Fréttir

true

Knattspyrna og golf eru stærstu íþróttagreinarnar

Þeir sem stunda golfíþróttina hér á landi hafa aldrei verið fleiri en þeir eru nú, en 17.165 einstaklingar eru í dag skráðir í golfklúbba landsins og hefur fjölgað um 150 kylfinga frá í fyrra. Knattspyrnan er stærsta einstaka íþróttagreinin með tæplega 23.000 félaga innan KSÍ, en næst kemur Golfsambandið með rúmlega 17.000 félaga. Þetta kom…Lesa meira

true

Þorsteinsmótið var spilað í Logalandi í gær

Í gær var Þorsteinsmótið í tvímenningi í bridds haldið í félagsheimilinu Logalandi í Borgarfirði. Mótið er haldið til minningar um Þorstein Pétursson kennara frá Hömrum og er þetta í annað skipti sem það fer fram. Mótið er silfurstigamót og líkt og í fyrra var þátttaka góð, eða 54 spilarar. Öflugir briddsspilarar mættu og öttu kappi…Lesa meira

true

Kokkalandsliðið vann til gullverðlauna í Luxemborg

Rétt í þessu fékkst það staðfest að íslenska kokkalandsliðið vann til gulllverðlauna fyrir frammistöðu sína á heimsmeistaramótinu í Lúxemborg í gær. Mótið fer fram á fjögurra ára fresti og er íslenska liðið í fremstu röð meðal þjóða heims. „Við erum gríðarlega ánægð með þennan árangur enda búið að vinna að undirbúningi í 18 mánuði og…Lesa meira

true

Sigruðu í smásagnasamkeppni í GSB

Nemendur í 1.-4. bekk Grunnskóla Snæfellsbæjar héldu Dag íslenskrar tungu hátíðlegan að venju 16. nóvember. Samkoma var á sal á Hellissandi, nemendur sungu íslensk lög og tilkynnt var um úrslit í árlegri smásagnasamkeppni bekkjanna, en nemendur 4. bekkjar sáu um að kynna dagskrána. Eftirfarandi nemendur unnu til verðlauna fyrir sögur sínar: Arna Eir Örvarsdóttir í…Lesa meira

true

Ævisaga Stefáns sterka komin út í bók

Út er komin ævisagan Stefán sterki, myndbrot úr mannsævi. Höfundur er Þórir Stephensen fyrrverandi dómkirkjuprestur. Fyrsta eintak bókarinnar var á mánudag afhent frú Vigdísi Finnbogadóttur fyrrverandi forseta Íslands en það var hinn ungi Stefánungur Stefán Björn Stephensen sem það gerði. Hann er sonarsonur höfundar og fjórði maður frá Stefáni sterka. Myndbrot úr mannsævi fjallar um…Lesa meira

true

Grunuð um að stinga tengdason sinn

Landsréttur staðfesti á á miðvikudag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Vesturlands yfir konu sem grunuð er um tilraun til manndráps á Akranesi. Konunni er gefið að sök að hafa stungið tengdason sinn með hnífi í brjóstkassann aðfararnótt 10. nóvember sl. Þegar lögregla kom á vettvang var maðurinn alvarlega sár, þar sem mikið blæddi úr honum. Lögregla spurði hvað…Lesa meira

true

Hafa fengið nóg af rangtúlkunum og ósanngirni

„Starfsfólk OR hefur fengið nóg af rangtúlkunum og ósanngirni sem stjórnmálamenn og fjölmiðlar setja á borð fyrir almenning,“ segir í yfirlýsingu frá starfsmannafélagi OR. „Það særir okkur hvernig stjórnmálamenn og fjölmiðlar tjá sig um vinnustaðinn sem þeir virðast ekki þekkja en leggja sig fram um að gera tortryggilegan, rangtúlka niðurstöður vinnustaðagreiningar og skýrslu Innri endurskoðunar…Lesa meira

true

Borgarverk bauð lægst í framkvæmdir á Fróðárheiði

Hjá Vegagerðinni voru fyrr í vikunni opnuð tilboð í endurbyggingu 4,8 kílómetra kafla á Fróðárheiði á Snæfellsnesi. Með lagningu nýs vegar frá Valavatni niður að vegamótum Útnesvegar Ólafsvíkurmegin lýkur síðasta hluta endurgerðar vegarins yfir heiðina. Þar með sér fyrir endan á langþráðu verkefni sem í raun hefur tekið áratugi. Fjögur fyrirtæki buðu í verkið og…Lesa meira

true

LÍS vinnur að réttindagæslumálum fyrir námsfólk

Elsa María Guðlaugs Drífudóttir er fædd og uppalin á Akranesi, gekk í Grundaskóla og eftir það lá leiðin í Fjölbrautaskóla Vesturlands þar sem hún lauk stúdentsprófi af málabraut. Þegar Elsa María stundaði síðar nám í Listaháskólanum var hún kosin í jafnréttisnefnd skólans sem fulltrúi nemenda og vorið 2016 fór hún í skiptinám til Vínar í…Lesa meira

true

Ferðalag frá Kínahverfinu í Borgarnesi og út á Ystu Nöf

Leikverkið „Farðu á þinn stað“ verður frumsýnt á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi 26. janúar næstkomandi. Höfundur verksins og eini leikarinn er Theodór Kr. Þórðarson, jafnan kallaður Teddi lögga. Hann tekur sjálfan sig til kostanna í sjálfsævisögulegum einleik þar sem ferðast er frá Kínahverfinu í Borgarnesi og alla leið út á Ystu Nöf. Skessuhorn sló á…Lesa meira