
Helgina 5.-7. apríl næstkomandi munu Lionsfélagar um land allt selja Rauða fjöður til þess að safna fyrir tækjabúnaði fyrir sykursjúka, sjónskerta og blinda. Markmiðið er að safna að lágmarki fyrir tveimur augnbotnamyndavélum sem staðsettar verða á innkirtladeild Landspítalans og á þjónustu- og þekkingarmiðstöð Blindrafélagsins. Lionsfélagar verða á fjölförnum stöðum í öllum stærstu sveitarfélögum landsins, t.d.…Lesa meira








