Fréttir

true

Líf í tuskunum hjá Ingu Guðjóns

Ingibjörg Guðjónsdóttir, handverkskona á Akranesi, heldur bútasaumssýningu á Bókasafni Akraness, dagana 8. febrúar til 8. mars næstkomandi. Ingibjörg er fædd 1949 og uppalin á Arkarlæk í Skilmannahreppi. Hún flutti til Akraness 16 ára gömul, þar sem hún hefur verið búsett síðan. Ingibjörg, sem alltaf er kölluð Inga, er sjúkraliði og vinnur á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á…Lesa meira

true

Átaksverkefnið Lífshlaupið hófst í morgun

Lífshlaupið, heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, var sett í morgun í tólfta skipti með athöfn sem fram fór í Breiðholtsskóla í Reykjavík. Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni ÍÖÍ. Markmið þess er að hvetja landsmenn til að gera hreyfingu að föstum lið í lífi sínu, hvort sem er í frítímanum, í vinnunni, í skólanum…Lesa meira

true

VG er tuttugu ára í dag

Í dag eru tuttugu ár liðin frá stofnfundi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Fundurinn var haldinn í Rúgbrauðsgerðinni í Reykjavík, þar sem meðfylgjandi myndir voru teknar. Eftir tvo daga hyggst hreyfingin halda afmælisveislu sem fram fer á Grand Hótel í Reykjavík. „Árnaðaróskum rignir nú yfir forystu og starfsfólk VG, þar sem félagar hreyfingarinnar óska hreyfingunni langrar…Lesa meira

true

Umsóknir um fjárfestingastuðning í sauðfjárrækt

Opnað hefur verið fyrir umsóknir bænda um fjárfestingastuðning í sauðfjárrækt í samræmi við reglugerð um stuðning við sauðfjárrækt. Markmið stuðningsins er að stuðla að bættum aðbúnaði sauðfjár og hagkvæmari búskaparháttum. Skilyrði fyrir veitingu fjárfestingastuðnings eru að þau séu til nýframkvæmda eða endurbóta á eldri byggingum. Fjárfestingastuðningur fyrir hvern framleiðanda getur að hámarki numið 20% af…Lesa meira

true

Valdís Þóra hefur leik á LPGA í nótt

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, keppir í bandarísku LPGA mótaröðinni í þessari viku. Mótið heitir Honda Civic Open og fer fram í Ástralíu dagana 7.-10. febrúar. Er þetta annað árið í röð sem Valdís tekur þátt í mótinu. Á síðasta ári hafnaði hún í 57. sæti eftir að hafa komist í gegnum niðurskurðinn.…Lesa meira

true

Bryndís Rún framlengir við ÍA

Knattspyrnukonan Bryndís Rún Þórólfsdóttir hefur framlengt samning sinn við Knattspyrnufélag ÍA. Skrifaði hún undir tveggja ára samning. Bryndís er fædd árið 1997 og leikur á miðju vallarins. Hún hefur verið ein af lykilleikmönnum í liði Skagakvenna undanfarin ár. Bryndís á að baki 76 leiki fyrir meistaraflokk ÍA og í þeim leikjum hefur hún skorað sex…Lesa meira

true

Dagur leikskólanna er í dag

Í dag, miðvikudaginn 6. febrúar, er Dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins. Þetta er í tólfta skipti sem haldið er upp á daginn en 6. febrúar er merkisdagur í leikskólasögu þjóðarinnar því á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Tilgangur Dags leikskólans er að vekja athygli á hlutverki leikskóla og…Lesa meira

true

Frumvarp sem ætlað er að koma böndum á kennnitöluflakkara

Alþingismaðurinn Þorsteinn Sæmundsson hefur lagt fram frumvarp um kennitöluflakk. Meðflutningsmenn hans eru aðrir þingmenn Miðflokksins. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um hlutafélög, nr. 2/1995, og lögum um einkahlutafélög, nr. 138/1994, í því skyni að reyna að girða fyrir kennitöluflakk. Framkvæmdastjórum hlutafélaga og stjórnarmönnum er með breytingum á fyrrgreindum lögum hamlað að taka…Lesa meira

true

Vesturlandsdeildin hefst með slaktaumatölti

Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum hefst næstkomandi föstudagskvöldið í Faxaborg í Borgarnesi með keppni í slaktaumatölti. Í fyrra voru það Siguroddur Pétursson og Hrynur fra Hrísdal sem sigruðu þá keppnisgrein með einkunnina 7,38. Samkvæmt upplýsingum frá deildinni hafa stífar æfingar staðið yfir að undanförnu hjá liðunum og mikil spenna i loftinu fyrir þessa fyrstu keppni. Alls eru…Lesa meira

true

Óbreyttir 4,5% stýrivextir

Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti í morgun að hún mun halda stýrivöxtum óbreyttum, þ.e. 4,5%. Ástæðan er sögð að nú stefni í minnsta hagvöxt frá 2012, en samkvæmt nýrri þjóðhagsspá bankans er gert ráð fyrir að töluvert hægi á hagvexti á þessu ári og hann verði 1,8%. Hægari hagvöxtur stafar einkum af samdrætti í ferðaþjónustu og líkur…Lesa meira