Fréttir

true

Fólk telji fuglana í garðinum um helgina

Árleg garðfuglahelgi Fuglaverndar verður dagana 26. -29. janúar. „Framkvæmd athugunarinnar er einföld. Það eina sem þátttakandi þarf að gera er að fylgjast með garði í einn klukkutíma einhvern þessara daga. Athugendur velja hvaða dag þeir fylgjast með garðfuglunum eftir veðri og aðstæðum. Þátttakendur skrá hjá sér hvaða fuglar koma í garðinn og þá er miðað…Lesa meira

true

Íslenskt lambakjöt í öndvegi á matseðlum N1 um allt land

Í morgun var skrifað undir tímamóta samstarfssamning í söluskála N1 í Borgarnesi milli markaðsstofu Icalandic Lamb og N1. Í samningnum var innsiglað samstarf um vöruþróun og sameiginlegar markaðsaðgerðir til að auka sölu lambakjöts á veitingastöðum N1 um allt land sem reknir eru í nafni Nestis. Í upphafi verður sérstök áhersla lögð á að kynna íslenska…Lesa meira

true

Auglýst eftir sóknarpresti á Snæfellsnes

Biskup Íslands hefur auglýst laust til umsóknar starf sóknarprests í Staðastaðarprestakalli á Snæfellsnesi. Skipað verður í embættið 1. mars næstkomandi til fimm ára. Umsóknarfrestur um embættið er til 19. febrúar nk. Prestakallið nær allt frá Hellnum að Staðarhrauni og telur sex sóknir; Kolbeinsstaða,- Fáskrúðarbakka,- Staðarhrauns,- Staðastaðar,- Búða- og Hellnasóknir. Staðastaðarprestakall er á samstarfssvæði með Ólafsvíkur-…Lesa meira

true

Marcus Dewberry farinn frá ÍA

Körfuknattleiksmaðurinn Marcus Dewberry, sem leikið hefur með ÍA í 1. deild karla undanfarna mánuði, er farinn frá liðinu að minnsta kosti um tíma. Jón Þór Þórðarson, þjálfari liðsins, segir í samtali við Skessuhorn að Marcus hafi þurft að snúa heim til Bandaríkjanna af persónulegum ástæðum. Marcus gekk til liðs við ÍA í nóvember eftir að…Lesa meira

true

Olía fannst í Grundarfirði

Nú standa yfir framkvæmdir við byggingu nýs fiskvinnsluhúss Guðmundar Runólfssonar hf í Grundarfirði. Þar vinna verktakar Almennu umhverfisþjónustunnar og Ístaks hörðum höndum við að taka grunn fyrir viðbygginguna. Nú á dögunum komu verktakarnir niður á gamlan olíutank sem hafði legið undir steyptu plani til fjölda ára. Héldu menn jafnvel að hann væri frá því að…Lesa meira

true

Ráðherra telur of dýrt að fá lán frá lífeyrissjóðum til vegabóta

Á miðvikudagskvöld var haldinn opinn fundur um samgöngumál á Vesturlandi þar sem kallað var eftir vegabótum á Vesturlandsvegi um Kjalarnes. Að loknum erindum frummælenda var opnað fyrir fyrirspurnir úr sal og umræður. Einn þeirra sem kvað sér hljóðs var Karvel L. Karvelsson, framkvæmdastjóri Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins. Hann er búsettur á Akranesi og ekur um Vesturlandsveg á…Lesa meira

true

Starfsemi Mönsvagnsins gengur vel á Akranesi

Það var í vikunni fyrir jól sem hjónin Herdís Þórðardóttir og Jóhannes Ólafsson, sem eiga og reka matsöluvagninn Mönsvagninn ásamt börnum sínum, lögðu vagninum fyrir framan Stillholt 16-18 á Akranesi og hófu að selja fisk og franskar. Höfðu þau áður verið með vagninn á Arnarstapa, síðast frá því í fyrravor fram í október við afar…Lesa meira

true

Vegagerð gengur vel í Lundarreykjadal

Starfsmenn Borgarverks vinna nú að lagningu nýs vegar á neðsta hluta Uxahryggjavegar, frá Borgarfjarðarbraut ofan við Hest og að Gröf. Að sögn Óskars Sigvaldasonar framkvæmdastjóra er verkið á áætlun og gengur prýðilega. Þessi áfangi er 3,8 kílómetrar og liggur að hluta í nýrri veglínu. Hann mun leysa af hólmi veg sem var bæði slæmur og…Lesa meira

true

Mikill einhugur í Vestlendingum en engin vilyrði stjórnvalda um að hraða framkvæmdum

Í gærkvöld var boðað til fundar um samgöngumál á Vesturlandi. Fundurinn fór fram í sal Tónlistarskóla Akraness og var húsfyllir enda ljóst að bágt ástand þjóðvega landsins snertir við mörgum. Framsögu á fundinum hafði sveitarstjórnarfólk á Vesturlandi, formaður starfshóps um framkvæmdir á stofnvegum og Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra. Á fundinum afhenti Bjarnheiður Hallsdóttir undirskriftalista með…Lesa meira

true

Alls 44 fyrirtæki á Vesturlandi eru til fyrirmyndar öðrum

Eins og greint var frá í Skessuhorni fyrr í vikunni veitti Viðskiptablaðið 850 fyrirtækjum hér á landi viðurkenningar fyrir traustan rekstur og góða eiginfjárstöðu rekstrarárið 2016. Af þessum fyrirtækjum voru 33 hér á Vesturlandi og var listi yfir þau birtur í blaðinu.  En nú háttar þannig til að tvö fyrirtæki eru að taka saman sambærilegan…Lesa meira