
Á morgun, fimmtudaginn 18. janúar, flytur Guðrún Bjarnadóttir erindi í Safnahúsi Borgarfjarðar um jurtalitun. Guðrún er náttúrufræðingur og hefur á undanförnum árum sérhæft sig í jurtalitun og miðlun upplýsinga um hana. Hún kennir grasafræði við Landbúnaðarháskólann, en hennar aðalstarf er að reka jurtalitunarvinnustofuna Hespuhúsið þar sem hún jurtalitar íslenska ull og tekur á móti gestum…Lesa meira








