Fréttir

true

VLFA samþykkir að kjósa um verkfall

Stjórn Verkalýðsfélags Akraness hefur ákveðið að láta fara fram atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun meðal félagsmanna sinna sem heyra undir kjarasamning sem félagið á við Samtök atvinnulífsins vegna veitinga- og gistiþjónustu og greiðasölustaða, afþreyingarfyrirtækja og hliðstæðrar starfsemi. Eins og kunnugt er á félagið samflot með þremur öðrum verkalýðsfélögum; VLFG, Eflingu og VR í kjaraviðræðum við atvinnurekendur, en…Lesa meira

true

Merking og hnitsetning miltisbrandstilfella

Allt frá árinu 2004 ferðaðist Sigurður Sigurðarson dýralæknir um landið, leitaði heimilda og merkti staði þar sem þekktar miltisbrandsgrafir er að finna. Þetta eru staðir sem dýr sem drápust úr miltisbrandi voru grafin. Sýkillinn sem veldur miltisbrandi myndar dvalargró og getur í aldir lifað í jörðinni og þannig valdið nýju smiti komist hann upp á…Lesa meira

true

Snæfellsjökulshlaupið kosið annað besta

Nýverið var tilkynnt val á hlaupurum ársins og hlaupum ársins 2018 hjá hlaup.is. Snæfellsjökulshlaupið hafnaði þar í öðru sæti í flokki utanvegahlaupa og er það góð viðurkenning fyrir þau hjón Rán Kristinsdóttur og Fannar Baldursson sem hafa staðið fyrir hlaupinu í nokkur ár. Í því er hlaupið yfir Jökulshálsinn frá Arnarstapa og til Ólafsvíkur. Árið…Lesa meira

true

Benda á samlegð við að staðsetja Þjóðgarðastofnun við hlið LMÍ

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar er einhuga um að óska eftir því við Guðmund Inga Guðbrandsson umhverfisráðherra að höfuðstöðvum nýrrar stofnunar, Þjóðgarðastofnunar, verði fundinn staður á Akranesi. Jafnframt er stungið upp á því að ný stofnun verði starfrækt með samlegð við Landmælingar Íslands sem verið hafa með aðsetur á Akranesi í rétta tvo áratugi. Í ályktun sem bæjarstjórn…Lesa meira

true

Séra Eðvarð lætur af prestsþjónustu á Akranesi

Séra Eðvarð Ingólfsson, prestur í Akraneskirkju, hverfur frá störfum sem sóknarprestur Garðaprestakalls á Akranesi 1. apríl næstkomandi. Hann hefur komist að samkomulagi við biskup Íslands um að hann hverfi frá núverandi þjónustu og takist á hendur ný verkefni í vígðri þjónustu kirkjunnar. Séra Eðvarð hefur verið sóknarprestur á Akranesi frá því árið 1997. Hann var…Lesa meira

true

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks fagna ákvörðun um hvalveiðar

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, sem sitja í minnihluta í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar, lögðu fram bókun á síðasta bæjarstjórnarfundi þar sem þeir fagna ákvörðun Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um að heimila áframhaldandi veiðar á langreyði og hrefnu árin 2019-2023. Segja þeir þá ákvörðunin ráðherrans samhljóma umsögn bæjarráðs Akraness frá 7. janúar sl. til atvinnuveganefndar vegna þingsályktunartillögu um…Lesa meira

true

Gatnamót malbikuð á Akranesi

Í dag er verið að malbika á gatnamótum Esjubrautar, Akranesvegar og Kalmansbrautar á Akranesi. Framkvæmdir hafa staðið yfir við endurgerð Kalmanstorgs, hringtorgsins sem stendur á gatnamótunum, frá því síðasta haust. Samhliða endurgerð hringtorgsins hafa lagnir verið endurnýjaðar. Upphaflega stóð til að verkinu yrði lokið nálægt áramótum, en en vegna veðurs hefur töf orðið á framkvæmdum.…Lesa meira

true

Nemendur krufðu æðarfugl í FSN

Jón Einar Jónsson frá Rannsóknasetri Háskóla Íslands í Stykkishólmi heimsótti nemendur í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði í morgun. Að því er fram kemur í frétt á vef skólans aðstoðaði Jón Einar nemendur við krufningu á æðarfugli. Nemendur skoðuðu líffærin og opnuðu maga og skoðuðu hvað það er sem æðarfuglinn étur. Í janúar fengu nemendur einnig…Lesa meira

true

Krefjast þess að umferðaröryggi í göngunum verði bætt

Á fundi bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar síðastliðinn þriðjudag var samþykkt ályktun í ljósi stöðu umferðaröryggismála í Hvalfjarðargöngum. Vísað er til umferðarslyss sem varð í göngunum 12. febrúar síðastliðinn og ítarlega var fjallað um í Skessuhorni20. febrúar sl. Með vísan til þessa atviks og brests sem komið hefur í ljós í viðbúnaðaráætlun vegna óhappa í göngunum krefst bæjarstjórn…Lesa meira

true

Stefnir í ónotuð hjúkrunarrými á Höfða fyrir 146 milljónir króna

„Stjórn Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimilis, lýsir yfir miklum vonbrigðum með svör heilbrigðisráðuneytisins á erindi Höfða frá 28. desember 2016 um fjölgun varanlegra hjúkrunarrýma og telur þau í miklu ósamræmi við þá hrópandi þörf á fjölgun hjúkrunarrýma í landinu öllu,“ segir í ályktun sem stjórn samþykkti fyrr í vikunni. „Fyrir liggur að þegar heimild Höfða til…Lesa meira