Fréttir

true

Ókunnugur maður bauð barni upp í bíl

Grunnskólabarni á Akranesi var boðið far af ókunnugum manni á leið sinni heim frá skóla í dag. Barnið þáði ekki farið og hélt sína leið, en lét foreldri vita sem gerð síðan skólayfirvöldum viðvart. Staðgengill skólastjóra Brekkubæjarskóla sendi tölvupóst á alla foreldra nemenda við skólann síðdegis í dag og lét þá vita af atvikinu. Í…Lesa meira

true

Lesbókin til sölu

Rekstur kaffihússins Lesbókarinnar við Akratorg á Akranesi er til sölu, ásamt lausafé og búnaði. Ásett verð er 9,9 milljónir króna. Það er Steinþór Árnason veitingamaður sem hefur rekið Lesbókina síðan í janúar í fyrra, eftir að hann keypti reksturinn af þeim Christel Björgu Rúdólfsdóttur Clothier og Guðleifi Rafni Einarssyni. Greint var frá því í Skessuhorni…Lesa meira

true

Kvikmyndahátíðin Borgarnes Film Freaks á næsta leyti

Kvikmyndahátíðin Borgarnes Film Freaks verður haldin í Borgarnesi dagana 24. til 26. janúar næstkomandi. Er þetta í annað skipti sem hátíðin er haldin, en einnig var blásið til hennar í fyrra. Að þessu sinni verða myndirnar annars vegar sýndar á Sögulofti Landnámssetursins á fyrsta kvöldi hátíðarinnar og hins vegar í Félagsmiðstöðinni Óðali á föstudag og…Lesa meira

true

Mikið af mörkum í fyrstu leikjum ársins

Fótbolti.net mótið í knattspyrnu hófst um helgina, en mótið markar upphaf knattspyrnuárs karla og er liður í undirbúningstímabilinu fyrir Íslandsmótið í sumar. ÍA tók á móti Keflavík í Akraneshöllinni á laugardaginn í A deild mótsins. Skemmst er frá því að segja að Skagamenn höfðu algera yfirburði í leiknum, einkum í fyrri hálfleik. Stefán Teitur Þórðarson,…Lesa meira

true

Krakkaspjall er nýr bókaklúbbur fyrir krakka

Krakkaspjall er bókaklúbbur fyrir krakka sem nýverið var komið á fót á Bókasafni Akraness. Hittast krakkarnir annan hvern laugardag í mánuði og spjalla saman um bækur. Það er Katrín Lilja Jónsdóttir, ritstjóri Lestrarklefans, sem hefur umsjón með viðburðinum. Fyrsta Krakkaspjallið var síðastliðinn laugardagsmorgun og segir Katrín viðtökurnar hafa verið góðar. „Miðað við fyrsta fundinn lítur…Lesa meira

true

Ákvörðun um leiðarval frestað til þriðjudags

Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum á þriðjudag að fresta ákvörðun um leiðarval Vestfjarðavegar um Gufudalssveit í aðalskipulagi hreppsins til þriðjudagsins 22. janúar, að því er fram kemur á Reykhólavefnum. Ingimar Ingimarsson oddviti lagði fram tillögu þess efnis að fresta ákvörðuninni um viku, vegna þess að sveitarstjórn á bókaðan fund með samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra á…Lesa meira

true

Gasrofi sprakk í aðveitustöð Norðuráls

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað að álveri Norðuráls á Grundartanga laust eftir hálf sex í gærkvöldi vegna reyks frá aðveitustöð. Að sögn Þráins Ólafssonar slökkviliðsstjóra hafði gasrofi í stjórnrými stöðvarinnar sprungið og þurfti að reykræsta stjórnrýmið. „Engin hætta var á ferðum og enginn slasaðist, það er lykilatriði,“ segir Þráinn í samtali við Skessuhorn. „Viðbrögð…Lesa meira

true

Mannamót markaðsstofanna er í dag

Mannamót markaðsstofa landshlutanna fer fram í dag klukkan 13-17 og er að þessu sinni haldið í Kórnum í Kópavogi. Undanfarin ár hefur viðburðurinn verið haldinn í flugskýli Ernis á Reykjavíkurflugvelli, en sökum mannfjölda í fyrra var ákveðið að færa hann í stærra húsnæði. Mannamót er haldið af markaðsstofum landshlutanna í samvinnu við flugfélagið Erni og…Lesa meira

true

Fyrverandi yfirlögregluþjónn dæmdur fyrir hegningarlagabrot

Fyrrverandi yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi greiddi í nóvember á síðasta ári sekt upp á 100 þúsund krónur vegna vændiskaupa. Ríkissaksóknari upplýsti lögreglustjórann á Vesturlandi í byrjun júní um að þáverandi yfirlögregluþjónn væri til rannsóknar vegna ætlaðs brots gegn almennum hegningarlögum. Maðurinn baðst lausnar frá störfum 1. júlí síðastliðinn og á það var fallist samdægurs.…Lesa meira

true

Mikilvægur sigur Skallagríms

Skallagrímur krækti í mikilvæg stig í Domino‘s deild kvenna þegar liðið sigraði Breiðablik, 84-74, í Borgarnesi í gærkvöldi. Borgnesingar byrjuðu leikinn af krafti og komust í 13-3 áður en upphafsfjórðungurinn var hálfnaður. Þá tóku Blikar við sér og minnkuðu muninn, en Skallagrímskonur höfðu áfram yfirhöndina og leiddu með sjö stigum eftir fyrsta leikhluta, 24-17. Þegar…Lesa meira