Fréttir

true

Fengu skell í lokaleiknum

Skallagrímskonur fengu skell á útivelli gegn Haukum í lokaumferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi, 104-59. Skallagrímskonur áttu afleitan fyrsta leikhluta og skoruðu aðeins níu stig allan upphafsfjórðunginn. Á meðan settu Haukar 34 stig á töfluna og ljóst í hvað stefndi. Heimaliðið réði ferðinni allt til hálfleiks og leiddi með 29 stigum í hléinu,…Lesa meira

true

Fimm verkefni á Vesturlandi fá styrk úr framkvæmdasjóði

Að þessu sinni njóta 40 verkefni styrks úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða, en samtals var 505 milljónum króna úthlutað úr sjóðnum við úthlutun í morgun. Það voru ráðherrarnir Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir og Guðmundur Ingi Guðbrandsson sem kynntu úthlutanirnar. Hæsti styrkurinn á landsvísu fer til innviðauppbyggingar við Goðafoss, sem nú er komin á lokastig, samtals tæpar 59…Lesa meira

true

Snæfell missti af úrslitakeppninni

Snæfellskonur komast ekki í úrslitakeppnina um Íslandsmeistaratitilinn eftir tap gegn toppliði Vals á útivelli í gærkvöldi, 82-56. Fyrir leikinn var Snæfell í fimmta sæti með jafn mörg stig og KR í sætinu fyrir ofan. Snæfellskonur þurftu á sigri að halda í leiknum og jafnframt að treysta á hagstæð úrslit í leik KR og Keflavíkur sem…Lesa meira

true

Sjö manns sagt upp í kjölfar skipulagsbreytinga

Starfsemi Norðanfisks öll undir eitt þak Norðanfiskur ehf. á Akranesi, dótturfélag HB Granda, hefur ákveðið að færa alla starfsemi fyrirtækisins undir eitt þak, í húsnæði sitt að Vesturgötu 5, en samhliða því að loka starfsstöðinni sem verið hefur í gamla HB húsinu við Bárugötu. HB Grandi hefur leigt hluta þess rýmis sem Ísfiskur keypti af…Lesa meira

true

Vilja koma á fót heimavinnslu afurða í Dölum

Síðdegis í dag verður fundur í Árbliki í Dölum þar sem heimavinnslu afurða verður til umræðu. Erindi flytja Ólafur Sveinsson atvinnuráðgjafi hjá SSV, Ólafur Þór Hilmarsson hjá Matís, Erlendur Björnsson sláturhúsarekandi á Seglbúðum, Páll Kr. Pálsson frá fyrirtækinu Áttum, Hlédís Sveinsdóttir ræðir um Beint frá býli og REKO og Þorgrímur Einar Guðbjartsson á Erpsstöðum segir…Lesa meira

true

Páll á Húsafelli – sextugur í faðmi fjallahrings

Einn fremsti listamaður þjóðarinnar, Páll Guðmundsson á Húsafelli, er sextíu ára í dag, 27. mars. Páll er fæddur á Húsafelli 1959 og ólst upp í faðmi fjallhringsins sem mótuðu hann strax frá barnæsku. Hann gekk í barnaskóla á Kleppjárnsreykjum, í Hagaskóla en stundaði nám í Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1977-1981. Eftir það stundaði hann nám…Lesa meira

true

Sjóvá flytur á nýjan stað á Akranesi

Útibú tryggingafélagsins Sjóvár á Akranesi verður opnað á nýjum stað mánudaginn 1. apríl næstkomandi. Skrifstofan hefur til þessa verið á Garðabraut en verður frá aprílbyrjun að Þjóðbraut 1, þar sem tryggingafélagið leigir starfsstöðvar af Landsbankanum í sama húsi og bankinn. „Þetta felur því í sér hagræðingu í rekstri og styrkir grundvöll útibúsins enn frekar. Það…Lesa meira

true

Leituðu að fólki á Langjökli

Óttast var um fólk á Langjökli um helgina. Þar var á ferðinni átta manna hópur á þremur bílum. Þegar lögreglu barst tilkynning um málið kl. 22:00 á sunnudagskvöld hafði ekkert heyrst frá fólkinu í marga klukkutíma. Óskað var eftir aðstoð björgunarsveitanna Brákar, Oks og Heiðars við leit að fólkinu. Farið var á björgunarsveitarbílum og vélsleðum…Lesa meira

true

Datt af baki

Slys varð í Borgarfirði á mánudagskvöld í þessari viku þegar kona féll af hestbaki. Hesturinn hafði fælst með fyrrgreindum afleiðingum. Konan vissi ekki hvort hún hefði misst meðvitund eður ei, var illa áttuð og fann til í mjöðm. Hún var flutt með sjúkrabíl á heilsugæslustöðina í Borgarnesi til aðhlynningar.Lesa meira

true

Jarðarstund á Snæfellsnesi á laugardagskvöld

Næstkomandi laugardag, 30. mars, verður umhverfisviðburðurinn Earth Hour, eða Jarðarstund, haldinn í tólfta skipti. Um er að ræða árlegan alþjóðlegan viðburð þar sem milljónir jarðarbúa sameinast um að vekja athygli á loftslagsmálum. Af því tilefni munu sveitarfélög á Snæfellsnesi, í samstarfi við RARIK, taka þátt með því að slökkva á götuljósum milli kl. 20:30 og…Lesa meira