Fréttir

true

Skrifað undir samstarfssamning Snæfellsbæjar og Frystiklefans

Síðdegis á föstudag var skrifað undir fjögurra ára samstarfssmaning Snæfellsbæjar og Frystiklefans í Rifi. Það voru Kári Viðarsson í Frystiklefanum, Sigrún Ólafsdóttir, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Snæfellsbæjar og Kristinn Jónasson bæjarstjóri sem undirrituðu samninginn. Í honum felst að bæjarfélagið styrkir starfsemi Frystiklefans um fasta upphæð á herju ári sem nýta skal til ýmissa viðburða og auðga…Lesa meira

true

Góður sigur ÍA

Skagamenn unnu góðan sigur á Stál-úlfi, 126-109, þegar liðin mættust í elleftu umferð í 2. deildar karla í körfuknattleik. Leikið var á Akranesi í gærkvöldi. Gestirnir byrjuðu betur, höfðu heldur yfirhöndina framan af fyrsta leikhluta en ÍA var aldrei verið langt undan. Stál-úlfur leiddi með sex stigum eftir upphafsfjórðunginn, 27-33. Skagamenn þjörmuðu að gestunum í…Lesa meira

true

Tap gegn toppliðinu

Snæfellingar lágu gegn toppliði Þórs Ak., 97-62, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Leikið var á Akureyri. Heimamenn byrjuðu af krafti og komust í 11-2 áður en upphafsfjórðungurinn var hálfnaður. En þá tóku Snæfellingar við sér, minnkuðu muninn í þrjú stig og höfðu í fullu tré við toppliðið það sem…Lesa meira

true

Snæfell áfram í bikarnum en Skallagrímur úr leik

Leikið var í átta liða úrslitum Geysisbikars kvenna í körfuknattleik í gær. Snæfell tryggði sér farseðilinn í undanúrslit með sigri á Haukum í hörkuleik í Stykkishólmi en Skallagrímur hefur lokið þátttöku sinni eftir stórt tap gegn Stjörnunni á útivelli.   Fundu sig ekki í sókninni Fyrsti leikur dagsins var viðureign Skallagríms og Stjörnunnar. Borgnesingar fundu…Lesa meira

true

Skoða aðstæður barnshafandi kvenna á landsbyggðinni

Félags- og barnamálaráðherra ásamt heilbrigðisráðherra kynntu á ríkisstjórnarfundi á föstudaginn áform um skoða í sameiningu breytingar til að styðja betur við barnshafandi konur á landsbyggðinni og fjölskyldur þeirra. Skipaður verður starfshópur sem á að móta og leggja fram tillögur að úrbótum hvort sem er innan fæðingarorlofskerfisins eða með öðrum hætti. Starfshópurinn mun fara yfir aðstæður…Lesa meira

true

Könnuðu ýmsa þætti sem hafa áhrif á líðan grunnskólabarna

Um níu af hverjum tíu nemendum í grunnskólum líður vel og flestir bera mikið traust til kennara. Þetta sýnir ný rannsókn sem Rannsóknastofa í tómstundafræðum við Háskóla Íslands birti í síðustu viku um líðan grunnskólanemenda. Rannsóknin nefnist Heilsa og lífskjör skólanema og er unnin að tilstuðlan Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Niðurstöðurnar byggja á svörum rúmlega 7.000 nemenda á…Lesa meira

true

SSV framlengir umsóknarfrest um sólarhring

Frestur til að skila inn umsóknum í Uppbyggingarsjóð Vesturlands hefur verið framlengdur fram á mánudagskvöld 21. janúar, en hann átti að renna út í gær. Uppbyggingarsjóður Vesturlands veitir styrki í þremur flokkum: – Til atvinnuþróunar- og nýsköpunarstyrki tvisvar á ári. – Til menningarmála – styrki í stök verkefni einu sinni á ári – til stofn-…Lesa meira

true

Loka fleiri vegum

Vegagerðin undirbýr nú að loka veginum við Hafnarfjall. Þar er bálhvasst, staðvindur um 24 m/sek og í hviðum 38 m/sek. Fyrir um hálftíma síðan var veginum um Kjalarnes lokað, en þar lentu tveir hópferðabílar í óhöppum um kvöldmatarleitið og eru viðbragðsaðilar að störfum. Veðurfræðingar búast við að veðrið suðvestanlands taki að lægja milli kl. níu…Lesa meira

true

Vegurinn um Kjalarnes verður lokaður frameftir kvöldi

Rúta með tæplega þrjátíu farþega fauk á hliðina á Kjalarnesi laust fyrir klukkan 19 í kvöld. Þar er hvassviðri og ekkert ferðaveður. Samkvæmt fréttavef RUV slasaðist enginn alvarlega.  Þá voru að berast fréttir af því að önnur rúta með um tíu manns hafi einnig fokið útaf. Viðbragðsaðilar eru á leið á vettvang. Vegagerðin tók þá…Lesa meira

true

Veðurstofan varar við hvassviðri og erfiðum akstursskilyrðum

Veðurstofan spáir suðaustan 15-23 m/s og snjókomu eða slyddu um allt vestan- og suðvestanvert landið í kvöld. Úrkomubakki færist yfir landshlutann. Það verður rigning nærri sjávarmáli og hlýnar í veðri. Bent er á að erfið akstursskilyrði geta orðið vegna takmarkaðs skyggnis og snjóþekju, einkum í uppsveitum og á heiðavegum, t.d. á Bröttubrekku í Dölum og…Lesa meira