Fréttir

true

Rann til í krapafæri

Eftir ofankomu gerði slæmt færi víða á vegum í gær, einkum þar sem ekki fer fram snjómokstur um helgar. Meðal annars var erfitt færi frá Akranesi og suður að Hvalfjarðargöngum. Jeppa var ekið á ljósastaur á Innnesvegi. Ökumaður missti stjórn á bílnum í krapa og hafnaði á ljósastaur. Staurinn losnaði upp og bíllinn skemmdist nokkuð,…Lesa meira

true

Fóðrar smáfuglana á gönguferðum sínum

Á þessum tíma árs taka smáfuglar því fagnandi þegar mannfólkið gaukar að þeim fóðri, ekki síst þegar snjór leggst yfir helstu fæðuöflunarstaði þeirra. Smáfuglar sem ekki halda til suðrænna landa að hausti, halda sig gjarnan á sömu slóðum þar sem leita má skjóls og möguleikar eru góðir til fæðuöflunar. Gjarnan hópast þeir svo saman þar…Lesa meira

true

Folaldasýning framundan í Söðulsholti

Folaldasýning verður haldin í Söðulsholti á Snæfellsnesi laugardaginn 26. janúar og hefst klukkan 13. Keppt verður í kynjaskiptum flokkum og gestir velja fallegasta folaldið. Hver skráning kostar þúsund krónur og er hægt að skrá hjá Einari í síma 899-3314 eða hafa samband á einar@sodulsholt.is. Sýningin er opin öllum. Við skráningu þarf að gefa upp nafn,…Lesa meira

true

Gagnagrunnur um lífskjör landsmanna

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra opnaði í dag með formlegum hætti vefinn tekjusagan.is. Vefurinn veitir aðgang að gagnagrunni um lífskjör landsmanna sem byggir á ópersónugreinanlegum upplýsingum úr skattframtölum allra einstaklinga á Íslandi frá árinu 1991 til 2017. Hver sem er getur skoðað þróun ráðstöfunartekna mismunandi hópa, áhrif skatta og bóta auk félagslegs hreyfanleika. Verkefnið hefur tvisvar verið…Lesa meira

true

Fjölmenni á Mannamóti landshlutanna

Stöðugur straumur gesta var á Mannamót landshlutanna, sem haldið var í Kórnum í Kópavogi eftir hádegi í gær. Viðburðurinn var að þessu sinni haldinn í sjöunda skipti, en í fyrsta sinn í Kórnum. Þar sameinast markaðsstofur Vesturlands, Vestfjarða, Norðurlands, Austurlands, Reykjaness og Suðurlands um að kynna fyrir starfsfólki ferðaskrifstofa og hótela á höfuðborgarsvæðinu það sem…Lesa meira

true

Húsaleiga á höfuðborgarsvæðinu lækkaði milli mánaða

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 193,6 stig í desember 2018 (janúar 2011=100), samkvæmt samantekt Þjóðskrár, og lækkar því um 0,7% frá fyrri mánuði. Fram kemur að þrjá mánuði þar á undan hækkaði vísitalan um 2,1% og síðastliðna tólf mánuði hækkaði hún um 7,8%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Þessi mæling…Lesa meira

true

Opið hús í dag vegna skipulagsbreytinga á Akranesi

Opið hús verður á bæjarskrifstofum Akraneskaupstaðar í dag, föstudaginn 18. janúar, milli kl. 12:30 og 17:00. Þar verða kynntar fyrirhugaðar skipulagsbreytingar. Í fyrsta lagi verður kynnt breyting á deiliskipulagi stofnanareits vegna fyrirhugaðrar hótelbyggingar að Kirkjubraut 39, sem stundum er kölluð Fólksbílastöðin. Breytingin felst í því að nýtingarhlutfall lóðarinnar er hækkað, hámarksfjöldi hæða verður fjórar hæðir…Lesa meira

true

Snjóþekja á flestum vegum

Vetrarfærð er í flestum landshlutum, þó síst á Suðvesturlandi. Hvergi er spáð hvössum vindi. Þar sem hiti er um og yfir frostmarki má búast við slæmri hálku meðan snjó og hálku er að taka upp. Á Vesturlandi ser snjóþekja eða hálka á flestum vegum og sumsstaðar ofankoma, segir í tilkynningu Vegagerðarinnar.Lesa meira

true

Íslensk getspá greiðir út fyrstu milljónavinninga ársins

Starfsmenn Íslenskrar getspár vita fátt skemmtilegra en að taka á móti vinningshöfum og í vikunni komu fyrstu milljónamæringar ársins 2019 í heimsókn í Laugardalinn. „Fyrsti vinningshafinn var eldri maður af Suðurlandi. Sá var með 3. vinning í fyrsta útdrætti ársins í EuroJackpot, vinning upp á rúmlega 14,5 milljónir króna. Er þetta annar stóri vinningurinn sem…Lesa meira

true

Leikur Skallagríms hrundi í lokafjórðungnum

Skallagrímur tapaði gegn Stjörnunni, 80-94, þegar liðin mættust í 14. umferð Domino‘s deildar karla í körfuknattleik í gær. Leikið var í Borgarnesi og heimamenn voru mun betri nánast allan leikinn. Þeir misstu hins vegar niður 20 stiga forskot í síðari hálfleik áður en leikur þeirra hrundi í lokafjórðungnum og Stjarnan sigraði. Skallagrímsmenn byrjuðu leikinn af…Lesa meira