
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið skiptingu rúmlega 420 milljóna króna af fjárlögum sem varið verður til að efla tækjakost heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni þar sem endurnýjunarþörf er orðin brýn. Rúmur helmingur fjárins er föst fjárveiting en 200 milljónir króna er tímabundin fjárveiting ætluð til endurnýjunar á myndgreiningarbúnaði stofnananna. Til Heilbrigðisstofnunar Vesturlands renna 70 milljónir króna.Lesa meira








