Fréttir

true

Snæfell burstaði Stjörnuna

Snæfell vann stórsigur á Stjörnunni, 81-58, í tíundu umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi í gærdag. Stjarnan byrjaði af miklum krafti, hreyfði boltann vel í sókninni og lék þétta vörn. Snæfellskonur fundu ekki taktinn í upphafsfjórðungnum og gestirnir höfðu afgerandi forskot að honum loknum, 11-23. Í öðrum leikhluta snerist taflið algjörlega…Lesa meira

true

Hundrað ár í dag frá því lagður var grunnur að skólahaldi á Bifröst

Í ár hefur því verið fagnað með ýmsu móti að 100 ár eru liðin frá að hornsteinn var lagður að skólastarfi við Háskólann á Bifröst og verður botninn sleginn í afmælisárið með veglegri dagskrá á Bifröst í dag, mánudaginn 3. desember. Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst, og Leifur Runólfsson, formaður stjórnar háskólans og hátíðarstjóri,…Lesa meira

true

Gamla feitin í smáfuglana

Þessa skemmtilegu mynd birtu Veitur á upplýsingasíðu sinni, ásamt meðfylgjandi texta: „Að steikja laufabrauð á aðventunni er góður siður. Að henda afgangsfeiti í vaskinn/fráveituna er það ekki. Það vita þessir félagar. Þeir blanda feitinni við brauðafganga eða annað kornmeti og færa smáfuglunum.“ Góð ábending og til eftirbreytni.Lesa meira

true

Víðast hvar góð færð

Snjóþekja er á Holtavörðuheiði og á Bröttubrekku. Annars eru víðast hvar hálkublettir eða greiðfært, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.Lesa meira

true

Líkja vexti WOW við bankavöxt fyrir hrun

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir verulegum áhyggjum yfir stöðu flugfélagsins WOW og þeirri óvissu sem enn ríkir varðandi félagið. Fram hefur komið í fréttum að félagið flytur um 40% flugfarþega til og frá landinu og því hefði fall þess gríðarleg áhrif á allt efnahagslíf til lengri og skemmri tíma. Í ályktun sem miðstjórn ASÍ sendi frá…Lesa meira

true

Hátíð brautskráðra doktora frá HÍ

Sextíu og þrír doktorar tóku að morgni fullveldisdagsins við gullmerki Háskóla Íslands að viðstöddum Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands. Um er að ræða árlega hátíð brautskráðra doktora en þeir eiga það sameiginlegt að hafa brautskráðst frá Háskóla Íslands á tímabilinu 1. desember 2017 til 1. desember 2018. Háskóli Íslands hefur í á annan áratug unnið…Lesa meira

true

Heyrðu nafni – það er dáldið mikið að gera í símanum!

“Heyrðu nafni, það er orðið svolítið mikið að gera hjá mér að svara í símann fyrir þig…” Þannig hljóðuðu skilaboð sem Borgfirðingurinn Jón Þór Þorvaldsson sendi Borgfirðingnum Jóni Þór Þorvaldssyni í dag í gegnum Facebook. Ástæða þessa var sú að eftir að frétt þess efnis birtist hér á vef Skessuhorns í dag um að Jón…Lesa meira

true

Jón Þór mun taka sæti á Alþingi á morgun

Jón Þór Þorvaldsson, 1. varaþingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi, mun taka sæti Bergþórs Ólasonar á þingi á morgun. Þetta staðfesti hann í samtali við Skessuhorn nú rétt í þessu. Eins og sagt var frá í frétt hér á vefnum fyrr í dag, hugðist Jón Þór taka ákvörðum um hvort hann þægi þingsætið af loknum viðræðum við…Lesa meira

true

Mun ræða við forystu flokksins áður en þingseta verður ákveðin

Jón Þór Þorvaldsson flugstjóri hjá Icelandair er 1. varaþingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi. Nú hefur Bergþór Ólason þingmaður tekið sér ótímasett leyfi frá þingstörfum og því þarf að kalla inn varamann. Skessuhorn hafði samband við Jón Þór og spurði hvort hann hygðist leggja flugmannshúfuna á hilluna og taka sæti á þingi. „Ég get ekki svarað því…Lesa meira

true

Aðventan er gengin í garð

Fyrsti sunnudagur í aðventu er í dag, sunnudaginn 2. desember. Aðventa er orð úr latínu og merkin: Adventus – „koman“ eða „sá sem kemur“. Í Kristni er aðventan fjórir síðustu sunnudagarnir fyrir jóladag. Að þessu sinni er fjórði sunnudagur í aðventu því Þorláksmessa.Lesa meira