Fréttir

true

VR boðar félagsmenn sína sem störfuðu hjá WOW á fund

VR hefur boðað félagsmenn sína, sem starfað hafa hjá WOW air, til fundar á morgun, föstudaginn 29. mars kl. 14:00, á Hilton Reykjavík Nordica vegna þess að fyrirtækið hefur hætt starfsemi. „Farið verður yfir réttarstöðu starfsmanna. Félagsmenn eru beðnir um að mæta með afrit af launaseðlum sl. 6 mánaða, afrit af ráðningarsamningi sé hann til…Lesa meira

true

Húnvetningar verða fulltrúar Vesturlands í Skólahreysti

Lið Grunnskóla Húnaþings vestra náði þeim glæsilega árangri annað árið í röð að sigra í Vesturlandsriðli  Skólahreysti, en keppnin fór fram í síðustu viku. Liðið sigraði með 51 stigi en í öðru sæti varð Grundaskóli á Akranesi með 43,5 stig. Grunnskólinn í Stykkishólmi varð í þriðja sæti með 34 stig. Húnvetningar verða því annað ári…Lesa meira

true

Starfsemi Wow air hætt

Starfsemi flugfélagsins Wow air hefur verið hætt og öllum flugum félagsins hefur verið aflýst. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef flugfélagsins. Á þriðjudaginn hafði verið tilkynnt að skuldabréfaeigendur Wow air hefðu samþykkt að breyta sínum kröfum í félagið í hlutafé. Kröfuhafarnir höfðu þannig í raun tekið félagið yfir og Skúli Mogensen, forstjóri Wow, því…Lesa meira

true

Skrafgleði ökumanna kostar 40 þúsund í hvert skipti

Lögreglan á Vesturlandi sektaði nokkra ökumenn fyrir að tala í símann undir stýri í vikunni sem leið. Að sögn lögreglu var ekki um sérstakt átak að ræða, heldur tóku lögreglumenn sérstaklega eftir þessu við almennt umferðareftirlit í umdæminu. Lögregla áréttar að ökumenn eiga ekki að tala í símann við akstur og viðurlög við slíku broti…Lesa meira

true

Litríkt vor framundan í Snorrastofu

Þriðjudaginn 2. apríl næstkomandi flytur Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur fyrirlestur í Bókhlöðu Snorrastofu um klausturhald, konur og pólitík. Kristnitakan um árið 1000 fól í sér nýja stjórnskipan í landinu, byggðri á reglugerðum frá höfuðstöðvum kaþólsku kirkjunnar í Róm. Í fyrstunni gekk ágætlega að fylgja þeim eftir en eftir að Gregor páfi VII hóf að innleiða siðbætur…Lesa meira

true

Úr vör ýtt úr vör

Vefritinu Úr vör var ýtt úr vör föstudaginn 15. mars síðastliðinn. Vefritið fjallar um menningu, listir, nýsköpun og frumkvöðlastarf á landsbyggðinni. „Ljósi er varpað á hvernig fólk um allt land notar skapandi aðferðir til að leita lausna, og með því, öðrum veittur innblástur. Langt er á milli landshorna en Úr vör er vettvangur sem sameinar,…Lesa meira

true

Mikið stuð í salnum á frumsýningu Rock of Ages

Nemendafélag Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi frumsýndi söngleikinn Rock of Ages fyrir fullu húsi í Bíóhöllinni á Akranesi á föstudagskvöldið síðasta. Söngleikurinn gerist í Los Angeles þar sem klassísk rokklög frá áttunda áratugnum ráða ríkjum. Sherrie er ung stúlka sem flytir til LA með stóra drauma. Hún fær vinnu á skemmtistaðnum Bourbon room en framtíð staðarins…Lesa meira

true

Fengu skell í lokaleiknum

Skallagrímskonur fengu skell á útivelli gegn Haukum í lokaumferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi, 104-59. Skallagrímskonur áttu afleitan fyrsta leikhluta og skoruðu aðeins níu stig allan upphafsfjórðunginn. Á meðan settu Haukar 34 stig á töfluna og ljóst í hvað stefndi. Heimaliðið réði ferðinni allt til hálfleiks og leiddi með 29 stigum í hléinu,…Lesa meira

true

Fimm verkefni á Vesturlandi fá styrk úr framkvæmdasjóði

Að þessu sinni njóta 40 verkefni styrks úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða, en samtals var 505 milljónum króna úthlutað úr sjóðnum við úthlutun í morgun. Það voru ráðherrarnir Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir og Guðmundur Ingi Guðbrandsson sem kynntu úthlutanirnar. Hæsti styrkurinn á landsvísu fer til innviðauppbyggingar við Goðafoss, sem nú er komin á lokastig, samtals tæpar 59…Lesa meira

true

Snæfell missti af úrslitakeppninni

Snæfellskonur komast ekki í úrslitakeppnina um Íslandsmeistaratitilinn eftir tap gegn toppliði Vals á útivelli í gærkvöldi, 82-56. Fyrir leikinn var Snæfell í fimmta sæti með jafn mörg stig og KR í sætinu fyrir ofan. Snæfellskonur þurftu á sigri að halda í leiknum og jafnframt að treysta á hagstæð úrslit í leik KR og Keflavíkur sem…Lesa meira