
Í kvöld, þriðjudaginn 19. mars, flytur Sigrún Elíasdóttir sagnfræðingur frá Ferjubakka, fyrirlestur um aðstoð Bandaríkjastjórnar við Íslendinga eftir síðari heimsstyrjöldina, kennda við þáverandi utanríkisráðherra þeirra, George Marshall. Í fyrirlestrinum verður leitað svara við því, hver hugmyndafræðin var á bakvið aðstoðina, hvernig fjármagn hennar var nýtt og hver aðkoma okkar ráðamanna var að ákvörðunum í þeim efnum. Þá verður einnig skoðað hver framtíð landsins hefði orðið án þessa erlenda fjármagns. Sigrún Elíasdóttir er Borgfirðingur, með MA gráðu í sagnfræði og…Lesa meira








