Fréttir

true

Skagakonur nýttu færin sín vel

Skagakonur unnu góðan útisigur á Fjölni í ótrúlegum leik í Inkasso deild kvenna á sunnudag, 1-3. Leikið var í Grafarvogi og það voru heimakonur sem voru öflugri í leiknum. Þær bókstaflega óðu í færum, fengu hvert dauðafærið á fætur öðru en nýtingin var aftur á móti ekki upp á marga fiska. Á meða nýttu Skagakonur…Lesa meira

true

Ný heimasíða Hvalfjarðarsveitar í loftið

Hvalfjarðarsveit hefur opnað nýja heimasíðu fyrir sveitarfélagið. „Á henni er m.a. hægt að gerast áskrifandi að fréttum og senda inn tilkynningu um viðburð.  Jafnframt hafa umsóknareyðublöð mörg hver verið uppfærð og þeim fjölgað og að lokum má geta þess að nýja síðan virkar mjög vel í farsímum,“ segir Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri. Sjá nýju síðuna…Lesa meira

true

Ýmis tölfræði um strandveiðar Íslendinga

Nýverið svaraði Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra tveimur fyrirspurnum frá Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins, þar sem þingmaðurinn spurði út í sitthvað sem snertir strandveiðar og reynslu af þeim. Önnur fyrirspurnin sneri að árangri strandveiðitímabils síðasta árs en hin fjallaði um gjöld á strandveiðar frá því strandveiðar hófust 2009 til ársins 2018. Varðandi strandveiðar síðasta árs…Lesa meira

true

Haldið til veiða í kaldaskít

Oft getur veðráttan verið óútreiknanleg. Á meðan nánast koppalogn hefur verið á sunnanverðu Vesturlandi síðan fyrir helgi var haugabræla norðan við Snæfellsnes í morgun. Það var því lélegt sjóveður fyrir smærri báta sem nú róa stíft til strandveiða. Þrátt fyrir veður fóru margir smábátar til veiða í morgun. Sumir leituðu skjóls með að sigla suður…Lesa meira

true

Fjölmiðlafrumvarp lagt fram á Alþingi

Frumvarp til laga um breytingu á fjölmiðlalögum nr. 38/2011 hefur nú verið lagt fram á Alþingi og mun Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra mæla fyrir því á yfirstandandi þingi. Frumvarpið er liður í heildstæðum aðgerðum stjórnvalda til stuðnings íslenskri tungu. Markmið frumvarpsins er að efla lýðræðishlutverk fjölmiðla með því að styðja við og efla útgáfu…Lesa meira

true

Til hafnar eftir að vélin hafði ofhitnað

Færeyski línubáturinn Skörin frá Toftum leitaði til hafnar í Ólafsvík í morgun. Vél bátsins hafði ofhitnað og töldu skipsverjar að eitthvað væri í skrúfunni og var því leitað til Víðis Haraldssonar kafara í Ólafsvík sem hefur séð um að hreinsa úr skrúfum báta í mörg ár og er hokinn af reynslu í köfun. Að sögn…Lesa meira

true

Bjarki og Gísli fögnuðu sigri á MAC Championship

Bjarki Pétursson kylfingurinn knái úr Borgarnesi, Gísli Sveinbergsson og liðsfélagar þeirra í Kent State fögnuðu um helgina sigri á MAC Championship mótinu sem fram fór í bandaríska háskólagolfinu í Ohio fylki. Á golfvefnum Kylfingur.is er sagt frá því að upprunalega hafi átt að spila þrjá hringi, en þriðja hringnum var aflýst vegna veðurs og töldu…Lesa meira

true

Bók um hvernig ná má tökum á þunglyndi

Sjálfshjálparbókin „Náðu tökum á þunglyndi,“ eftir Sóleyju Dröfn Davíðsdóttur er komin út hjá bókaforlaginu Vöku Helgafelli. Bókin fjallar um einkenni og orsakir þunglyndis og gefur ráð um hvernig má ná tökum á því með aðstoð hugrænnar atferlismeðferðar og hugleiðslu. Textinn er settur fram á afar aðgengilegan hátt og er m.a. farið í áhrif svefnleysis, örlyndis…Lesa meira

true

Myndasyrpa – Afmælisvika Vallarsels hófst með skrúðgöngu

Leikskólinn Vallarsel á Akranesi er 40 ára í dag. Afmælishátíð stendur alla þessa viku og hófst í morgun með skrúðgöngu hring um hverfið. Fyrir göngunni fór lögregla og trommusveit Tónlistarskólans sló taktinn. Síðan fylgdu allar deildir leikskólans, hver með sinn lit. Börnin héldu á fánum ýmissa þjóðlanda, en leikskólinn er eins og kunnugt er fjölmenningarskóli,…Lesa meira

true

Alexandrea með brons á heimsmeistaramóti í bekkpressu

Borgnesingurinn Alexandrea Rán Guðnýjardóttir vann á sunnudaginn til bronsverðlauna á heimsmeistaramótinu í bekkpressu sem fram fer í Tókýó í Japan. Alexandrea keppir í -57 kg flokki unglinga í klassískri bekkpressu. Í fyrstu lyftu tók hún 67,5 kg og í þeirri annarri voru 72,5 kg á stönginni. Þau fóru upp og bætti hún þar með sinn…Lesa meira