Fréttir

true

Lionsklúbbur Akraness styrkir björgunarfélagið

Lionsklúbbur Akranes ákvað að styrkja starfsemi Björgunarfélag Akraness um 200.000 krónur; „vegna þeirra mikilvægu starfa sem félagið innir af hendi fyrir samfélagið okkar,“ segir gjafabréfinu sem fulltrúar Lionsklúbbs Akraness afhentu Kjartani Kjartanssyni, galdkera Björgunarfélags Akraness, á þriðjudaginn í síðustu viku. „Björgunarfélagið vinnur óeigingjarnt starf fyrir samfélagið og það er mikilvægt að styðja við starfsemi þess,“…Lesa meira

true

Fimmtíu ára fermingarbarnafmæli

Fimmtíu ár eru nú liðin frá því dágóður hópur barna sem gekk í skóla á Kleppjárnsreykjum fermdist í Hvanneyrar- og Reykholtsprestaköllum árið 1969. Hluti hópsins kom saman í messu í Reykholtskirkju síðastliðinn sunnudag. Vegna tímamótanna var fólki hóað saman ásamt kennurum við Kleppjárnsreykjaskóla sem kenndu fermingarbarnaárganginum. Byrjað var í dragbít í kaffihúsinu Heimskringlunni, sem er…Lesa meira

true

Sagan verður ekki flutt milli byggðarlaga

Á aðalfundi Félags Snæfellinga og Hnappdæla sem haldinn var 22. maí síðastliðinn var samþykkt ályktun þar sem lýst er áhyggjum yfir þeirri þróun á Snæfellsnesi, að fyrrum Kolbeinsstaðahreppur og Skógstrandarhreppur teljist ekki lengur í reynd til héraðsins Snæfellsness. „Þessu veldur sameining þessara hreppa við Borgarbyggð og Dalabyggð. Landfræðilega, sögulega og menningarlega hafa þessir hreppar öldum…Lesa meira

true

Verslunin FOK er nú flutt í Hyrnutorg

Gjafavöruverslunin FOK í Borgarnesi hefur nú fært sig um set. Eigendur hennar, þau María Júlía Jónsdóttir og Jónas Björgvin Ólafsson, leituðu þó ekki langt yfir skammt og hafa fært verslunina yfir Borgarbrautina og eru nú búin að koma sér fyrir í Hyrnutorgi þar sem Handavinnubúðin var síðast til húsa, gegnt Vínbúðinni. Verslunin var opnuð í…Lesa meira

true

Svanir í söngferðalag til Hollands

Karlakórinn Svanir á Akranesi er nýlega kominn úr söngferðalagi til Hollands. Í Skessuhorni vikunnar má sjá ferðalýsingu Júlíusar Más Þórarinssonar sem myndskreytt er með ljósmyndum Guðna Hannessonar.  Lesa meira

true

Myndskreytt frásögn af Danmerkurferð sveitarstjórnarfólks

Um nokkurt skeið hefur það tíðkast að sveitarstjórnarfólk á Vesturlandi fari í fræðsluferðir einu sinni á kjörtímabili til að kynna sér málefni sveitarfélaga og byggðaþróunaraðgerðir hjá nágrannaþjóðum. Í tvígang hefur verið farið til Noregs og einu sinni til Skotlands.  Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) hafa séð um skipulag og undirbúning ferðanna. Að þessu sinni var…Lesa meira

true

Hafragrautaruppáhellarinn vann Nýsköpunarkeppni grunnskóla

Úrslit í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2019 voru kynnt í gær og verðlaun afhent með viðhöfn í Háskólanum í Reykjavík. Guðni Jóhannesson forseti Íslands og Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra ávörpuðu hugvitsfólkið og afhentu verðlaun í ýmsum flokkum. Þær Anna Valgerður Árnadóttir og Oliwia Huba frá Brekkubæjarskóla á Akranesi báru sigur úr býtum í keppninni fyrir hugmynd sína að…Lesa meira

true

Manuel snýr aftur í Borgarnes

Spánverjinn Manuel Rodriguez hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks Skallagríms í körfuknattleik karla. Mun hann stýra liði Borgnesinga í 1. deildinni næsta vetur. Manuel er 39 ára gamall, reyndur þjálfari sem á að baki fjölbreyttan feril. Hann hefur stýrt félags- og skólaliðum á Spáni og í Svíþjóð, auk þess að koma að þjálfun yngri landsliða í…Lesa meira

true

Fjölbreytt starf Skólakórs Snæfellsbæjar

Vortónleikar Skólakórs Snæfellsbæjar fóru fram 15. maí í Ólafsvíkurkirkju. Tónleikarnir báru yfirskriftina „Ferðumst með vindinum“ en á þeim söng kórinn lög frá ýmsum löndum á ólíkum tungumálum, svo sem frönsku, rúmensku, sænsku, ensku og íslensku. Kórstarfið hjá skólakórnum er mjög öflugt og þær Veronica Osterhammer kórstjóri og Nanna Aðalheiður Þórðardóttir meðleikari eru búnar að vinna…Lesa meira

true

Fallegt svæði að verða til við Faxabraut

Margir hafa fylgst með framgangi svæðisins þar sem mannvirki Sementsverksmiðjunnar stóðu áður við Faxabraut á Akranesi. Verktakafyrirtækið Work North ehf hefur annast niðurrif mannvirkjanna. Niðurrifið hefur gengið vel og sér nú fyrir endann á frágangi svæðisins. Búið er að fjarlægja þau mannvirki sem fólust í samningnum við verktakann og langt komið með að slétta svæðið.…Lesa meira