Fréttir

true

ÍA hlaut Dómaraverðlaun KSÍ

Á ársþingi KSÍ um liðna helgi hlaut ÍA Dómaraverðlaun KSÍ fyrir árið 2018 fyrir öflugt dómarafélag sem starfar innan ÍA, Knattspyrnudómarafélag Akraness. „ÍA og KDA gera árlega með sér samning um að KDA sjái um dómgæslu frá 4. flokki og uppúr. Samstarfið hefur verið ákaflega farsælt og átt mikinn þátt í því að styrkja öflugt…Lesa meira

true

Siguroddur varði sæti sitt í slaktaumatöltinu

Fyrsta mót ársins í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum fór fram á föstudagskvöldið í reiðhöllinni Faxaborg í Borgarnesi. Rúmlega hundrað gestir mættu til að horfa á, en keppt var í slaktaumatölti. Efstur eftir forkeppni var Siguroddur Pétursson á hryssunni Eldborgu frá Haukatungu Syðri. Héldu þau sæti sínu í úrslitum og sigruðu með 7,3 í einkunn. Þar með…Lesa meira

true

Dómstólar hafna því að fiskeldi skaði veiðiréttarhafa

Landsréttur staðfesti á föstudaginn niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur og vísaði frá kröfum fyrirtækjanna Akurholts og Geiteyrar, sem eru veiðiréttarhafar í Haffjarðará á Snæfellsnesi, á hendur Arnarlaxi, Matvælastofnun og Umhverfisstofnun. Veiðiréttarhafarnir kröfðust þess fyrir dómi að starfs- og rekstrarleyfi fiskeldis Arnarlax í Arnarfirði yrðu ógilt. Niðurstaða dómsins byggir á því að veiðiréttarhafarnir, sem kröfðust ógildingar leyfa Arnarlax…Lesa meira

true

Snæfellingar rótburstaðir

Snæfellingar riðu ekki feitum hesti frá viðureign sinni við Hött, þegar liðin mættust í 1. deild karla í Stykkishólmi á föstudagskvöld. Leikurinn var alger einstefna frá fyrstu mínútu og endaði með risasigri gestanna frá Egilsstöðum, 36-122. Mikil kraftur var í liði Hattar í fyrsta leikhluta, þar sem þeir skoruðu 35 stig gegn tíu stigum Snæfellinga.…Lesa meira

true

Bankahúsið í Búðardal öðlast brátt nýtt líf

Húsnæði sem áður hýsti útibú Arion banka í Búðardal hefur verið til sölu í nokkurn tíma. Félagið D9 ehf. sem er í eigu Dalamannsins Leifs Steins Elíssonar og eiginkonu hans, hefur nú fest kaup á því. Þar er nú unnið að gerð íbúðarherbergja á efri hæð, en enn er ekki fullráðið hvað verður á jarðhæð.…Lesa meira

true

Slakur þriðji leikhluti reyndist dýrkeptur

Skallagrímskonur töpuðu gegn KR á útivelli, 80-64, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna á laugardaginn. Fyrri hálfleikur var heilt yfir nokkuð jafn en slakur þriðji leikhluti Skallagríms varð til þess að KR-ingar fóru með sigur af hólmi. Borgnesingar höfðu heldur yfirhöndina í upphafi leiks og höfðu fjögurra stiga forskot um miðjan fyrsta leikhluta, 10-14.…Lesa meira

true

Óvænt tap Snæfells

Snæfell tapaði óvænt gegn Haukum, 73-67, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á laugardaginn. Leikið var á Ásvöllum í Hafnarfirði og var leikurinn jafn og spennandi frá fyrstu mínútu. Snæfell hafði heldur yfirhöndina framan af upphafsfjórðungnum, leiddu með fjórum stigum á kafla en Haukar jöfnuðu í 17-17 áður en leikhlutinn var úti.…Lesa meira

true

Ungmenna- og tómstundabúðirnar verða fluttar á Laugarvatn

Ungmenna- og tómstundabúðir hafa verið starfræktar á Laugum í Sælingsdal frá árinu 2005 en nú er liggur fyrir að þetta er síðasti veturinn sem búðirnar verða starfræktar þar. Leigusamningur UMFÍ og Dalabyggðar um starfsemina á Laugum rennur út í lok maí á þessu ári. UMFÍ hefur gengið frá samningi við Bláskógabyggð um húsnæði í íþróttamiðstöð…Lesa meira

true

Hefur trú á að hægt sé að gera stóra hluti með fjarhjúkrun um síma

Í ár eru 100 ár liðin frá stofnun Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Af því tilefni ætlar stjórn deildar hjúkrunarfræðinga á Akranesi og nágrennis að standa fyrir því að birta greinar eftir hjúkrunarfræðinga í Skessuhorni. Greinarnar verða birtar jafnt og þétt yfir afmælisárið og í þeim munu lesendum fá smá innsýn í þau fjölbreyttu störf og áskoranir…Lesa meira

true

Enn verður frestun á útboði vegna sjúkrabifreiðakaupa

„Opnun útboðs vegna fyrirhugaðra kaupa á sjúkrabílum sem átti að fara fram 7. febrúar sl. hefur verið frestað til 13. mars næstkomandi,“ segir í sameiginlegri tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins og Rauða krossins á Íslandi. „Unnið er að samkomulagi milli þessara aðila um lyktir samnings um útvegun og rekstur sjúkrabíla sem Rauði krossinn hefur sinnt til fjölda ára.…Lesa meira