Fréttir

true

Töluverðar breytingar á stjórn Sundfélags Akraness

Aðalfundur Sundfélags Akraness var haldinn í gær. Á dagskrá voru hefbundin aðalfundarstörf. Trausti Gylfason, fráfarandi formaður félagsins, flutti ársskýrslu ársins 2018. Sagði hann starf félagsins afar blómlegt og fór yfir árangur iðkenda á liðnu ári. Daníel Sigurðsson gjaldkeri lagði fram ársreikning félagsins og var hann samþykktur einróma. Heildartekjur félagsins voru um 21,5 milljónir og heildargjöld…Lesa meira

true

Þrír Vestlendingar valdir í drengjalandsliðið

Þjálfarar U15 ára landsliða drengja og stúlkna í körfuknattleik hafa valið 18 manna lokahópa fyrir sumarið 2019. Bæði landsliðin munu keppa á Copenhagen Invitational mótinu sem fram fer í Danmörku seinni part júní í sumar. Vestlendingar eiga þrjá fulltrúa í hópunum, alla í U15 ára landsliði drengja. Þeir eru Alexander Finnsson úr Skallagrími, Aron Elvar…Lesa meira

true

Telja of rúmar heimildir foreldra til að fá leyfi fyrir börn sín frá námi

Niðurstöður nýlegar könnunar Velferðarvaktarinnar um skólasókn í grunnskólum landsins benda til þess að um þúsund grunnskólanemendur á Íslandi glími við svokallaða „skólaforðun,“ eða 2,2% nemenda. Könnunin var lögð fyrir skólastjóra í 172 grunnskólum landsins nú í janúar. Þær benda til þess að leyfisóskum foreldra vegna grunnskólanema hér á landi hafi fjölgað umtalsvert, en rúmur helmingur…Lesa meira

true

LÍV og VR ósamstíga í kjarabaráttunni – formaðurinn segir af sér

Guðbrandur Einarsson, formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna (LÍV), hefur sagt af sér embætti. Segir hann ástæðuna þá að stéttarfélagið sem hann hefur verið í forsvari fyrir undanfarin 21 ár, sameinast VR 1. apríl næstkomandi en við það færist samningsumboð LÍV yfir til VR. „Þá er sú staða uppi að LÍV og VR hafa ekki átt samleið…Lesa meira

true

Málþing um Vesturland á tímamótum

„Vesturland stendur á tímamótum. Nálægð við höfuðborgarsvæðið og iðnaðarsvæði á Grundartanga skapar atvinnutækifæri en líka mikinn akstur og fjarveru frá heimabyggð. Hvernig má auka fjölbreytileika og gera svæðið sjálfbærara um eigin hag. Er nóg að skapa ný atvinnutækifæri? Eða þurfa samfélagslegir innviðir, nýsköpun og atvinna að vinna saman til að auka sameiginleg lífsgæði. Býður Vesturland…Lesa meira

true

Loðnuveiðar hafnar á Faxaflóa

Fimmtíu grömmum af loðnu var landað á Akranesi laugardaginn 16. mars. Samanstóð aflinn af 35 gramma hæng og 15 gramma hrygnu sem reyndar var búin að hrygna. Hjónin eru jafnframt fyrsta og eina loðnan sem borist hefur að landi á þessari vertíð, sem reyndar verður ekki þar sem hún fannst ekki í veiðanlegu magni fyrir…Lesa meira

true

Fyrirlestur um heilsueflingu 60+ í Snæfellsbæ

Efnt verður til fyrirlesturs um heilsueflingu íbúa 60 ára og eldri í Snæfellsbæ í dag, miðvikudaginn 20. mars. Fyrirlesturinn fer fram í Félagsheimilinu Klifi og hefst hann kl. 14:00. Viðburðurinn er haldinn að frumkvæði velferðarnefndar og öldrunarráðs Snæfellsbæjar. Þar mun Janus Guðlaugsson frá Janus heilsueflingu fjalla um verkefnið Fjölþætt heilsuefling 65+ í sveitarfélögum. Það byggist…Lesa meira

true

Bændur vilja efla varnargirðingar

Aðalfundur Félags sauðfjárbænda í Borgarfjarðarhéraði var haldinn í Þinghamri 6. mars síðastliðinn. Þar var samþykkt að beina því til stjórnar Landssambands sauðfjárbænda að setttur verði þrýstingur á atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið að efla og styrkja varnarlínur búfjársjúkdóma í ljósi þeirrar stöðu sem komin er upp vegna frumvarps til laga um innflutning á fersku kjöti, eggjum og…Lesa meira

true

Átta bú fengu viðurkenningu fyrir úrvalsmjólk

Miðvikudaginn 13. mars síðastliðinn var deildarfundur Auðhumlu svf. haldinn að Hótel Hamri. Þrjár deildir hafa undanfarin ár haft sameiginlegan deildarfund; Snæfellsnes- og Mýrasýsludeild, Borgarfjarðardeild og Hvalfjarðardeild.  Á fundinn komu stjórnarformenn Auðhumlu og MS ásamt framkvæmdastjóra Auðhumlu, forstjóra MS og fulltrúi úr mjólkureftirliti. Að venju voru veittar viðurkenningar fyrir framleiðslu úrvalsmjólkur liðins árs.  Að þessu sinni…Lesa meira

true

Stefnan að fella strompinn á hádegi á fimmtudag

Stefnt er að því að fella sementsstrompinn á Akranesi á hádegi á fimmtudag, 21. mars kl. 12:15. Miðast það við að framvinda við undirbúning gangi eftir. Ef undirbúningurinn gengur ekki eftir eins og áætlað er, þá verður fellingu strompsins frestað. Ný dagsetning verður þá auglýst á heimasíðu Akraneskaupstaðar með sólarhrings fyrirvara. Strompurinn verður sprengdur í…Lesa meira