Fréttir

true

Sumarlestur og ritsmiðja á Bókasafni Akraness

Sumarlestur fyrir börn er að hefjast á Bókasafni Akraness og stendur yfir í sumar. „Sumarlestur er lestrarhvetjandi verkefni miðað að börnum á aldrinum 6-12 ára. Fimm ára börnum er líka heimilt að taka þátt, ef þau hafa öðlast færni í lestri. Markmiðið með sumarlestri er að hvetja börn til lesturs, til að njóta góðra bóka…Lesa meira

true

Af með nagladekkin!

Lögreglan á Vesturlandi er ekki farin að kæra ökumenn fyrir að vera með nagladekk undir bifreiðum sínum. Ekki er byrjað að sekta fyrir slíkt á sama tíma í umdæminu og í höfuðborginni, enda aðrar aðstæður aðrar. Lögregla minnir engu að síður á að heimild til að hafa nagla undir skv. umferðarlögum er liðin og hvetur…Lesa meira

true

Stuð á Akratorgi í hádeginu í dag

Nemendur í 1. – 7. bekk í Brekkubæjarskóla á Akranesi og vinabekkur sem var í heimsókn frá Belfast komu saman á Akratorgu í hádeginu í dag til að dansa. Mikið stuð var á torginu og sólin magnaði upp stemninguna. Brekkubæjarskóli er þátttakandi í Erasmus+ verkefni þar sem eitt af verkefnunum er svokallaður flash-mob dans. Fimm…Lesa meira

true

Ragnar lætur af störfum sem forstjóri Norðuráls – Gunnar tekur við

Ragnar Guðmundsson hefur óskað eftir að láta af störfum sem forstjóri Norðuráls. Ragnar hóf störf hjá fyrirtækinu árið 1997 sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs og tók við sem forstjóri árið 2007. Hann mun verða stjórnendum Norðuráls til ráðgjafar næstu mánuði,“ segir í tilkynningu.  Gunnar Guðlaugsson hefur verið ráðinn forstjóri Norðuráls. Gunnar hóf störf hjá Norðuráli 2008 og…Lesa meira

true

Fleiri sækja um að komast í kennaranám

Umsóknum um framhaldsnám til kennsluréttinda í leik- og grunnskólakennaranámi við Háskóla Íslands fjölgar um 30% miðað við meðaltal síðustu fimm ára samkvæmt upplýsingum frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Heildarfjöldi umsækjenda um M.Ed.-nám til kennsluréttinda í leik- og grunnskólum í ár er 264 nemendur en þeir hafa verið 186 að meðaltali sl. fimm ár. „Þetta eru virkilega…Lesa meira

true

Sló tólf ára gamalt skriðsundsmet

Enrique Snær Llorens Sigurðsson sló um helgina tólf ára gamalt Akranesmet í 800 m skriðsundi í flokki pilta 15-17 ára. Nýja metið setti hann á ÍRB móti sem haldið var í Reykjanesbæ um helgina. Hann synti á 9:23,27 sek. og bætti met Leifs Guðna Grétarssonar frá 2007 um rétt tæpa sekúndu. Alls tóku 29 sundmenn…Lesa meira

true

Jarðvegur úr grunni Þjóðgarðsmiðstöðvar nýttur í tjaldsvæðið

Nýverið voru tjaldsvæði Snæfellsbæjar á Hellissandi og í Ólafsvík opnuð. Hefur aðsókn á þau aukist undanfarin ár og stefnt að því að þau verði opin að minnsta kosti út septembermánuð. Unnið hefur verið að því að bæta þá aðstöðu og þjónustu sem í boði er á tjaldsvæðunum síðustu ár. Nú síðast með því að bæta…Lesa meira

true

Skagakonur nýttu færin sín vel

Skagakonur unnu góðan útisigur á Fjölni í ótrúlegum leik í Inkasso deild kvenna á sunnudag, 1-3. Leikið var í Grafarvogi og það voru heimakonur sem voru öflugri í leiknum. Þær bókstaflega óðu í færum, fengu hvert dauðafærið á fætur öðru en nýtingin var aftur á móti ekki upp á marga fiska. Á meða nýttu Skagakonur…Lesa meira

true

Ný heimasíða Hvalfjarðarsveitar í loftið

Hvalfjarðarsveit hefur opnað nýja heimasíðu fyrir sveitarfélagið. „Á henni er m.a. hægt að gerast áskrifandi að fréttum og senda inn tilkynningu um viðburð.  Jafnframt hafa umsóknareyðublöð mörg hver verið uppfærð og þeim fjölgað og að lokum má geta þess að nýja síðan virkar mjög vel í farsímum,“ segir Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri. Sjá nýju síðuna…Lesa meira

true

Ýmis tölfræði um strandveiðar Íslendinga

Nýverið svaraði Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra tveimur fyrirspurnum frá Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins, þar sem þingmaðurinn spurði út í sitthvað sem snertir strandveiðar og reynslu af þeim. Önnur fyrirspurnin sneri að árangri strandveiðitímabils síðasta árs en hin fjallaði um gjöld á strandveiðar frá því strandveiðar hófust 2009 til ársins 2018. Varðandi strandveiðar síðasta árs…Lesa meira