Fréttir

true

Northern Wave og Plan-B Art Festival tilnefnd til Eyrarrósarinnar

Frá árinu 2005 hafa Byggðastofnun, Air Iceland Connect og Listahátíð í Reykjavík veitt viðurkenningu í nafni Eyrarrósarinnar til afburða menningarverkefna utan höfuðborgarsvæðisins. Eyrarrósinni er ætlað að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Alls bárust 30 umsóknir um Eyrarrósina 2019 hvaðanæva af landinu en sex þeirra…Lesa meira

true

Snjóþekja og víða skafrenningur

Vetrarfærð er um allt land, hálka eða snjóþekja. Þæfingsfærð er víðast hvar á Vestfjörðum sem og austur á Héraði og þungfært er á Þjóðvegi 1 norðan Egilsstaða og yfir Fjarðarheiði. Unnið er að mokstri um allt land. Á Vesturlandi er hálka eða snjóþekja og skafrenningur víða. Þæfingsfærð er sunnan Vegamóta að Heydalsvegi.Lesa meira

true

Borgarnes borðar saman í þriðja sinn

Heiðrún Bjarnadóttir í Borgarnesi fór af stað með viðburð síðastliðið haust sem hún kallar „Borgarnes borðar saman“. Íbúar geta þá hist yfir einni máltíð í mánuði og borðað saman án tilstands eða fyrirhafnar. Hugmyndina fékk Heiðrún þegar hún bjó í Danmörku en þar tíðkast að fólk hittist í félagsheimilum og borði saman kvöldmat. Sjálfboðaliðar taka…Lesa meira

true

Vill vindhraðamælingar við Borgarfjarðarbraut

Jón Ólafsson á Báreksstöðum í Andakíl hefur vakið máls á nauðsyn þess að komið verði upp vindhraðamælingum á þekktum roksvæðum við Borgarfjarðarbraut til að bæta megi umferðaröryggi. Kom hann hreyfingu á málið með því að skrifa byggðarráði Borgarbyggðar. Byggðarráð tók erindið fyrir á fundi í liðinni viku, þakkaði Jóni góða ábendingu, og fól sveitarstjóra að…Lesa meira

true

Tryggvi Hrafn aftur til liðs við ÍA

Knattspyrnufélag ÍA gekk í dag frá samningi við sóknarmanninn Tryggva Hrafn Haraldsson. Hann gengur til liðs við ÍA frá Halmstad í Svíþjóð, þar sem hann hefur leikið undanfarið eitt og hálft ár eða svo. Tryggvi á að baki 27 leiki með Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni og í þeim hefur hann skorað þrjú mörk. Tryggvi er…Lesa meira

true

Landsmenn ríflega 357 þúsund

Í lok síðasta árs bjuggu 357.050 manns á Íslandi; 182.870 karlar og 174.180 konur. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 228.260 en 128.780 utan þess. Þannig er hlutfall þeirra sem búa utan höfuðborgarsvæðisins komið niður í um 36%. Í tölum Hagstofunnar um búferlaflutninga kemur fram að brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru fimm umfram aðflutta á síðasta ársfjórðungi…Lesa meira

true

Fjórir hætt komnir þegar ís gaf sig á Meðalfellsvatni

Fjórir menn féllu niður um ís á Meðalfellsvatni á sunndudaginn, en þeir voru við myndatöku á nýjum veiðiþætti fyrir sjónvarpsstöðina Hringbraut. Fréttatíminn greindi fyrst frá atvikinu. Verið var að kvikmynda dorgveiði en þá er boruð hola á ísinn og veitt niður um hana. Einn fjórmenninganna var Gunnar Bender veiðifréttamaður: „Ég fór bókstaflega á bólakaf og…Lesa meira

true

Mikilvægt að hreinsa frá sorpílátum

Töluvert hefur snjóað víða um land að undanförnu. Af þeim sökum er afar mikilvægt að fólk hreinsi vel frá sorptunnum heimila og fyrirtækja og létti þannig eins og kostur er störf sorphirðufólks. Þetta á við jafnt í dreifbýli sem þéttbýli.Lesa meira

true

Gerðu gott mót á Reykjavík International Games

Reykjavik International Games fóru fram í Laugardalslaug um helgina. Um er að ræða eitt stærsta sundmót sem haldið hefur verið á Íslandi, þar sem tæplega 400 sundmenn frá sjö löndum tóku þátt. Sundfélag Akraness átti tíu keppendur í mótinu. „Persónuleg met voru slegin og áttu krakkarnir mörg góð sund yfir helgina,“ segir í tilkynningu á…Lesa meira

true

Fyrsti sigur Snæfells í höfn

Á föstudagskvöld fengu Snæfellingar loks leikinn sem þeir hafa beðið eftir í allan vetur, þegar þeir tóku á móti Sindra í 1. deild karla í körfuknattleik. Hólmarar léku afar vel og höfðu heldur yfirhöndina þó leikurinn hafi verið mjög jafn og spennandi á löngum köflum. Að lokum fór svo að Snæfellingar höfðu betur með 89…Lesa meira