt fyrir sitt leiti að stofna B hluta fyrirtækið Borgarljós. Það verður rekið sem deild innan sveitarfélagsins og á ábyrgð þess en verkefni þess verður að annast lagningu og rekstur ljósleiðara í sveitarfélaginu. Borgarljós verður fjármagnað af sveitarfélaginu, þeim tekjum sem af þjónustunni hljótast og með styrk frá ríkinu. „Sveitarstjórnin hefur kynnt…Lesa meira