
Um liðna helgi framkvæmdi lögreglan á Vestfjörðum húsleit á heimili í Reykhólasveit. Grunur hafði vaknað um að þar væru fíkniefni. Sá grunur reyndist á rökum reistur. Þar fundust kannabisefni og áhöld til meðhöndlunar þeirra. Á Facebooksíðu lögreglunnar á Vestfjörðum kemur fram að fíkniefnaleitarhundurinn Tindur hafi tekið þátt í leitinni.Lesa meira








