Fréttir

true

Pönnukökur víða á borðum í dag

Meðal fastra liða í fjáröflun Soroptimistaklúbbs Akraness er gríðarmikill pönnukökubakstur daginn fyrir bóndadag. Fyrirtæki kaupa þá rjómapönnsur eða sykraðar og fá ekið heim að dyrum að morgni bóndadags. Klúbbkonur höfðu því í nægu að snúast í gær og bökuðu á fimmta þúsund ilmandi pönnukökur. Þær smökkuðust með ágætum – það getur ritstjórn Skessuhorns staðfest. Bændur…Lesa meira

true

Hrósa Reykhólahreppi en hnýta í Vegagerðina

Stjórn Landverndar hrósar sveitarstjórn Reykhólahrepps fyrir að hafa sýnt umhverfinu umhyggju með því að taka til skoðunar nýja leið vegna veglagningar í sveitarfélaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu Landverndar. Um leið átelur stjórn samtakanna Vegagerðina fyrir að sýna ekki sömu framsýnu viðhorf og sveitarstjórn til nýrra hugmynda um endurbætur á Vestfjarðavegi, sem samtökin segja að…Lesa meira

true

Boða verklegar framkvæmdir fyrir 128 milljarða

Á Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins sem fram fór í Reykjavík síðastliðinn fimmtudag kynntu fulltrúar tíu opinberra aðila fyrirhugaðar verklegar framkvæmdir á þessu ári. Samtals er gert ráð fyrir framkvæmdum að upphæð 128 milljarðar króna. Það er 49 milljarða króna hærri upphæð en kynnt var á Útboðsþingi síðasta árs. Fram kom að Reykjavíkurborg hyggst framkvæma á árinu…Lesa meira

true

Hættir hjá Framleiðnisjóði landbúnaðarins

Þórhildur Þorsteinsdóttir sauðfjárbóndi á Brekku í Norðurárdal hefur eftir nærri sex ár sem framkvæmdastjóri hjá Framleiðnisjóði landbúnaðarins sagt starfi sínu lausu. Þórhildur tók upphaflega til starfa hjá Framleiðnisjóði í september 2006 sem starfsmaður á skrifstofu. Fimm árum síðar var hún gerð að skrifstofustjóra og að lokum framkvæmdastjóra. „Ég mun ljúka störfum í vor eða sumar,…Lesa meira

true

Flutningabílar rákust saman við Glerárskóga

Óhapp varð um átta leytið í gærkvöldi þegar tveir vöruflutningabílar voru að mætast á þjóðveginum við Glerárskóga í Dölum. Svo virðist sem hurð á flutningakassa annarrar bifreiðarinnar hafi opnast með þeim afleiðingum að hún slóst harkalega utan í stýrishús hinnar bifreiðarinnar. Framrúðan bílstjóramegin mölbrotnaði við höggið og rigndi glerbrotum yfir bílstjórann. Samkvæmt upplýsingum lögreglumanns á…Lesa meira

true

Folaldasýning framundan í Söðulsholti

Folaldasýning verður haldin í Söðulsholti á Snæfellsnesi á morgun, laugardaginn 26. janúar, og hefst klukkan 13. Keppt verður í kynjaskiptum flokkum og gestir velja fallegasta folaldið. Hver skráning kostar þúsund krónur og er hægt að skrá hjá Einari í síma 899-3314 eða hafa samband á einar@sodulsholt.is. Sýningin er opin öllum. Við skráningu þarf að gefa…Lesa meira

true

Borgnesingar rændir sigrinum

Skallagrímur heimsótti ÍR í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Um háspennuleik var að ræða en eftir æsispennandi lokamínútur tókst ÍR-ingum að stela sigrinum, 96-95. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiks. Eftir eftir um fimm mínútna leik náðu heimamenn yfirhöndinni og leiddu með tólf stigum eftir fyrsta leikhluta, 31-19. Skallagrímsmenn minnkuðu muninn…Lesa meira

true

Nýju snjóruðningstækin reynast vel

Snjóruðningstæki sáust í fyrsta skipti á þessu ári á götum Ólafsvíkur á mánudaginn í liðinni viku. Það eru bræðurnir í B.Vigfússyni ehf. sem sjá um að ryðja götur bæjarins. Vigfús Þráinn Bjarnason vélamaður sagði í samtali við Skessuhorn að þetta væri í fyrsta skiptið sem þeir notuð nýju tækin að einhverju ráði, eftir að fyrirtækið…Lesa meira

true

Rykmengun hefur aukist í göngunum

Vegfarendur sem daglega aka í gegnum Hvalfjarðargöng hafa tekið eftir að rykmengun í Hvalfjarðargöngum hefur aukist upp á síðkastið. Velta þeir fyrir sér hvort ástæðan sé aukinn flutningur fokgjarnra jarðefna um göngin, eða hvort Vegagerðin hafi dregið úr notkun blásara sem ætlað er að viðhalda stöðugum loftskiptum. Íbúi á Vesturlandi, sem daglega ekur göngin, sagði…Lesa meira

true

Fjallað um Viðeyjarrannsókn í Snorrastofu

Þriðjudaginn 29. janúar nk. mun Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður flytja fyrirlestur í Snorrastofu í Reykholti, sem ber yfirskriftina: „Fornleifarannsóknin í Viðey 1987–1995. Tilurð klausturstofnunar”. Fyrirlesturinn, sem er hluti svokallaðra „Fyrirlestra í héraði,“ verður fluttur í Bókhlöðu Snorrastofu og hefst kvöldstundin kl. 20:30. Aðgangur er kr. 500. Gerð verður grein fyrir fornleifarannsókn í Viðey, sem Margrét stjórnaði…Lesa meira