Fréttir

true

Man ekki þann dag sem hún fór ekki glöð til vinnu

Í ár eru 100 ár liðin frá stofnun Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Af því tilefni stendur stjórn deildar hjúkrunarfræðinga á Akranesi og nágrenni fyrir því á afmælisárinu að birta greinar eftir hjúkrunarfræðinga í Skessuhorni. Greinarnar eru birtar jafnt og þétt yfir afmælisárið og í þeim fá lesendum innsýn í þau fjölbreyttu störf og áskoranir sem hjúkrunarfræðingar…Lesa meira

true

CrossFit stöð opnuð í Snæfellsbæ

CrossFit iðkun hefur vaxið hratt í landshlutanum undanfarið og um síðustu helgi var opnuð ný CrossFit stöð við Smiðjugötu 5 í Rifi. Nýja stöðin heitir CF Snb og það eru vinkonurnar Gestheiður Guðrún Sveinsdóttir og Kristfríður Rós Stefánsdóttir sem standa að opnun stöðvarinnar. Gestheiður og Kristfríður hafa báðar verið að æfa CrossFit hjá CrossFit Reykjavík…Lesa meira

true

Fengu að kynnast vælubílunum

Það var aldeilis gaman hjá leikskólabörnunum á meðfylgjandi mynd í morgun. Þá voru börn af Vallarseli í heimsókn á slökkvistöðinni við Kalmansvelli og fengu að skoða sjúkrabíla, lögreglubíla og slökkviliðsbíla, máta hjálma og fengu meira að segja setjast undir stýri og kveikja á sýrenum. Börnin hreinlega geisluðu af gleði og fannst þetta skemmtileg upplifun. Að…Lesa meira

true

Lögregla rannsakar innbrot í bílskúra á Akranesi

Brotist var inn í bílskúr við Reynigrund á Akranesi laugardaginn 18. maí. Lögreglu var tilkynnt um málið kl. 8:00 að morgni og talið að innbrotið hafi átt sér stað um nóttina. Mikið af verkfærum var stolið, s.s. sögum, borvélum og fleiri verkfærum. Fingraför fundust á vettvangi glæpsins. Daginn eftir, sunnudaginn 19. maí, var lögreglu tilkynnt…Lesa meira

true

Fáir seldu mjólkurkvóta á síðasta innlausnardegi

Á öðrum innlausnardegi ársins fyrir greiðslumark í mjólk, 1. maí síðastliðnum, var greiðslumark þriggja kúabúa innleyst á sama tíma og 90 framleiðendur lögðu inn kauptilboð fyrir mjólk að andvirði 8,7 milljóna lítra. Innlausnarvirði greiðslumarks er nú 100 krónur á lítra og er það Matvælastofnun sem annast þessa milligöngu. Alls voru innleystir 22.300 lítrar að upphæð…Lesa meira

true

Vítaverður hraðakstur

Ekkert lát er á hröðum akstri í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Kemur það bæði fram í myndavélum og við almennt umferðareftirlit. Að sögn lögreglu var algengt að ökumenn væru stöðvaðri á 105-120 km/klst. í vikunni sem leið, þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km/klst. Sá sem hraðast ók í umdæminu í síðustu viku var mældur…Lesa meira

true

Fjölbreytt og gefandi starf að vera ljósmóðir

„Ég hef aldrei séð eftir að hafa lært ljósmóðurfræði,“ segir Hrafnhildur Ólafsdóttir sem nýverið tók við starfi deildarstjóra Kvensjúkdómadeildar HVE á Akranesi. Hún segir starfið fjölbreytt og ekki síst er skemmtilegt að fylgja foreldrum á þessum mikilvægustu stundum í lífi þeirra. Hún segir ljósmæður á Akranesi vera samheldinn hóp og allar séu þær tilbúnar að…Lesa meira

true

Ungmennabúðirnar hafa kvatt Laugar

Síðastliðinn föstudag kvöddu síðustu níundabekkjar nemendurnir Ungmenna- og tómstundabúðirnar á Laugum í Sælingsdal. Frá næsta hausti verður starfsemin á Laugarvatni. Anna Margrét Tómasdóttir segir vikuna hafa verið óvenjulega. „Þessi síðasta vika hefur einkennst af bæði sorg og gleði og það er erfitt að kveðja Laugar.“ Sjá frásögn í máli og myndum í Skessuhorni sem kom…Lesa meira

true

Öflugt lærdómssamfélag í Borgarbyggð

Í sveitarfélaginu Borgarbyggð starfa fimm leikskólar, tveir grunnskólar, tónlistarskóli, menntaskóli og tveir háskólar auk símenntunarmiðstöðvar og nýsköpunarseturs. „Einkunnarorð Borgarbyggðar eru menntun, saga og menning og er skólastarf einn af hornsteinum sveitarfélagsins,“ segir Magnús Smári Snorrason, formaður fræðslunefndar Borgarbyggðar. Ítarlega er rætt við Magnús Smára í Skessuhorni sem kom út í dag.Lesa meira

true

Slær ekki slöku við í skógræktinni

Þrátt fyrir að vera á 90. aldursári slær Stefán Kristinn Teitsson ekki slöku við í skógræktinni. Hann pantaði níu þúsund trjáplöntur hjá Vesturlandsskógum fyrir sumarið og er byrjaður í vorgróðursetningunni í Hafnarseli við rætur Hafnarfjalls. Stefán keypti þetta land árið 2003 og stofnaði nýbýli til að stunda skógrækt. Þar hefur síðan plantað 160 þúsund trjáplöntum…Lesa meira