Fréttir

true

Vestlendingar í kjöri í kosningum til stúdentaráðs HÍ

Kosningar til Stúdentaráðs Háskóla Íslands fara fram í dag og á morgun, 7. og 8. janúar. Kosningarnar eru rafrænar og fara fram í gegnum Ugluna, innri vef skólans. Nemendur á hverju fræðasviði kjósa sér sviðsráð, sem saman mynda Stúdentaráð Háskóla Íslands. Ráðið skipa 27 stúdentar; fimm frá hugvísindasviði, heilbrigðisvísindasviði, menntavísindasviði, verkfræði- og náttúruvísindasviði en sjö…Lesa meira

true

Ófært í Hvalfirði og víða þæfingsfærð

Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að hálka og snjóþekja er á vegum á Vesturlandi. Enn er ófært í Hvalfirði en mokstur hefur tafist vegna bilunar í tækjum. Þæfingsfærð er á köflum í uppsveitum Borgarfjarðar og einnig á Útnesvegi á Snæfellsnesi. Verið er að opna og hreinsa vegi á Suðurlandi, víða er snjóþekja en sums…Lesa meira

true

Umhleypingatíð framyfir næstu helgi að minnsta kosti

Ekkert lát er á umhleypingum í veðrinu næstu daga ef marka má veðurspár. Suðvestanátt verður ríkjandi, allhvöss eða hvöss með éljum, á sunnan- og vestanverðu landinu. Að morgni föstudags og frameftir degi má búast við hvössum suðvestan éljum og einnig aðfararnótt laugardags. Um helgina og allt fram á mánudag gengur svo á með éljagangi um…Lesa meira

true

Amtsbókasafnið í Stykkishólmi opnað við hátíðlega athöfn

Það var hátíðleg stund í Stykkishólmi á föstudaginn þegar nýtt húsnæði Amtsbókasafnsins var tekið í notkun með formlegum hætti. Hófst þar með nýjasti kaflinn í sögu safnsins, sem stofnað var árið 1847 og hét þá „Íslands vesturamts almenna bókasafn.“ Vont veður var víða um land á föstudaginn, bálhvasst og hált á vegum víða á Snæfellsnesi.…Lesa meira

true

Síðasta veiðiferð Sturlaugs AK

Ísfisktogarinn Sturlaugur H. Böðvarsson AK kom úr sinni síðustu veiðiferð fyrir HB Granda aðfararnótt 30. janúar sl. Aflinn var um 90 tonn af karfa, þorski og ufsa. Þar með lauk farsælum ferli skipsins undir merkjum HB Granda en nýsmíðin Akurey AK hefur leyst Sturlaug af hólmi. Sturlaugur H. Böðvarsson AK var smíðaður hjá skipasmíðastöð Þorgeirs…Lesa meira

true

Hríðarveðri spáð í kvöld

Í kvöld nálgast skil nýrrar lægðar og versnar veður fljótt. Skafrenningur og versnandi skyggni er spáð frá klukkan 20. Eftir það er stormur og hríðarveður og þar af leiðandi ófærð.  Skilin fara hratt norðaustur yfir landið og rétt svo nær að hlána á láglendi sunnan- og suðvestanlands um tíma í nótt. Hálka og snjóþekja er…Lesa meira

true

Helga hættir sem framkvæmdastjóri SAF

Helga Árnadóttir, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar frá 1. desember 2013, hefur ákveðið að láta af störfum. Hún hefur verið ráðin til Bláa Lónsins sem framkvæmdastjóri Blue Lagoon Journeys ehf., dótturfélags Bláa Lónsins, sem vinnur að þróunarverkefnum félagsins. Helga hefur leitt starfsemi samtakanna undanfarin fjögur ár, á mestu uppgangstímum í íslenskri ferðaþjónustu. „Stjórn…Lesa meira

true

Northern Wave tilnefnd til Eyrarrósarinnar

Búið er að tilkynna hvaða sex fyrirtæki eða verkefni eru tilnefnd til að hljóta Eyrarrósina 2018, en það er viðurkenning sem árlega er veitt framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Kvikmyndahátíðin Northern Wave á Snæfellsnesi er í þeim hópi. Að verðlaununum standa í sameiningu Byggðastofnun, Air Iceland Connect og Listahátíð í Reykjavík. Eyrarrósinni er ætlað að beina…Lesa meira

true

Súr matur verður sætur

Borgnesingurinn Geir Konráð Theodórsson kom fram í hlaðvarpsþættinum Gráa svæðinu um liðna helgi þar sem hann ræddi um pillu sem hefur áhrif á bragðlauka. „Pillan virkar þannig að maður hefur hana á tungunni og hún gerir það að verkum að boðin frá bragðlaukunum breytast og það sem áður var súrt verður sætt. Allt í einu…Lesa meira

true

Hótel Húsafell hlýtur verðlaun frá TripAdvisor

Hótel Húsafell var meðal tíu íslenskra hótela sem hlutu ferðamannaverðlaun, Travelers Choice Award, TripAdvisor, fyrir árið 2018. Verðlaunin eru veitt árlega og byggja á umsögnum og einkunnum sem gestir hafa gefið á vefsíðu TripAdvisor. Aðeins þau hótel sem eru meðal efstu 1% hótela samkvæmt umsögn gesta hljóta verðlaunin.Lesa meira