Fréttir

true

Ný lög um leigubifreiðar í umsagnarferli

Drög að frumvarpi til nýrra laga um leigubifreiðar hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Markmið með frumvarpinu er að auka frelsi á leigubifreiðamarkaðnum og tryggja örugga og góða þjónustu fyrir neytendur. Þá er nýjum lögum ætlað að tryggja að íslenska ríkið standi við alþjóðlegar skuldbindingar samkvæmt samningnum um evrópska efnahagssvæðið. Allir hafa tækifæri…Lesa meira

true

Vallarsel fjörutíu ára í dag

Í dag er leikskólinn Vallarsel á Akranesi 40 ára. Deginum verður fagnað með skrúðgöngu í dag klukkan 10, hátíðarhöldum og opnu húsi eftir hádegi þangað sem foreldrar og aðrir velunnarar skólans eru velkomnir frá klukkan 14.30. Vallarsel er elsti starfandi leikskólinn á Akranesi, sá fyrsti sem var byggður sem slíkur. Síðan hefur í tvígang verið…Lesa meira

true

Viðbótar sendingargjald bætist við frá útlöndum

„Frá og með 3. júní næstkomandi mun svokallað sendingargjald verða innheimt af sendingum sem koma erlendis frá og bera aðflutningsgjöld, en Alþingi samþykkti nýverið viðauka við póstlög sem heimilar slíka ráðstöfun,“ segir í tilkynningu frá Íslandspósti. „Sendingargjaldinu er ætlað að standa undir kostnaði við dreifingu erlendra sendinga sem hingað berast frá erlendum póstfyrirtækjum. Eftir þessa…Lesa meira

true

Ráðherrann á æskuslóðum

Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra brá sér vestur í Dali á föstudaginn. Á meðfylgjandi mynd sést hann marka lamb klæddur lopapeysu með merki Framsóknarflokksins. „Fór í gærkvöldi með fullan bíl af börnum á sólarhrings sauðburðarvakt vestur í Dali til að draga úr spennunni fyrir Eurovision,” skrifaði hann á fésbók sína á laugardaginn. “Þrátt fyrir…Lesa meira

true

Skagamenn á toppinn eftir 1-0 sigur á Breiðabliki

Nú rétt í þessu var að ljúka toppbáráttuleik ÍA og Breiðabliks í Pepsí Max deildinni í fótbolta. Spilað var á nýjum gervigrasvelli í Kópavogi. Leiknum lauk með 1-0 sigri ÍA, en eina mark leiksins var skorað í uppbótartíma. Það gerði Einar Logi Einarsson eftir fyrirgjöf frá Stefáni Teiti Þórðarsyni. Skagamenn voru mun sterkari aðilinn framan…Lesa meira

true

Iddi Biddi kominn á fertugsaldurinn

Spaugfuglinn Ingi Björn Róbertsson, eða Iddi Biddi eins og margir þekkja hann, er þrítugur í dag. Hann sló til  veglegrar veislu á Gamla Kaupfélaginu í gærkvöldi með vinum í tilefni af afmælinu. Ingi Björn  er fæddur og uppalinn í Borgarnesi en flutti á Akranes fljótlega eftir grunnskóla „fyrir rúmum 10 árum síðan,“ eins og ein…Lesa meira

true

Skagamenn vígja nýjan Blikavöll í kvöld

Þrír leikir eru á dagskrá í fimmtu umferð Pepsí Max deildar karla í knattspyrnu í dag.  Þeirra hæst ber að nefna að Breiðablik tekur á móti ÍA í sannkölluðum toppslag í deildinni í Kópavogi klukkan 19:15. Liðin eru jöfn í efsta sæti deildarinnar með 10 stig. Leikurinn verður jafnframt sá fyrsti sem spilaður verður á…Lesa meira

true

Þór kjörinn forseti Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Nú rétt í þessu var að ljúka kjöri á næsta forseta Slysavarnafélagsins Landsbjargar, en þingið SL fer fram á Egilsstöðum um helgina. Það sitja nokkur hundruð félagar í björgunarsveitum víðsvegar af landinu. Smári Sigurðsson fráfarandi formaður gaf ekki kost á sér til endurkjörs í félaginu og höfðu þrír boðið sig fram. Það voru Þór Þorsteinsson…Lesa meira

true

Ungmenna- og tómstundabúðirnar kveðja Lauga

Síðustu nemendurnir kvöddu Ungmenna- og tómstundabúðirnar á Laugum í Sælingsdal í morgun, réttum 14 árum og 4 mánuðum eftir að fyrsti hópurinn kom þangað í ungmennabúðir. Næst taka starfsmenn búðanna á móti krökkunum í haust á Laugarvatni þar sem Ungmenna- og tómstundabúðirnar munu starfa hér eftir. Strax á sunnudaginn næsta verður hafist handa við að…Lesa meira

true

VR tilnefnir fyrirmyndarfyrirtæki ársins

VR hefur valið fimmtán fyrirtæki, fimm í hverjum stærðarflokki, sem Fyrirtæki ársins 2019. Niðurstaðan er fengin í kjölfar könnunar sem félagið stóð fyrir meðal þúsunda starfsmanna á almennum vinnumarkaði. Niðurstöðurnar voru kynntar í móttöku á Hilton Nordica hóteli í Reykjavík í gær. Fyrirtækin í fimmtán efstu sætunum í hverjum stærðarflokki fá viðurkenninguna fyrirmyndarfyrirtæki ársins. „Mörg…Lesa meira